Vikan

Eksemplar

Vikan - 20.05.1965, Side 28

Vikan - 20.05.1965, Side 28
Silver Gillette ierblaðí^semi Þ31^ Jr’l j rniklw lendir iiaunvmile&gj ,?/pífi truoi en önnur | endistof I l rakblöfri I endist; M M m)r$ 'Wzk -ffP1 Já-q^mykt| O^pað"' J>ess endíst t s£fur larté o^endist £ ódýrasta I lirck nraksturinn Mlfillll Silver Gillette-þægilegur rakstur með rakblaði, sem endist og endist Skriftastóllinn Framhald af bls. 8. Um leið og ég hafði staðnæmzt á blettinum, sem hann benti mér á, heyrði ég undurfagra rödd — guð má vita, hver hana átti — skrifta sínar hjartans sorgir og smáyfirsjónir fyrir prestinum. Hún átti mann, sem hún sagðist elska — já, hún elskaði hann og hann elskaði hana og var góður við hana. Og hann leyfði henni að ráða því, sem henni sýndist. 1 stuttu máli sagt, gerði hÚ3 manni sínum góð skil, guð náði 28 VIKAN 20. tbl. mig — en hún elskaði nú líka annan. Hún nefndi ekki nafn hans — annars hefði verið gam- an að vita það. Sjálfsagt er það einhver af hinum glæsilegu ungu mönnum hér í bænum. Þennan hinn elskaði hún — hún gat ekki annað, sagði þetta veslings barn. Og henni fannst líka, að í hjarta sínu hefði hún nóg rúm fyrir þá báða. Hann var svo göf- ugur, þessi hinn, svo fallegur og elskulegur, og hann tilbað hana — nei, hún gat ekki neitað hon- um um neitt. Og auk þess fyrst eiginmaðurinn vissi ekkert um þetta, þá gat það ekki valdið honum neinum sársauka. Og jafnvel þótt hann kæmist að þessu, og ef ást hans væri sönn, þá hlyti hann samt að fyrir- gefa henni og halda áfram að elska hana o.s.frv. o.s.frv. Hún hafði nú, sagði hún, lofað hin- um, að þau skyldu hittast snemma þennan morgun — ein- mitt núna hlýtur stefnumótið að standa yfir. Og til þess að ofvæn- ið minnlcaði ætlaði hún nú að játa allt fyrir honum, því að þá áleit hún — heyrirðu það — þá áleit hún, að þetta mundi líða frá. Og að lokum bað hún prest- inn að gera svo vel að gefa sér fyrirfram syndakvittun, það væri svo þægilegt — og hún fékk hana. Hvað sýnist þér, sál min, um allt þetta,“ sagði mark- greifinn og reis um leið upp úr sínu hræðilega sæti, sem nú var orðið með öllu hreyfingarlaust. „Nei,“ bætti hann við glettn- islega. „Okkar góðu prestar eru allt of eftirgefanlegir — svona yfirleitt — en gamli Don Gre- gorio okkar mundi nú hafa sagt þér betur til syndanna, ef þú — ef þú,“ hélt hann áfram með- an hann lagði púðann aftur á sinn stað og lyfti upp teppinu. Þar lá húsameistarinn, Giulio Balzetti. Hann var hættur að anda. „Hefur þú nýlega farið i skriftastólinn, Láretta mín,“ spurði markgreifinn. „Nei,“ svaraði unga frúin með hálfkæfðri röddu. „Vel á minnzt,“ sagði mark- greifinn og breiddi um leið tepp- ið yfir hið bláa og afmyndaða andlit. „Við verðum auðvitað samferða á kirkjuhátiðina i dag. Skrúðgangan byrjar stundvís- lega á hádegi. Þá læt ég spenna fyrir. Þetta megum við ekki van- rækja.“ Svo gelck hann inn i bún- ingsherbergið. Unga konan sat í stórum hægindastól. Þykku, svörtu flétturnar héngu niður til beggja hliða. Hún var náföl i andliti og lét hendurnar hvíla á hnjánum. „Hvað er að þér, elsku barn?“ sagði markgreifinn í sínum blið- asta rómi. „Þú hefur farið of snemma á fætur, góða min. Og svo ertu að strita við að klæða þig hjálparlaust. Hvar er her- bergisþernan? Nú skal ég hringja." Hann kippti í bjöllu- strenginn, gekk til konu sinnar, kyssti hana á ennið og gekk síða út. Um hádegið, þegar allar klukkur bæjarins hljómuðu há- tiðlega, stóð hinn gullni skraut- vagn markgreifans í portinu. Fyrir hann voru spenntir fjórir apalgráir gæðingar, skreyttir gyltum skúfum, hópur af skraut- búnum sveinum, hlaupurum, þjónum og veiðimönnum stóð og beið eftir tignarfólkinu. Það leið ekki heldur á löngu þangað til markgreifinn birtist í glæsilegum hirðklæðum með stjörnu á brjósti og með hatt- inn í annarri hendinni, en með hinni leiddi hann virðulega hina ungu og yndislegu, en ná- fölu konu sína niður breiðu mar- maratröppurnar. Andlit hennar virtist kalt og stirðnað eins og stytturnar, sem þau gengu fram hjá, en augu hans leiftruðu og ljómuðu af fjöri. Þjónarnir þustu að, vagninn var opnaður, og þau stigu inn. Svo lagði vagn- inn af stað, og þau óku gegnum götur og torg, en vegfarendur sneru sér við og sögðu: „Lítið á hin hamingjusömu hjón.“

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.