Vikan

Tölublað

Vikan - 25.03.1965, Blaðsíða 32

Vikan - 25.03.1965, Blaðsíða 32
)Upn3P Stjörnuspáin gildir frá fimmtudcgl til fimmtudags. HÚSMÆDUR! Í001F eldhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú kemur í framkvæmd verki sem lengi hefur orðið að þola bið. Þetta er mikill léttir fyrir þig og fjölskyldu þína. Allt sem að heimilislífinu snýr er ánægjuríkt og hamingjusamt. Heillalitur er grátt. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það er í mörgu að snúast og margt uppi á ten- ingnum. Það skeður ýmislegt sem skemmtilegt má kallast en eitthvað verður til að seinka fram- kvæmdum í bili. Amor er hliðhollur þeim sem fæddir eru milli 11. og 20. maí. Tvíburamorkið (22. maí — 21. júní): Það er nokkuð óljóst enn, hvað þú munt gera í sambandi við atvinnumál þín en líklegt er að einhver utanaðkomandi aðili spili brátt inn í mál- ið. Þér væri hollt að fara í ferðalag út undir bert loft. Krabbamarkið (22. júní — 23. júlí): Þér gefst gott tækifæri til að reyna hæfileikana. Þú kemur ekki á réttan hátt fram við einn vin þinn, þú dæmir hann of hart. Varastu allar ýf- ingar og ósamlyndi, dragðu þig fremur í hlé. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Umhverfi þitt er ekki alltaf sem vistlegast en þú gætir bætt úr því sjálfur með lítilli fyrirhöfn. Mikið verður um ungt fólk kringum þig. Þú kynn- ist persónu sem færir þig skrefi nær takmarkinu. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. sieptember): Eitthvað verður til að koma þér úr jafnvægi og jafnvel til að örvænta. Þú ættir að leita til gam- allar konu sem er þér náskyld með vandræði þín. Þú munt eiga gott með að leysa ákveðna deilu. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú færð heimsókn sem þú hefur aldrei verið heiðraður með fyrr. Vinur þinn leitar ráða hjá þér varðandi sameiginlegt áhugamál. Þú átt góða samvinnu við eldri mann, hún stendur 1 sam- bandi við viðskipti. ELDHÚS RÚLLAN ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú gerir góða verzlun og gætir gert betri ef fjár- hagurinn væri ekki eins aumur og raun ber vitni um. Þú lendir í boði sem samanstendur af fólki sem þú fellur ekki saman við. Á laugardag færðu góða heimsókn. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú hrindir nú í framkvæmd verki sem þú hefur lengi dregið á langinn. Þér verður ótrúlega mikill léttir að því. Einn fjölskyldumeðlimurinn er nokk- uð argur við þig, en þolinmæðin þrautir vinnur allar. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú hefur lengi trassað að losa þig við ákveðin skyldustörf ef það eru þau sem eru orsökin að skapvonzku þinni, skaltu skipta um starf. Þú færð dugnaðarkast heimafyrir og kemur miklu í verk. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú átt stefnumót við persónu sem þér verður síð- ar meir mikill hagnaður í að hafa kynnzt. Þú færð nasasjón að starfi gerólíku því sem þú stundar. Varastu allt óhóf á hverju sviði sem er. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Ýmislegt óvænt kemur fyrir á daginn og er það mir að mestu leyti sök gleymsku þinnar. Fyrir þá ástföngnu eru flestir dagar heillavænlegir en þó ætti enginn að vera of bráðlátur hvað varðar stóráætlanir. 22 VIKAN 12. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.