Vikan

Eksemplar

Vikan - 18.03.1965, Side 5

Vikan - 18.03.1965, Side 5
LITTLE JOE (MIKE LANDON) Hér cru feðgarnir allir samankomnir, Hoss, Little Joe, Adam og Ben. ADAM (PEKNELL ROBERTS) BONANZA IT^INN vinsælasti sjónvarps- \i þáttur I Bandarikjunum — og raunar víða um veröld — er Bonanza, sem öllum íslenzk- um sjónvarpseigendum er vafalaust vel kunnur, því jafnvel hér á landi er hann liklega með vinsælustu þáttunum í sjónvarpssendingum Varnarliðsins á Keflavikurflug- velli. Milljónir manna horfa á þennan þátt i um 50 rikjum um allan heim á hverri viku, Kanada, Brasilíu, Júgóslavíu, E'nglandi, Frakklandi, í Afriku, á Kýpur, á auðnum Saudi Arabiu, í þéttbýlum borgum Japan og í strjábýlinu á suð-vesturströnd Islands. Það er vafalaust að fleiri þekkja Cartwright-feðgana á Pon- derosa býlinu en Hamlet i Krón- borgarkastala. Að vísu sannar það ekki að Shakespeare haíi ekki verið vinsæll á sínum tíma, heldur aðeins það að hann hafði ekki voldugt sjónvarpsfyrirtæki á bak við sig, eins og The National Broadcasting Company í Banda- ríkjunum. Sumir segja að ef Shakespeare hefði lifað í dag, Þá hefði hann vafalaust skrifað fyrir sjónvarpið fyrst og fremst. Bonanza þátturinn hefur notið frábærra vinsælda um allan heim og gengið lengur en flestir aðrir. HOSS (DAN BLOCKER) Þátturinn hefur gengið stanzlaust í sex ár, og Þrír leikaranna hafa undirritað samning um áfram- haldandi leik það sjöunda. Sá fjórði, Pernell Roberts (Adam) er orðinn leiður á leiknum og vill losna sem fyrst og snúa sér að öðrum viðfangsefnum. Ef þýða ætti orðið „bonanza" á íslenzku, mundi maður líklega helzt nota orðið „Gósenland". I raun og veru Þýðir það þann stað og tima, þar sem allt leikur í lyndi og öllum vegnar vel. Aflahrota hjá bátaflotanum okkar er bonanza. Það má líklega vafalaust segja að á Islandi sé bonanza I dag. Bon- gefur þeim heilræði og hjálpar þeim þegar þess þarf með. Hann er réttlátur, heiðarlegur, strangur, sterkur, trúaður, góðhjartaður — og ríkur. Bærinn hans, Ponderosa, er stór og vandaður og jörðin stór og gjöful. Hann á fjölda nautgripa og hesta, þar er skógarhögg og námugröftur, allt eftir þvi hvað við á í hverri mynd og aldrei virð- ist hann peningalaus. Adam er elzti sonurinn, dökk- klæddur, rólegur og ihugull. Hann lætur aldrei leika á sig og er harð- ur í horn að taka ef svo ber undir. Hoss státar af stórum og klunna- legum líkama, og kröftum sem enginn veit takmörk á. En það er barnssál í þessum stóra skrokk, hann er viðkvæmur, hjálpsamur, þolinmóður, trúgjarn og seinn til stórræða. Oftast verður hann fyrir barðinu á hrekkjalómum og lendir í ýmiskonar vandræðum, og fáir geta varizt, brosi þegar hann tek- ur til matar síns. Little Joe (Mike Landon) er litli bróðir, myndarlegur og snögg- ur strákur, fljótur á sér og oftast ástfanginn af einhverri fegurðar- dísinni. Honum leiðist að vera yngstur bræðranna og verður oft móðgaður þegar þeir kalla hann „Jóa litla“. Bonanza þátturinn er tekinn í litum, þótt við hér heima fáum að- eins að sjá hann svartan og hvítan, og sagt er að liturinn í myndunum sé sá besti og fegursti, sem til er á sjónvarpsmyndum. Upphaf þáttarins var árið 1959, en þá hafði stjórn sjónvarpsstöðv- arinnar (NBC) ákveðið að láta báa til einhvern stóran og góðan sjónvarpsþátt í litum — ekki sizt til að auka söluna á litasjónvarps- tækjum, sem fyzártækið framleið- ir. Til að stjórna þessum þætti varð valinn David Dortort, sem hefur stjórnað honum siðan. Þátt- urinn naut ekki mikilla vinsælda í byrjun, en það breyttist fljótlega, og þá ekki sizt vegna þeirrar miklu vandvirkni, sem lögð er í undir- BEN CARTWRIGIIT (LORNE GREENE) IIoss og Littlc Joe gretta sig hvor framan í annan. Ben faðir þelrra horfir á. anza Þýðir velmegun, uppgangs- tími, búsæld. 1 rauninni er þátturinn nokkurs- konar ,,cow-boy“ ævintýri, þó með þeim mismun að hetjan er ekki ein, heldur eru þær fjórar, feðgarn- ir á Ponderosa. Faðrinn, Ben Cart- wright, leikinn af Lorne Green, hefur verið tvígiftur, að minnsta kosti og á þrjá uppkomna syni, Adam (Pernell Roberts), Little Joe (Mike Landon) og Hoss (Dan Blocker). Faðirinn er ímynd hins góða en stranga föður, sem tekur þátt í öllum erfiðleikum sona sinna, .zLzííí búninginn og alla tækni í sam- bandi við myndatökuna. Hver þáttur kostar fyrirtækið um 150 þús. dali (ca. 6,5 millj. ísl. kr.), sem þykir gjafaverð, miðað við hvað þær gefa í aðra hönd. Dortort kaupir handrit og sög- ur af hverjum sem er, ef hann tel- ur sig geta notað það í þáttinn, og hann segir sjálfur að hann hafi gefið fleiri ungum rithöfundum tækifæri til að komast áfram, en nokkur annar sýningarstjóri, sem hann veit um. Framhald á bls. 41. / VXKAN 11. tbL g

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.