Vikan

Tölublað

Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 49

Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 49
Það er miög míkiisvert, aS önd- önartæknin sé í góðu lagi, þegar út í fæðinguna er komið. Notið því út í æsar þær bendingar, sem hér hafa verið gefnar. Hraðöndun þessi er einnig m|ög gagnleg þeim, sem mæðnir eru við að ganga stiga, brekkur, o. s. frv. Byrjið ó þessari öndun 1 neðst í brekku eða stiga og haldið henni alla leið upp. Austurlenzk fræði halda því á- kveðið fram, að háttbundinn andar- dráttur sé, án minnsta efa, undir- staða heilbrigði og aðferð til að ná heilsunni aftur. Ut í þessi fræði A B verður ekki farið hér, aðeins bent á eina og einfalda aðferð, sem flestir geta notað. Hún er sú að raula lag fyrir munni sér. Gerið það, þegar þér eruð úti á göngu. Meðan þér raulið lagið, andið þér ósiálfrátt og eðlilega frá yður. Lungun tæmast sem unnt er, og þér komizt ekki hjá því að anda djúpt og vel að yður. Minnizt þessa: Rétt öndun er ein af helztu undirstöðum heilbrigð- innar." ... og er talinn af Framhald af bls. 15. fjarlæg rödd, innan um alls- konar truflanir sem fylgja lang- línusamtölum: — Julie ... Julie ... Er þetta Julie? Hjálpaðu mér. Geturðu ekki hjálpað mér.. Svo heyrðist skellur, svo varð allt hljótt. Hún greip í borðbrúnina. Átta ár í bið. Átta ár í von. Og frú Thorpe hafði dáið, án þess að vita sannleikann. Frú Thorpe, eina fórnarlambið sem hafði dá- ið af sjálfsdáðun, hvers dauði hafði ekki verið hluti af áætlun- inni því þeir höfðu ekki ennþá lagt krumlurnar utan um tuttugu þúsund dollarana hennar. En þeir úrvals leikarar. Djöful- legir úrvalsleikarar. Hún þrýsti reiðilega á stöðvun- arhnappinn. Snöktandi ýtti hún tækinu niður af borðinu. Það féll með skell í gólfið. SENDIFER DA ÞER FAIÐ EINN — OG HÁLFtN TRABANT ffyrir sama verö og sambærilegan bíi í nsesta verðflokKí ffyrir offan kr. -OOO Söluumboð _ BfLASALA GUÐMUMOAB Bergþórugötu 3 — Sími 19032 - 20070 í sama bili heyrði hún fótatak. Albert Noessler stóð í dyrunum í Gamla Heidilbergs einkenn- isfötunum sínum, myndarlegur, snyrtilegur, með hvern hnapp hnepptan. Hvert glansandi hár á sínum stað. Hann brosti við henni og lyfti augnbrúnunum. — Einmitt, Madame, sagði hann. Fyrst horfði hún á hann, frem- ur með undrun en hræðslu. Þetta var ennþá sami Noessler, fyrirmynd dyravarða með sama óþvingaða brosið á vörum. En í hendinni hafði hann skamm- byssu, sem beint var að kvið hennar. — Mér þykir þetta svo leitt, Madame. Raunverulega leitt. Hann leit á stólinn og tók eft- ir leirflekkjunum og reipinu á stólbakinu. Hann horfði ásakandi á segulbandstækið á gólfinu. — Verið svo væn að koma með mér, Madame. Með lítilsháttar hneig- ingu steig hann til hliðar til að hleypa henni framhjá. — Beint áfram, Madame. Hún fékk að hlaupa alla leið til baka, umhverfis afgreiðslu- borðið og inn á skrifstofuna, þar sem skrifborðslampinn lýsti. — Verið svo væn að taka yður stöðu þarna við gluggann. Hún stóð við dimman, stóran útsýnisgluggann. Eitthvað small fyrir aftan hana. Hún greip and- ann snöggt á lofti. En svo heyrði hún að það var ekki öryggið á skammbyssunni. Noessler hafði stutt á rafmagnsrofa. Gegnum gluggann sá hún ljósin kvikna út með gangstígnum, sem lá niður að súlnagöngunum, eitt eftir ann- að, og mynda langa, samhang- andi Ijóskeðju. Svo slokknuðu þau aftur. Nokkrum sekúndum seinna kveikti hann á mörgum fleiri rof- um á töflu bak við hurðina. Hann lyfti skammbyssunni lítið eitt og sagði: — Aprés vous, Madame. Afgreiðslusalurinn var baðað- ur í ljósi, eins og það væri verið að taka á móti hundruðum gesta. Pelsum og gimsteinaprýddum. Svo heyrði hún fótatak á möl- inni fyrir utan og rétt í sömu andrá opnaði maður í úlster- frakka dyrnar. — Frú Thorpe, má ég kynna herra Stigman. Rauðhærður, ógeðslegur og ruddalegur. Red hafði hann kall- að sig. Hún hafði látið myrkr- ið og spennínginn slá ryki í augu sín, ásamt tærandi þrá. Það rumdi í Stigman; hann brosti skökku brosi til Julie og þramm- aði kæruleisislega inn í herberg- ið. — Hún sneri á mig, sagði hann reiðilega. — Henni seinkaði Stigman. Hún fékk annað um að hugsa. — Það hefur eitthvað tafið hana, sagði Stigman hlæjandi. — Ég verð að gefa þér mín beztu meðmæli sem snilling í að fást með reipi, sagði prinsinn frá Gamla Heidelberg hrokafullur. — Hvern fjandann meinarðu? ... ég hélt að hann gæti ekki einu sinni gengið. — Hann hefur kannske skrið- ið. Og við vitum nákvæmlega hvert. Komið. Hann þrýsti á hnapp og lyftudyrnar opnuðust. Lyftan stanzaði við hennar hæð. Julie æpti: — Morðingjar. Noessler og Stigman hlógu glaðlega. — Það er enginn hér, sem getur heyrt til þín, mín kæra Julie, sagði Stigman. Herbergi hennar var hinummegin við hornið og hún tók að tala með hárri, gjallandi rödd, sagði hvað sem henni datt í hug, aðallega til þess að Paul heyrði til henn- ar og gæti forðað sér, ef hann hefði ekki alveg tapað meðvitund — ef hann var ennþá lifandi. — Þér gerið ykkur mikið ó- mak. Og þér þarna, þér sem þóttust vera Red. Þér hafið sann- arlega lent á rangri hillu. Þetta var meistaraleg tjáning á hlut- verki yðar. Þér hefðuð svo sami- arlega átt að verða leikari. Stigman rétti dálítið úr sér. Þótt ótrúlegt mætti virðast, hafði hún hitt á að örva hégómagirnd hans. —■ Og hver hefur sagt, að ég sé það ekki? spurði hann. — Og þér, herra Noessler æpti hún. — Jafnvel þótt þér séuð morðingi, lostafullur morðingi, þá eruð þér að minnsta kost fjandanum snjallari. — Ég þakka yður fyrir, Mad- ame. En ég er enginn lostafull- ur morðingi. Það tek ég yður illa upp, Madame. Það var ekki fall- ega sagt. — Hvort sem þér viljið trúa VIKAN U- tfeL 4Q

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.