Vikan

Tölublað

Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 3

Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 3
Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.). Blaðamenn: Guð- mundur Karlsson, Sigurður Hreiðar. Útlitsteikning: Snorri Friðriksson. Auglýsingastjóri: Gunnar Stein- dórsson. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar: 35320, 35321, 35322, 35323. Pósthólf 533. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Laugavegi 133, sími 36720. Dreifingar- stjóri: Óskar Karlsson. Verð í lausasölu kr. 25. Áskrift- arverð er 300 kr. ársþriðjungslega, greiðist fyrirfram. Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Rafgraf h.f. ANGELEQUE, framhaldssaga 40 hluti .... Bls. 8 HVAÐ ER DRAUGAGANGUR? Grein eftir Geir Vil- hjálmsson, sálfræðing ........... Bls. 10 BORG SEM BYGGÐ VAR Á SANDI - OG Á SÉR ENGA HLIÐST/EÐU í HEIMINUM. Sumarauki í Suð- urlöndum. Grein eftir Gísla Sigurðsson, ritstj. Bls. 12 SAGA BORGARÆTTARINNAR KVIKMYNDUÐ Á ÍS- LANDI 1919. Grein og myndafrásögn.. Bls. 18 FORSÍÐAN Eins og raunar stendur skírum stöfum á forsíðunni, þá er fegurðarsamkeppnin 1965 hafin í Vikunni og hér kemur fyrsta stúlkan, sem dómnefndin hef- ur valið til úrslita. Hún heitir Jóhanna Ósk Sig- fúsdóttir og vinnur í Naustinu, en er upprunnin frá Raufarhöfn. Sjá bls. 25—27. HVINUR í STRÁUM. Ný skáldsaga eftir hingaðtil óþekktan skáldsagnahöfund, Sigríði frá Vík. Sveita- lífssaga frá aldamótunum, skrifuð á hinu lifandi tungutaki alþýðunnar í landinu. Verður birt sem framhaldssaga í þrem blöðum. ANNÁLL 20. ALDARINNAR í myndum og grein eft- ir hinn heimskunna rithöfund John Gunther. Fyrri hluti. Grein sem vekja mun mikla athygli. HEIMURINN OG ÉG. Smásaga eftir Mögnu Lúð- víksdóttur. HUMOR I VIKUBYRiUN HEFÐI KRAKKI GERT ÞAÐ í SJONVARPINU, HEFÐIRÐU DÁIÐ AF HLÁTRI• I ÞESSARI VIKU I NÆSTA BLAÐI SÍÐAN SÍÐAST. Ýmislegt efni úr víðri veröld. Bls. 4 MELINDA. Þýdd smásaga ............ Bls. 16 LEIFUR LEfRS VAKINN TIL LÍFSINS. Sýnishorn af gamanljóðum eftir Loft Guðmundsson ... Bls. 24 GAMANLJÓÐ UM NORRÆNA SAMVINNU OG ÞINGHALD eftir Leif Leirs .......... Bls. 3 FEGURÐARSAMKEPPNIN 1965. Úrslit. nr. 1 í röð- inni: Jóhanna Osk Sigfúsdóttir frá Raufar- höfn ............................... Bls. 25 OG ER TALINN AF, framhaldssaga...... Bls. 14 VIKAN OG HEIMILIÐ. Ritstjóri Guðriður Gisla- dóttir ............................. Bls. 47 FENEYJAR SÖKKVA. Ferðafrásögn eftir Gísla Sig- urðsson. VIÐTAL VIÐ SIGRÍÐI FRÁ VÍK, hið nýuppgötvaða skáld, sem skrifaði ,,Hvin í stráum". SYNDAFALLIÐ í ÞJÓÐLEIKHÚSINU. Grein um nýja Millersleikritið, sem bráðlega verður frumsýnt. FEGURÐARSAMKEPPNIN HELDUR ÁFRAM. Nr. 2 f úrslitum, Guðný Guðjónsdóttir úr Reykjavík. LEIFUR LEIRS E2LÍ ALMAF AÐ AÐAL3- BENH VÆRU HAlB Ott frmnaRT.isnTní FUGLARNIR FIMM Svalageima segulhjara sunnan loftgandar fara hraðleiði, hreyfilmóðir, Hafra-Þórs kerruslóðir yfir hvítfextum öldum, undir norðljósa földum; brennur þeim viti á vogi — vítis skær Surtarlogi. Ofar þeim geystu göndum gustar af vængjum þöndum; fimm svífa björtum fjöðrum foglar með ljósvakans jöðrum, syngjandi sínu nefi — sumir hásir af kvefi — norðursins bræðrabragi við blessuðu hymnalagi. Skínandi skýjatrafi skautaðir rísa úr hafi svelljöfrar silfurhærðir (sérlega af skáldum mærðir). Loftgandar lending taka; létt foglar vængjum blaka. Háttvirtir hatta strjúka og hæverskuflírið mjúka. Kramfelliát veizluklæðum kankvísi í skálaræðum; svífa í víðum sveigum sætlegum yfir veigum foglarnir fimm að vanda í fögnuði norræns anda. Þótt minni á geyp í gásum gagg þeirra, er sezt er að krásum, skrafbræður veizluvanir vita að þar kvaka svanir ... Kveðjast með kossi heitum kappar, að loknum teitum. Aftur svo agg má hefjast eins og hagsmunir krefjast. Fimm ofar fuggandans argi foglar höggvast með gargi Surtur þeim sína kveðju sendir úr vítisleðju. REIÐSLUBÓKINNI AÐ ÞETTA VÆRI SV0 GOTT VIKAN 11. tbl. g

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.