Vikan - 25.03.1965, Síða 32
)Upn3P
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudcgl til fimmtudags.
HÚSMÆDUR!
Í001F eldhúsrúllan er fram-
leidd sérstaklega fyrir notkun
í eldhúsum ykkar og hjálpar
ykkur viö dagleg störf.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú kemur í framkvæmd verki sem lengi hefur
orðið að þola bið. Þetta er mikill léttir fyrir þig
og fjölskyldu þína. Allt sem að heimilislífinu snýr
er ánægjuríkt og hamingjusamt. Heillalitur er
grátt.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Það er í mörgu að snúast og margt uppi á ten-
ingnum. Það skeður ýmislegt sem skemmtilegt
má kallast en eitthvað verður til að seinka fram-
kvæmdum í bili. Amor er hliðhollur þeim sem
fæddir eru milli 11. og 20. maí.
Tvíburamorkið (22. maí — 21. júní):
Það er nokkuð óljóst enn, hvað þú munt gera í
sambandi við atvinnumál þín en líklegt er að
einhver utanaðkomandi aðili spili brátt inn í mál-
ið. Þér væri hollt að fara í ferðalag út undir
bert loft.
Krabbamarkið (22. júní — 23. júlí):
Þér gefst gott tækifæri til að reyna hæfileikana.
Þú kemur ekki á réttan hátt fram við einn vin
þinn, þú dæmir hann of hart. Varastu allar ýf-
ingar og ósamlyndi, dragðu þig fremur í hlé.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Umhverfi þitt er ekki alltaf sem vistlegast en þú
gætir bætt úr því sjálfur með lítilli fyrirhöfn.
Mikið verður um ungt fólk kringum þig. Þú kynn-
ist persónu sem færir þig skrefi nær takmarkinu.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. sieptember):
Eitthvað verður til að koma þér úr jafnvægi og
jafnvel til að örvænta. Þú ættir að leita til gam-
allar konu sem er þér náskyld með vandræði þín.
Þú munt eiga gott með að leysa ákveðna deilu.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú færð heimsókn sem þú hefur aldrei verið
heiðraður með fyrr. Vinur þinn leitar ráða hjá
þér varðandi sameiginlegt áhugamál. Þú átt góða
samvinnu við eldri mann, hún stendur 1 sam-
bandi við viðskipti.
ELDHÚS
RÚLLAN
ELDHUSRULLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember);
Þú gerir góða verzlun og gætir gert betri ef fjár-
hagurinn væri ekki eins aumur og raun ber vitni
um. Þú lendir í boði sem samanstendur af fólki
sem þú fellur ekki saman við. Á laugardag færðu
góða heimsókn.
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Þú hrindir nú í framkvæmd verki sem þú hefur
lengi dregið á langinn. Þér verður ótrúlega mikill
léttir að því. Einn fjölskyldumeðlimurinn er nokk-
uð argur við þig, en þolinmæðin þrautir vinnur
allar.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú hefur lengi trassað að losa þig við ákveðin
skyldustörf ef það eru þau sem eru orsökin að
skapvonzku þinni, skaltu skipta um starf. Þú færð
dugnaðarkast heimafyrir og kemur miklu í verk.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú átt stefnumót við persónu sem þér verður síð-
ar meir mikill hagnaður í að hafa kynnzt. Þú færð
nasasjón að starfi gerólíku því sem þú stundar.
Varastu allt óhóf á hverju sviði sem er.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Ýmislegt óvænt kemur fyrir á daginn og er það
mir að mestu leyti sök gleymsku þinnar. Fyrir þá
ástföngnu eru flestir dagar heillavænlegir en þó
ætti enginn að vera of bráðlátur hvað varðar
stóráætlanir.
22 VIKAN 12. tbl.