Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 6
Fæst allt gegn afborgunum, sendum
um land allt.
Bólstrun
Haröar
Péturssonar
LAUGAVEG 58
SÍMI 13896
Fermingargjöfin
Kommóða, skrifborð, snjrrtiborð. —
Allt sami hluturinn.
Skatthol m/ 6 skúffum, skrifborð,
snyrtiborð. Skrifborðsstóll.
Saumaborð m/ 2 skúffum, bakkahólf
á hjólum.
Peugeot
PEUGEOT VERKSMIÐJURNAR éru elztu bifreiðaframleiðendur í heimin-
um. Fyrsta bílinn byggðu þeir órið 1888, síðan hefur framleiðslan eflzt
með hverju órinu sem liður og það eru sjólfsagt beztu meðmælin. Samt
hefur verið mikið skrifað um þessa bíla, svo sem John Bond, ritstjóri
Ameríska bifreiðatímaritsins Road & Track, sem segir að Peugeot sé einn
af sjö bezt byggðu bílum í heiminum. Vikan skrifaði ó siðast liðnu ári
mjög vel um þessa bíla.
Allar upplýsingar erum við fúsir að veital
Haffraffell li.ff.
Brautarholti 22 — Símar 22255 og 34560.
SÁLARLÍF FISKSALA.
Kæra Vika.
Þú ert nú oft svo skilningsrík
á mannlegt sálarlíf — geturðu
útskýrt fyrir mér, af hverju það
er stéttareinkenni á fisksölum
að vera svona voðalega skap-
vondir. Þeir hafa yfirleitt - allt á
hornum sér, ef maður spyr hvort
þeir hafi ekki eitthvað sem þeir
eiga ekki til, þá rjúka þeir strax
upp á háa sé. Einn sem ég verzla
mikið við vill helzt fá að ráða
því hvað maður kaupir mikinn
fisk, ef ég t.d. bið um ýsu fyrir
12 krónur þá slengir hann einni
í dallinn og segir „þessi er fyrir
18 krónur, ég get ekki verið að
rífast um eina eða tvær krónur
þú verður bara að taka þessa“.
En þetta eru bara nokkrar krónur
extra og meira að segja fiskur
ofan í eina tvo menn sem ég verð
svo bara að henda. Og ef ég segi
nei, ég vilji ekki svona stóra ýsu,
verður hann bara alveg fox. Og
annar sem ég spurði hvort hann
ætti ekki smálúðu, hann slengdi
fyrir mig stykki af lúðu sém hef-
ur verið minnsta kosti svona
hálfur fermetri á bakið. Ég sagði
að þetta væri ekki smálúða. Þá
sagði hann: „Ég veit ekki hvað
þið viljið þá kalla smálúðu. Það
er ýmist í ökkla eða klof, þið
eruð aldrei ánægðar með það
sem er til.“
Segðu mér nú Vika mín, hvern-
ig stendur á þessu með blessaða
fisksalana, sem eru orðnir grettir
af fýlu, og er ekki einhver geð-
vernd til að hjálpa þeim?
Tóta á tánum.
Svona geðslag er yfirleitt ein-
kenni á þeim sem lifa meirihluta
ævi sinnar í sjó og slori. Þeir
fá smám saman kalt blóð eins
og fiskarnir. Það má kannski
segja, að það sé ekki sérlega upp-
örvandi að afgreiða morgunillar
frúr, kannski af léttasta skeiði
og ærið vandfýsnar, en þeir ættu
þá að velja sér annað starf —
en líklega er leitun á öðru starfi
sem veitir geðillskunni meiri út-
rás.
STELPA EÐA HÁR
Kæri Póstur!
Ég er 16 ára og er nýbyrjaður
að vera með stelpu, en hún er
töluvert eldri en ég og mjög stillt
stelpa. Þar sem ég hef mjög mik-
inn áhuga á Bítlunum og hef
þess vegna Bítla-hár er ég mjög
svekktur út af því að hún skuli
ekki hafa áhuga á þeim, og vill
að ég láti klippa mig. Er ég mjög
hrifinn af stelpunni og vil ekki
með nokkru móti missa hana né
hárið. Hvað á ég að gera?
Svo langar mig til að spyrja
þig hvort Mannfred Mann komi
til íslands bráðlega. Og hvað
heldur þú að miðinn mundi
kosta?
Freddy.
P.s. Getur þú sagt mér hvað
Gregory Peck er gamall.
Hér er mikill vandi á höndum
eins og ævinlega þegar menn
vilja öllu halda og engu fórna.
Þetta er fyrsta tilfellið sem við
þekkjum af þessu tagi og því
höfum við enga viðmiðun í dómi
okkar. En nú nýlega var hér
stödd brezk bítlahljómsveit sem
hét Dinglandi Bláar Gallabuxur
og í einu dagblaðanna var greini-
lega fram tekið, að meðlimir
hennar hefðu verið vandlega
klipptir en greitt fram í stað-
inn. Okkur dettur í hug hvort
þetta er ekki einmitt sá gullni
meðalvegur, sem gilda myndi í
tilfelli bréfritara, en annars er
þetta algert matsatriði.
P.s. Svona nokkurn veginn 48
ára.
NÝYRÐIN ÞVÆLAST FYRIR
Kæra Vika mig langar til að
spyrja þig tveggja spurninga:
Hvað er töff? Og er töff og stæl-
gæi það sama? Þakka þér allt
gott.
Ásgeir Þór.
Eftir skriftinni að dæma ertu
ekki gamall, Ásgeir, og þykir
oss nú nýyrðin tekin að þvælast
fyrir ungu kynslóðinni. Þú spyrð:
Hvað er töff? Það er nánast
enska, skrifað Tough og þýðir
á máli samkvæmt skilgreiningu
orðabókar: Harður, þrautseigur,
fær um að þola harðræði, stífur,
óskemmtilegur, erfiður. Þetta
enska orð hefur átt einstaklega
greiðan inngang í önnur tungu-
mál, t.d. Norðurlandamál (tuff,
töff) og raunar má segja, að það
sé komið inn í íslenzkuna og hef-
ur þar fengið merkinguna harð-
snúinn, einhver sem ekki lætur
sér allt fyrir brjósti brenna, eða
jafnvel ruddafenginn í fram-
komu. „Þetta var ógurlega töff“,
þýðir: Nú komst ég í hann krapp-
an. „Töff kerra“ þýðir bíll með
g VIKAN IX. tbl.