Vikan - 18.03.1965, Blaðsíða 32
C O N T E X
REIKNIVÉLARNAR
fara sigurför um heiminn og vekja alls staðar athygii og aÖdáun fyrir
formfegurÖ, ótrúlegt notagildi, fyllstu gœði og mjög hagstætt verð.
C O N T E X GETUR ALLT
-r leggur saman
— dregur frá
X margfaldar
: deilir
CONTEX ER KOST AGRIPUR
★ formfögur og falleg á litinn * létfur áslátfur ★ hnappar formaðir
fyrir blindandi ásláit + eldfljót samlagr.ingar- og frádráttarvél, sem
jafnframt margfaldar og dei'ir sjálfvirkt * búnaður fyrir endurtekna
margföldun með sömu tölu ★ tekur 10 stafa tölu og gefur 11 stafa út-
komu ★ eins einföld í notkun og hugsast getur — vinur við fyrstu kynni
* jafngóð fyrir hægri og vinstri hönd * íipur og létt, aðeins 3 kg. *
fyrirferðarlítil á borði: L 25,6 — B 20,5 — H 10,0 cm. ★ auðf'uit * kemst
í skjalatösku, en fer ennþá betui í hinni hentugu CONTEX burðartösku *
traust og sterk * 5 ára ábyrgð * örugg varahluta- og viðgerðaþjónusta.
CÚNTEX er REX-ROTARY framleiðsla. Þarf því ekki að eíast um gæð-
in, þar sem
REX-ROTARY
blek- og spritt-
FJÖLRITAR
hand- og rafknúnir
eru löngu landskunnir, enda jafn-
an fyrstir með tæknilegar framfar-
ir og bera af um útlit, hagkvæmni,
gæði og verð. Framleiddir af stærstu
Fjölritaverksmiðjum álfunnar.
REX-ROTARY efni og áhöld til blek- og sprittfjölritunar. ELECTRO-REX
stensla-þjónusta. REX-RECORDER hljóðritar.
SÍMI 12 6 06 - SUÐURGÖTU 10 R E Y K J A V í K
*
II
4
’HUPnar
Stjörnuspáin gildir Trá fimmtudegi til fimmtudags.
þinna.
Ilrútsmerkið (21. mp.rz — 20. apríl):
Piltum þessa merkis er hœtt við að lenda í rysking-
um og orðaskaki sem heppilegast væri þó að kom-
ast hjá. Þú færð sendingu langt að komna og lang-
þráða. Þér mun nýtast tíminn mjög vel til verka
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Það ber nokkuð á neikvæðum eiginleikum þínum
eins og er. Það gæti átt rætur sínar að rekja til ó-
sættar þinnar við ákveðna persónu. Ráðlegast er að
gleyma því er á milli ykkar hefur farið og vita
ekkert af því.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þér hefur gengið illa að halda ákveðið loforð sem
K þú ættir þó að leggja þig fram við að halda. Líkur
eru til að þú verðir að sitja leiðinlegt samkvæmi
eða félagsfund af cinhverju tagi. Heillatala 4. Heilla-
litur rauður.
Krabbamcrkið (22. júní — 23. júlí):
Þú verður fyrir einhverju sérstöku, persónulegu
happi. Þú ferð fremur ógætilega með fjármuni
þína en það kemur ekki að sök eins og er. Þú lendir
í félagsskap mjög skemmtilegs fólks. Heillatala 2
Heillalitur grænn.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Það er nokkur deyfð og drungi yfir öllum þínum
háttum. Þú þarfnast tilbreytingar. Reyndu eitthvað
sem þú hefur aldrei gert áður. Útiíþróttir og ferða-
lög myndu henta þér sérlega vel eins og er. Heilla-
tala 5. Heillalitur blár.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Eitthvað verður til að breyta áformum þínum varð-
andi næstu helgi. Þú átt óvenjumikið frí og tóm-
stundir sem þú skalt nýta vel. Þú hittir persónu
sem gerir þér gramt í geði með tali sínu um vini
þína.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú reynir þig á nýju verkefni sem þér lánast mjög
vel og færðu verðskuldað hrós fyrir hjá yfirboður-
um þínum. Þú skalt haga öllum þínum gerðum vand-
lega. Þú tekur þátt í einhverskonar lagfæringu á
stórum hlut.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Það skiptast á skin og skúrir og þú veizt ekki al-
veg hvar þú ert staddur. Kunningi þinn kemur þér
til hjálpar í mikilvægu máli. Þú kemur í fram-
kvæmd verki sem þig hefur lengi langað til að
koma í kring.
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú hefur unnið sigur sem er mikilsverður fyrir
sjálfan þig. Það stendur mikið til þú ert mjög
niðursokkinn í framkvæmdir mála. Vertu ekki of
bjartsýnn en hugsaðu rökrétt og taktu smáatriðin
með í reikninginn.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú verður mjög upptekin við störf þín heimafyrir.
ítM Þú hefur vanrækt kunningja þína og ert nokkuð
mikið einn, það er þitt að bæta úr því og góður
tími til þess einmitt nú. Heillatala er 7.
Vatnsbcramerkið (21. janúar — 19. fcbrúar):
Þú færð yfir að ráða nokkuð hárri fjárupphæð
og mikið í húfi að þú höndlir rétt. Þú hefur reynzt
nokkuð eigingjarn og laun þess eru að kunningjar
þínir eru ófúsir að rétta þér hjálparhönd.
Fiskamcrkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú er fullur af óþolinmæði og bráðlæti og það
er ekki nema von. Reyndu að drepa tímann í
skemmtilegum félagsskap og þá mun tíminn líða
fljótar. Þú færð skemmtilegar fréttir innan skamms.
<>2 VIKAN 11. tbl.