Vikan

Útgáva

Vikan - 25.03.1965, Síða 18

Vikan - 25.03.1965, Síða 18
Læknaskýrslan um Kennedy-morðiö var brennd Hugh Trevor-Roper, sem er þekktur brezkur vísindamaður og pró- fessor í nýsögu við Oxford, hefur nú gengið í lið með þeim mörgu vafamönnum, sem hafa álitið að eitthvað skuggalegt sé í sambandi við morðið á Kennedy forseta. — og i sambandi við skýrslu Warren- nefndarinnar. Það er vart hægt að skýrgreina umsögn hans sem ósk um að hafa sérstök áhrif á almenningsálitið, né sem eigin auglýsingu. Það var einmitt Trevor-Roper, sem rannsakaði dauða Hitlers, sam- kvæmt ósk Brezku upplýsingaþjónustunnar, og var síðan höfundur að skýrslunni, sem kölluð var „Síðustu dagar Hitlers". Nú hefur Trevor-Roper ritað grein í enska stórblaðið Sunday Times, þar sem hann ræðst heiftarlega á Warren nefndina, sem átti að rann- saka morð Kennedy. Hann vísar ekki öllum niðurstöðum á bug að vísu, en álítur að trúgirni og gagnrýnisvöntun nefndarinnar á öllum sönnunargögnum sé furðuleg, og sú staðreynd að nefndin lét undir höfuð leggjast að beina áríðandi og þýðingarmiklum spurningum til FBI og Dallaslögreglunar, gerir starf hennar að hálfkáki. Á bak við reykjarmökk af óviðkomandi staðreyndum, blasir enn við það verk- efni óleyst, að sanna að Lee Oswald hafi framið verknaðinn, segir pró- fessorinn. Trevor-Roper finnst það t. d. vægast sagt einkennilegt að þegar lög- reglan yfirheyrði Oswald í tólf tima samfleytt, hélt hún enga dagbók, en það er jafnan gert við ómerkilegustu smáglæpi. Getur það verið að skýrslur um yfirheyrslurnar hafi verið eyðilagðar? spyr hann. Á svip- aðan hátt hvarf læknaskýrslan, þar sem skýrt var frá því að skotin hefðu komið framan á forsetann. Það var dr. Jones Humes við Park- landssjúkrahúsið, sem brenndi henni. Trevor-Roper bendir einnig á það, að þrátt fyrir langar yfirheyrslur hafi Jack Ruby ávalt neitað því að skýra frá því hvernig hann hafi kornizt inn í lögreglukjallarann, þar sem hann skaut Oswald. Fyrst „mörgum dögum“ síðar mundu þrír lögregluþjónar eftir þvi að þeir höfðu séð hann fara inn I kjallarann um hliðardyr. Ruby féllst strax á þessa skýringu og hefur haldið fast við hana síðan. Hörðust verður gagnrýnin hjá Trevor-Roper i sambandi við aðal- vitni nefndarinnar, sjónarvottinn Howard Brennan. Hann segist hafa séð Oswald skjóta út um glugga á sjöttu hæð og skýrði lögreglunni frá þessu nokkrum mínútum síðar. Það var lýsing Brennans á morðingj- anum, sem varð til þess að hann var tekinn höndum. Trevor-Roper segir að lýsingin hafi verið allt of ófullkomin til þess að þekkja manninn og alls ekki nógu skýr til þess að lögreglumaðurinn J.D. Tippit hefði þekkt Oswald af henni, elt hann og reynt að taka hann fastan. Gátan verður enn þokukenndari, segir Trevor-Roper, þegar það kemur í ljós, að lögreglan lét alls ekki rannsaka herbergið þar sem Oswald var á sjöttu hæð, fyrr en nokkru síðar að húsið var allt rann- sakað. Hvernig stendur á þvi, segir prófessorinn, að lögreglan lét elta „manninn i glugganum", samkvæmt lýsingu, en lét það vera að skoða herbergið þar sem hann stóð með byssuna? Johnson var mað Bandaríska vikublaðið TIME, sem gefið er út í um 2,5 miljónum ein- taka, velur ó hverju óri „Mann órs- ins". Það kom ekki alveg á óvart að maður ársins 1964 var Lyndon B. Johnson, enda hefur TIME ávalt haft dálítinn veikleika fyrir forset- um Bandaríkianna. Ástæðurnar fyrir vali Johnsons eru gefnar upp — með örlitlum kýmniblæ — þannig: „Allt frá þeim nóvemberdegi að hann upplýsti að hann héldi á kyndli „sömu stefnu og áður hafði verið framkvæmd", þar til þann nóvemberdag að hann vann stærsta kosningasigur í sög- unni, var það hans ár." Það er álitin eftirsóttur heiður að lenda á forsíðu TIME, sem mað- Það er álitinn mikill heiður að komast á forsíðu TIMES, sem „Maður ársins" Andantcggír d biðilsbaxain Endur eru uppáhaldsdýr Reyk- vikinga, ef dæma má eftir þeim vinsældum, sem þær hljóta á tjörn- inni hjá okkur. En endur kunna því miður ekki að tala, og það hefur valdið margskonar mis- skilningi milli þeirra og manna — eða annarra dýra, sem kunna held- ur ekki að tala, eins og t. d. þýzku svananna forðum — svo að það væri kannske ekki úr vegi að við reyndum að skýra málið dökunar- lítið. Jú, endur hreyfa sig á mismun- andi máta. Stundum stinga þær sér á kaf til að ná í fæðu. Stundum stinga þær sér á kaf, bara til að baða sig. Stundum stinga þær sér af eintómri hræðslu við blessuð börnin, sem eru að „grýta" þær með brauðmolum. En svo eru aðrar hreyfingar, sem gaman væri að sjá og þekkja. Þær hreyfingar eru aðeins fram- kvæmdar á þeim tíma, þegar stegg- urinn og öndin eru að draga sig saman, og trúið þið mér: Það eru alveg sérstakar hreyfingar. Og það er ekki sama hver öndin er — hvað hún heitir, eða af hvaða stofni hún er. Það er t. d. algjör- lega tilgangslaust fyrir stokkand- arstegg að „stíga í vænginn" við sefönd. Og húsöndin hneigist aldr- ei að toppönd. Það er aldeilis úti- lokað. Náttúran hefur séð svo um. Og það er ekki bara vegna þess að toppöndin er öðruvísi í útliti en t. d. seföndin. Nei, nei. Það er vegna þess að toppöndin hagar Jg VIKAN 12, tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.