Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 48
«««-«-<■«<< ««<«« <«««« ««< <■<■«■«■<■<■<«<■<■
Skta ryaicppi! Skía ryatcppi!
PERLEMOR
Höfum á lager persneskt og íranskt teppagarn,
efni og fjölbreytt mynstur fyrir ryateppi og púða.
Fyrirmyndirnar sem eru til sýnis í Húsgagna-
verzluninni Hverfisgötu 18, verða til sölu þar á
næstunni.
JÓH. ÓLAFSSON & Co.
Hverfisgötu 18, Reykjavík. — Sími 11632.
<■< « « < «««<«««««< «««<««<««««<<«
<**K**~L j: • ' 4 ______
VIKAN u. tbl.
en augliti til auglits við hinar
sterku líkur til, að reimleikar
geti gerzt í formi dulvitaðra fjar-
hrifa, virðist að svo komnu máli
allt eins líklegt, að einhver heim-
ilisfólksins, sennilega húsmóðir-
in Margrét, hafi með fjarlirifum
ómeðvitað orsakað ókyrrðina.
Allavega skyldu mcnn forðast
sleggjudóma í málum sem þess-
um, hvort heldur sem er meö
eöa móti, þar til nákvæm rann-
sókn hefur farið fram, og leiddar
liafa verið í Ijós staðreyndir,
sem gera kleift að leggja hlutlaus-
an og réttan dóm á málið.
Parasálfræðirannsóknarstofan
i Freiburg safnar skýrslum um
allar tegundir fyrirbæra þeirra,
sem yfirnáttúruleg eru nefnd.
Eru i safni stofnunarinnar þegar
yfir eitt þúsund slikar frásagn-
ir.
Beinir greinarhöfundur þeim
tilmælum til lesenda, að þeir
sendi stofnuninni frásagnir af
yfirnáttúrulegum atburðum, sem
þeir hafa komizt í tæri við. Ef
mögulegt er þurfa frásagnirnar
að vera staðfestar af einum eða
fleiri vottum, því hetur sem
frásagnirnar eru vottfestar, þvi
betra. Einnig er æskilegt, en þó
ekkert skilyrði, að fyrirbærið
(draumur, sýn o. s. frv.) hafi
verið skrifað niður áöur en að
sannaðist, að það hefði liaft
yfirnáttúrulegar upplýsingar að
geyma. Þau fyrirbæri, sem til á-
lita koma geta verið margskon-
ar og eru þessi helzt: liugsana-
flutningur milli manna, vitneskja
um fjarlæga eða ókomna atburði,
fyrirboðar i draumi, yfirnáttúru-
leg hreyfingarfyrirbrigði, að
vera sér meðvitandi utan líkam-
ans og margt fleira.
Til þess að forðast aukavinnu
við þýðingar er þess óskað, að
frásagnirnar séu á ensku eða
þýzku þar sem því verður við
komið, annars á íslenzku.
Upplýsingar þær, sem gefnar
verða, eru meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál, og öllum bréfum
og fyrirspurnum verður svarað.
Bréfin skal stila til:
Institut fuer Grenzgebiete der
Psychologie,
78 Freiburg, Þýzkalandi,
Eichalde 12. ★
Höfum við tapað hæfi-
ieikanum til að anda
rétt?
Framhald af hls. 47.
á þykktina. Slakið vel á. Andið að
yður rólega þannig, að kviðurinn
lyftisf. Andið frá yður hægt, en vel
og tæmandi. Um leið sígur kvið-
urinn. Þegar þér hafið lófanö
á þyktinni, getið þér betur gert yð-
ur grein fyrir hreyfingum kviðarins.
Til þess að þér andið rétta þindar-
öndun þurfið þér að slaka vel á
kviðvöðvunum.
Iðkið þessa öndun á hverjum
degi, ákveðið, en stutt í einu, unz
hún er orðin yður eðlileg og án
þvingunar. Þér eigið að geta fram-
kvæmt hdna sem stutta eða djúpa
öndun, eftir því sem á þarf að
halda. Þindin skilur að brjóst- og
kviðarhol. En • röntgenmyndir sýna,
að hún er einnig öndunarlíffæri. Við
þindaröndun þenjast lungun mest
út neðst og starfa fleiri lungnafrum-
ur við þindaröndun en aðrar önd-
unaraðferir. Við slíka öndun gefur
þindin líffærum kviðarholsins eins
konar nudd, sem er þeim mjög
gagnlegt. Heilbrigð börn anda
þindaröndun, sömuleiðis dýrin.
Þetta er sú öndunaraðferð, sem
ætti að vera öllu fólki eðlileg, þeg-
ar það er í hvíldarstellingu. Þessi
öndun kemur sér mjög vel fyrir kon-
ur, meðan varir fyrri hluti fæðing-
ar.
Brjóstholsöndun. Slakið vel á.
Leggið lófa utan á brjóstholið.
Látið góma mætast rétt neðan við
bringubeinið. Andið þannig að yð-
ur, djúpt og rólega, að brjóstholið-
eins og víkki, þenjist út til beggja
hliða. Andið frá yður, slakið á. —
Iðkið þetta daglega, stutt í einu, en
samvizkusamlega og vel.
Þetta er sú öndunaraðferð, sem.
bezt er að nota, þegar annað stig:
fæðingar byrjar, svonefnt útfærslu'
eða rembings tímabil.
HraSöndun, (yfirborðsöndun, and--
kafaöndun).
Hröð öndun, framkvæmd með
hálfopnum eða galopnum munni,
nær aðeins til efsta hluta brjósthols-
ins. Andið þannig til að byrja með
18—20 sinnum á mínútu, 25—30
sinnum á mínútu, síðan 50—60 sinn-
um á mínútu og loks allt að 150
sinnum á mínútu. Þessi aðferð við
öndun hjáipar mjög, þegar sóttin
fer að harðna. Grípið því óðar til
hennar, er yður finnst þörf á þeirri
hjálp, sem hún veitir. Andið ótt og
títt í hríðunum. Látið ekkert trufla
það. Festið hugann algerlega við
öndunina. Árangurinn verður stór-
kostleg hjálp, sérstaklega á síðasta
tímabili útþenslu hríðanna. Slík
öndun gerir samdrátt legsins fjar-
lægari og óraunverulegri.