Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 25.03.1965, Qupperneq 4

Vikan - 25.03.1965, Qupperneq 4
KÁPUR- KÁPUR * VETRARKÁPUR * VORKÁPUR * REGNKÁPUR * KULDAÚLPUR * FERMINGAR- KÁPUR * HATTAR * HANZKAR * SOKKAR ÁVALLT UNG ^AN^ASItR dag krem Hi-ukkur myndast á daginn. Þær myndast vegna þess, að hörundið fær ekki nægan raka. Daglega verður hörundið að þola veðurbreytingar, regn, vind, sólskin og kulda. Það er því hlutverk dagkremsins að vernda andlitið og hálsinn og mynda holla undirstöðu fyrir það make up, sem hentar hörundinu. LANCASTER dagkrem er til fyrír allar húðgerðir og þér qetið valið um 6 mis munandi liti. ^AN^ASILR £ VIKAN 12. tbl. ÚTSÖLUSTAÐIR. — REYKJAVÍK: Tibrá, Gjafa- og snyrtivörubúðin, Orion, Holts-Apótek, Tjarnar- hárgreiöslustofan. — AKUREYRI: Verzlunin Drifa. PATREKSFIRÐI: Verzl. Ó. ÓNÁKVÆMNI í NÝJU KENNINGUNNI Kæra Vika. Vegna greinar þeirrar sem birtist í Vikunni fyrir skömmu eftir Gísla Halldórsson, verkfræð- ing, langar mig til að nefna nokkur atriði sem mér fannst mishöndluð í þeirri grein. Það sem mér fanhst sárast um er, hve ónákvæmar þær tölur eru sem voru birtar þar um „okkar eigin“ vetrarbraut. Þvermál hennar mun vera um það bil 100.000 ljósár eða ca. 946.080.000.000.000.000 km. og þykkt hennar um mðiju er milli 1/10 og 1/20 af þvermálinu í stað 1/5, (samkvæmt George Gamow, 1962). í henni eru um 40 þúsund milljón einstakar sól- ir eða sólkerfi (í stað 10 þúsund milljón). Einnig má bæta því við að sólkerfi vort snýst einn hring í vetrarbrautinni á um það bil 200 milljón árum, en þar eð vetrarbrautin er að minnsta kosti 5 billjón ára gömul, hefur sólkerfi vort farið um 25 hring- ferðir (mætti þá segja að „heim- ur“ okkar sé 25 sólkerfisára að aldri). En nóg um það. Vildi ég að lokum ræða nokkr- um orðum um kenningu Gísla, sem mér virtist skrýdd þvílíku rósamáli að líklega hafi mörgum þótt nóg um. Það er engu líkara en að höfundur sé að hilma yfir einfaldleika tilgátu sinnar þegar hann með ótrúlegu orðskrúði leggur sig í lima við að lýsa hvaða skilning mætti „e.t.v.“ leggja á „alþýðlegan hátt“ í af- stæðiskenningu Einsteins o.s.frv. Vissulega ber þessi tilgáta um eðli alheimsins skírt vitni um frjálslega hugsun og djarft ímyndunarafl en þó er ekki hægt að segja annað en að hún sé vanhugsuð að mörgu leyti. Tökum t.d. dæmisöguna um sleðamennina A, B og C, sem tákna skulu vaxandi fallhraða vetrarbrautanna að sameigin- legum þyngdarpunkti sínum. Hér stendur jú allt heima sem Gísli segir. Sleðamanni ,,B“ virðist „A“ og „C“ fjarlægjast sig með hraða sem er proportional við vegalengdina til þeirra. En vend- um nú okkar kvæði í kross, þann- ig að við bæturn fjórða sleða- manninum inn í dæmið. Við setjum hann af stað á sama tíma og „B“ (fjarlægðin á milli þeirra skiptir hér auðvitað engu máli). „B“ og „D“ myndi báðum virð- ast sem þeir héldu sömu afstöðu gagnvart hvor öðrum (sem þeir gera) en það er þó staðreynd að allar vetrarbrautir sem við sjá- um í öllum áttum virðast geysast burt frá okkur í alllar áttir. Af þessu sjáum við að vetrarbraut- irnar geta ekki verið að falla að sameiginlegum þyngdarmið- punkti, nema að þær falli í tvær áttir um leið, en satt að segja get ég ómögulega samlagað það eðlisvitund minni. Og finnst mér þá kenningin endast skammt þeg- ar farið er að brjóta hana til mergjar. Vil ég hér ljúka máli mínu og leggja jafnframt fram þá ósk mína að þið gerðuð Vikuna eigu- legri með því að birta fleiri slík- ar greinar lesendum til gagns og gamans. Ronald Ögm. Símonarson. SORGLEGA LÉLEG AFKOMA. Svar til 25 ára húsmóður norð- ur í landi. Okkur fannst bréf þitt svo at- hyglisvert, að við munum síðar birta það í heild sem grein í blað- inu. Þú ert að vonum örg yfir þeim lífskjörum, sem ykkur eru búin: Bóndinn vinnur myrkranna á milli og umgengst þig og börn- in harla lítið. Samt gefur allt þetta strit svo lítið í aðra hönd, að þið hafið aðeins keypt ykkur eitt borð, en engin heimilistæki né yfirleitt annað það, sem nú cr talið sjálfsagt. Þú hefur hvorki fengið þér föt né íarið neitt og kvartar yfir því að vera vina- laus manncskja. Þú varpar fram nokkrum spurningum og í raun- inni er bréfið spurning í einu lagi. Spurning um það, hvers- vegna lífskjör ykkar þurfi að vera svona bágborin. Það vill svo til að ég þekki allvel til sveita- starfa og veit, að þessi vinnu- tími mannsins þíns nær ekki nokkurri átt með þessu búi, sem þú talar um. Annaðhvort er hann svona afskaplega seinvirkur þó hann sé hraustmenni eða þá að hann vinnur sér svona erfitt með skipulagsleysi. Svo er það líka staðreynd, að menn gera alltaf það sem þeir vilja. Maðurinn þinn vill einfaldlega fremur vera úti við að einhverju stússi en inni í bæ lijá ykkur. Og þú þarft ekki að segja mér, að það væri ekki hægt að koma upp dieselrafstöð

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.