Vikan - 25.03.1965, Qupperneq 21
f
M ÚT AÐ SKEMMTA SÉR. ÞAÐ VAR AUÐVITAÐ EKKI BARA ÞESS VEGNA.
þeim að vera inni sagði maðurinn
ég þarf að tala við þennan Iitla
karl. Hann tók Bróa ó hné sér og
þeir virtu hvor annan fyrir sér, ann-
ar tortrygginn og hólfhræddur hinn
dólitið varasamur líka. Brói só
penna í vasa hans og þegar hann
var búinn að nó honum virtist hann
ekkert hafa ó móti því að dvelja
þarna lengur. En mamma sagði mér
að fara út og ég só ó svip hennar
að nú var hún ókveðin svo ég tók
Bróa og flýtti mér með hann út-
fyrir. Mér hafði dottið nokkuð í hug.
Stóri stofuglugginn var opinn og
ef ég væri við hann mundi ég heyra
allt sem þau segðu.
Það var kominn ilmur úr jörð-
inni, þó ekki væri farið að grænka
ennþó, og ég var að vona að
mamma færi í heimsókn til afa í
dag, hann bjó í litlum kofa úti á
nesi og átti bát sem angaði af tjöru-
lykt og net sem voru með þara-
flyksum !. Hann veiddi rauðmaga
á vorin og þá var gaman að koma
til hans þegar hann var að koma
af sjó.
Glugginn var opinn og ég heyrði
vel hvað talað var í stofunni.
„Og hversvegna hefur þér allt í
einu snúizt hugur, þú taldir þetta
hlægilega fjarstæðu fyrir hálfum
mánuði" sagði maðurinn. Ég vissi
nú að hann hét Ragnar. „Er það
ekki sama", sagði mamma, „þá
sagðir þú, að þú vildir fá mig
hvernig sem ég væri og hvað
marga krakka sem ég ætti, ég hef
ekkert versnað síðan og krökkunum
hefur ekkert fjölgað".
Hann þagði góða stund og ég
fann lykt af reyktókbakinu í píp-
unni hans berast út um gluggann.
„Segðu mér bara ástæðuna fyrir
þessu", sagði hann loks, „ég veit
að hún er einhver. Þú manst hvað
þú sagðir, ég var nógu fallegur,
þér þótti ansans ári vænt um mig
en ég er bóndi og vildi ekki hætta
því, og ætla ekki að hætta því og
þú sagðist heldur vilja deyja en
að fara að búa uppí sveit".
„Já," sagði mamma, „þú manst
fjári vel það sem ég hef bullað.
Enn vil ég giftast þér og fjárann
kemur þér ástæðan við, ég meira
að segja er að biðja þig um að
giftast mér en þá vilt þú það ekki,
þið eruð þó alltaf sjálfum ykkur
líkir þessir karlmenn".
Hún hló hátt og ég var alveg
hissa á að hún skyldi hlægja og á
því að hún skyldi vera að biðja
manninn um að giftast sér, ég hafði
alltaf heyrt að karlmenn bæðu kon-
ur um slíkt og hversvegna var mað-
urinn ekki feginn að fá svona
fallega konu?
Ég truflaðist við að einhverjir
komu upp gangstíginn. Mamma
fór fram þegar bjallan hringdi og
fólkið ruddist inn í stofu. Ég heyrði
konu segja að hún væri komin til
að sækja börnin. Ég fann magann
í mér herpast saman af kvíða og
ég var að hugsa um að taka Bróa
litla og flýja með hann eitthvað
burt og fela mig þar til fólkið væri
farið, þegar ég heyrði manninn
spyrja rólega, hvað væri um að
vera. Konan útskýrði fyrir honum,
að mamma væri ekki fær um að
sjá um börn fyrst hún væri svona
lengi úti á næturna. Er ég kannski
ekki fær um það heldur spurði mað-
urinn og rödd hans var róleg og
einhvernveginn fannst mér, þegar
ég heyrði hann tala, að það væri
hann sem væri dómarinn yfir hin-
um en ekki öfugt eins og það hefði
verið, þegar þau voru að tala við
mömmu. „Hvað meinið þér," spurði
konan, „ætlið þér að taka börnin?"
„Það kemur af sjálfu sér, býst ég
við," sagði hann, „þegar ég giftist
móðir þeirra.
Fólkið fór og ég gat ekki stillt
mig um að hía á kellinguna þar
sem ég stóð við húshornið.
Ég fór inn og þegar ég kom í
dyrnar sá ég að þau horfðu hvort á
annað, mamma og maðurinn og
hann sagði: „Svona fórstu að þvi,"
en hann var ekkert reiður, hann var
eins á svipinn eins og strákarnir
þegar þeir eru að striða einhverj-
um.
Maðurin fór eftir hádegið, hann
borðaði hjá okkur og ég var hreyk-
in af mömmu þegar hún var að
bera inn matinn, fyrir hvað hún bjó
til góðan mat og hvað allt var fal-
legt á borðinu. Maðurin var líká
hrifinn af mömmu, ég sá það á hon-
um, þegar hann horfði á hana og
mér þótti sem við ættum eitthvað
sameiginlegt, jafnvel þótti mér orð-
ið svolítið vænt um hann fyrir það,
að við sáum bæði að mamma var
betri og fallegri en aðrar konur.
Og þegar hann var farinn varð
allt eins og áður og ég átti erfitt
með að trúa því, að við þyrftum
að fara úr þessari vistlegu íbúð,
þar sem við höfðum svo lengi átt
heima og flytja í eitthvert ókunn-
ugt umhverfi, þar sem við ættum
ekki heima og mamma yrði kann-
ske aldrei ánægð. Vestursólin skein
inn um gluggann, hún var lágt á
lofti og rósrauður bjarminn fyllti
herbergið. Mamma og Brói sváfu
og ég var að sauma á dúkkurnar
mínar og segja þeim að bráðum
færum við uppí sveit. „Það eru
sjálfsagt beljur þar", sagði ég, „þið
þurfið ekkert að vera hræddar við
þær þó þær hafi horn og séu stór-
ar, ég skal passa ykkur".
Við fluttum næsta laugardag.
Ragnar kom á jeppanum og
mamma var búin að ganga frá öllu
dótinu okkar. Sumt fór með stórum
bíl en annað, sem var brothætt og
mömmu var sérlega annt um, tók-
um við með okkur. Hún var eins og
stelpa ( síðbuxum og útprjónaðri
peysu og ég sá, að Ragnar virti
hana fyrir sér í laumi. Ég var líka
í síðbuxum og alveg eins peysu
eins og mamma. Hún hafði prjónað
þær báðar, og Brói litli var feitur
og pattaralegur í bláum útifötum.
Mér þótti verst að þurfa að fara frá
búinu mínu. Það stóð norðan
við húsvegginn og það var heil-
mikið af fallegum glerbrotum þar
og meira að segja einn bolli. Ég gaf
Kötu það áður en ég fór og sagði
henni að skila því ef ég kæmi aft-
ur. Mér fannst það vissara, hver
vissi nema við kæmum aftur.
Það var gaman að ferðast í bfl.
Ég hafði ekki oft gert það. Við
ókum allan daginn og það var
alltaf eitthvað nýtt að sjá, ég þreytt-
ist ekki á að horfa út um gluggana.
Mamma hélt á Bróa, hann svaf
öðru hvoru og virtist ekkert upp-
næmur fyrir ferðalaginu.
Ragnar keypti okkur gos í búð
við veginn og svo þegar komið var
kvöld námum við loks staðar á
hlaði frammi fyrir stóru og gamal-
dags húsi með kvistgluggum og fá-
einum stórum birkitrjám við inn-
ganginn. Mamma sagði ekkert en
sat kyrr, þó að bíllinn væri stopp-
aður og Ragnar væri farinn að bera
inn dótið, það var eins og hún væri
allt í einu orðin svo þreytt, að hún
gæti ekki hreyft sig. Ég stökk út og
skoðaði umhverfið. Þarna voru
nokkur hús rétt hjá íbúðarhúsinu
sem voru eflaust skepnuhús og það
var vond lykt í kring um þau, og
þarna stóð traktor og allskonar vél-
ar. Stór hundur kom fyrir húshornið
og gelti þegar hann sá mig. Ég
hljóp lafhrædd til mömmu. Mamma
var loks komin út úr bílnum og stóð
með Bróa á handleggnum og horfði
á húsið hugsi. Ragnar kom og tók
hann af henni og þau gengu inn f
forstofuna. Ég elti. Þetta var þá eins
og önnur hús að innan, þótt það
liti gamaldags út að utan. Eldhúsið
var hlýtt og vistlegt, þótt það væri
stórt og ekki neitt líkt nýtízku eld-
húsinu, sem mamma hafði haft.
Köttur kom inn og teygði sig svo
skrokkur hans virtist lengjast um
helming, geispaði og sleikti útum.
Ég færði mig varlega nær honum
hálf smeik við hann og heyrði að
mamma og Ragnar voru að útbúa
mat í sameiningu. Mamma virtist
aftur vera komin í sitt venjulega
skap og þá leið mér líka vel, eða
eins vel og manni getur liðið í
ókunnu umhverfi þar sem allt var
öðruvísi en það sem maður átti að
venjast. Við vorum búin að borða,
Brói var sofnaður í fanginu á
mömmu og kötturinn malaði ánægð-
ur undir eldavélinni og lygndi aug-
unum.
Við skulum koma honum í rúmið,
sagði Ragnar og þau gengu gegnum
ganginn inn í lítið herbergi þar sem
rúmið hans Bróa stóð uppbúið og
mitt við hliðina á því. Mamma
hjálpaði mér í rúmið og sagði, að
ég væri dugleg eins og alltaf og ef
ég vaknaði í fyrramálið gæti ég
fengið að sjá þegar kýrnar væru
mjólkaðar.
Mér fannst það dálítið skrítið, að
mamma skyldi fara inn í svefnher-
bergið hans Ragnars og ganga um
á náttkjólnum eins og heima og þó
var þetta svo þunnur náttkjóll að
það sást vel í gegnum hann að hún
var í svörtum brjóstahaldara og
svörtum buxum. Hún virtist ekkert
feimin og tók upp snyrtivörurnar
sínar og hreinsaði af sér meikið
með einhverju hvítu í glasi eins og
hún var vön. Svo bar hún nætur-
krem á andlitið. Ragnar sat og
reykti, hann hélt á dagblaði, sem
hann hafði víst ætlað að lesa í, en
hann horfði aðeins á mömmu og
hló að henni.
— Þú hættir þessu nú, þegar þú
ert orðin sveitakona, sagði hann,
þá þværðu þér með vatni og sápu
eins og hver önnur vitiborin mann-
eskja og kinnarnar þínar verða
rjóðar af útiveru í sumar; þá hætt-
irðu að klína framan í þig þessum
óþverra.
En ég hafði samt á tilfinningunni
að hann hefði gaman af, að mamma
snyrti sig svona vel og hann kærði
sig ekkert um að hún hætti því;
hann var bara að stríða henni og
hún virtist kunna því vel, því hún
hló ánægjulega meðan hún burstaði
á sér sítt hárið sem féll niður á ber-
ar axlir henni og fór vel við fölblá-
an náttkjólinn.
Það var bókahilla í svefnherberg-
inu hans Ragnars, full af bókum og
ýmsum hlutum skornum út í tré og
það hékk byssa á veggnum.
— Ég fer ekki að sofa fyrr en
þessi byssa er komin burt úr her-
berginu, sagði mamma, og Ragnar
hló.
— Ég ætla ekki að þola konuríki,
sagði hann og virtist ekki ætla að
gera eins og mamma bað.
— Ég fer þá ekki uppí rúm, sagði
Framhald á bls. 31.
VIKAN 12. tbl. 2J