Vikan - 05.08.1965, Blaðsíða 33
Skörpu drættirnir, sem svefnleysið hafði grafið í andlit Colberts,
mýktust í einskonar bros, sem kom fremur fram í augunum en á
vörunum. — Það, sem þér hafið nú sagt mér, er mjög líkt minu eigin
kjörorði: — Eíkkert án vinnu.
— „Því meira erfiði, því ánægjulegri árangur". Angelique romsaði
þessu upp úr sér og benti á hann með einum fingri: ■—■ „Lagni gerir
vinnu að leik“.
Bros breiddist yfir andlit fjármálaráðherrans og gerði hann næstum
þægilegan á svip.
— Ég heyri, að þér kunnið jafnvel orðalag mitt úr skýrslunni um
nefnt hlutafélag, sagði hann. — Mér þætti gaman að vita, hvort nokkur
hluthafi hefur nennt að lesa hana.
— Mig langaði til að vita, hvað svo reyndur maður, sem þér eruð,
álituð um félagsskapinn. Fyrirtækið virtist svo rökrétt og eiga svo
mikla möguleika.
■—■ Hvernig datt yður í hug, að slíkt fyrirtæki gæti heppnast? spurði
fjármálaráðherrann snöggt. Svo gerðist hann á ný þurrlegur og til-
breytingarlaus, um leið og hann taldi upp leyndar eignir Madame du
Plessis-Belliére, alias Madame Morens: „Allt skipið Jóhannes sklrari,
vopnað með tólf fallbyssum til að verzla og flytja heim kókó, pipar
ok krydd, ásamt dýrmætum viði frá Martinique og Santo Domingo.. . .
— Rétt, sagði Angelique. Ég varð að halda súkkulaðiverzluninni gang-
andi.
— Og þér settuð sjóræningjann Guinan yfir það.
— Það er rétt.
— Var yður ókunnugt um, að þegar þér tókuð hann í yðar þjón-
ustu, haíði hann áður unnið fyrir Fouquet, sem þá var i fangelsi?
Voru yður ljósar alvarlegar afleiðingar af slikum verknaði, eða ráð-
lagði Fouquet yður að fara þannig að?
— Ég fékk aldrei tækifæri t.il að tala við Fouquet, sagði Angelique.
— Ég held, að hann hafi verið hættulegur maður, vegna þess að mikil
auðæfi hans færðu honum völd. Hann misnotaði það. En það mátti
hann eiga að hann kunni að velja sér aðstoðarmenn. Einskær tilviljun
færði Guinan upp i hendur minar. Hann var fyrirmyndar sjómaður
og góður verzlunarmaður. Hann var þá í felum og mjög áhyggju-
fullur yfir að hafa tapað verndara sínum. Mér fannst hann vera sá
eini, sem gæti bjargað því, sem ég hafði lagt fram, eftir að Austur-
Indía hlutafélagið fór á hausinn, en þar með hafði ég tapað miklu fé.
Ég réði hann í þjónustu mína. Óreiða fer í taugarnar á mér. Þar að
auki hafði ég orðið fyrir áhrifum frá æðri stöðum.
— Hvað eigið þér við?
— Konunginn. Hann refsar þeim, sem hann dæmir seka, en hann
lætur ekki hæfileikamenn sleppa sér úr greipum. Ég gerðist svo djörf
að ráða sjóræningja í þjónustu mína, en ég var reiðubúin að láta hann
af hendi við konunginn ef hann hefði krafizt þjónustu hans.
Hún hafði talað sig heita, en þegar hún lauk máli sínu, brosti hún
heillandi brosi. Samt var langt frá að henni liði vel. Colbert hafði verið
mikill övinur Fouquets og hann hafði lymskulega sett upp gildruna,
sem Fouquet féll að lokum í. Allt, sem Fouquet hafði aðhafzt, hafði
nú verið dregið fram i dagsljósið.
— Skipið, sem þér senduð til að verzla i Ameríku -— hversvegna
senduð þér það ekki til Indlands? spurði Colbert slóttugur.
— Ég hafði hugsað mikið um það. En eitt franskt skip hefði ekki
komizt leiðar sinnar, og ég hafði ekki efni á fleiri skipum.
— En Jóhannes skírari sigldi til Ameríku án þess að verða fyrir
nokkru óhappi?
— 1 Ameríkusiglingum þarf ekki að óttast sjóræningja. En sjóræningjar
leyfa engu einu skipi að fara fram hjá Cape Verdeeyjum. Ef skipið er
ekki stöðvað, þegar það fer, er það bara gripið, þegar það kemur til
baka.
— Hvernig stendur á því, að hollenzk og ensk Austur-Indiaskip eru
ekki ónáðuð?
— Þau sigla í hópum. Tuttugu eða þrjátíu, nokkuð stór skip, fara
frá Liverpool eða Haag saman, og fylgjast að.
-— Hversvegna fara Frakkar ekki eins að?
— Monsieur, ef þér vitið það ekki, hvernig í ósköpunum ætlizt þér
til, að ég viti það? Ef til vill er það vegna skapferlisins, eða fjárhags-
ins. Hvernig gæti ég til dæmis, alein, stofnað flota? Frakkar þurfa
á birgðastöð að halda á miðri leið til Austur-Indía.
— Á Ile Dauphine til dæmis?
öll réttindi áskilin — Opera Mundi, Paris. Frh l næsta blaói.
Alein alla nóttina
ina gæti ímyndað sér að tvær
Indíónabeinagrindur lægju rétt við
fætur mér, í opinni gröf.
Nú sé ég að hin sanna mynd af
því sem skeður, er aðeins í hugar-
heimi okkar, og að ekkert er eins
og það lítur út fyrir að vera. Það
er annars alltof erfitt að hugsa
svona háfleygt. Hlutirnir skírast ekki
hót og kvefið versnar stöðugt ....
Ég ætla ekki að gera neitt róttækt.
Ég vil bara að við Danny verðum
hamingjusöm. En verðum við ham-
ingjusöm, nema að ég hætti að
jagast við hann . . ? En hvernig á
ég að hætta því, nema þá að ég
skipti mér ekkert að því hvernig
hann hagar námi sínu . . . . ? Og á
ég ekki að gleyma í bili myndinni
af garðinum, sem er fullur af börn-
Framhald af bls. 13.
um á þríhjólum . . ? Skildi Indíána-
konan hafa rifizt við manninn sinn,
og skipað honum að koma heim
með betri skinn ..? Eða hjúfraði
hún sig upp að honum á kvöldin,
og fullvissaði hann um að hún
væri hans í blíðu og stríðu, vegna
þess að hún elskaði hann , . ?
Ég veit ekki Ef ég hefði gifzt
Barton, eða þá farið heim til
mömmu, yrði ég svo einmana að
ég myndi deyja. Ég get ekki hugs-
að mér lífið án Danny. Hann er
einasti vinur minn og við eigum
enga aðra vini, í öllum heiminum.
En er þá Danny vinur minn? Hvern-
ig getur hann þá látið mig sitja í
glugga heilt kvöld og biðja til guðs,
að hver bíll, sem ekur um götuna,
Framhald á hls. 36.
'6.
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
r
i
Y//j
Ú Danmötk - Búlgaría
14.8.-2.9. 20 daga ferð
YYY///. Fararstjóri: Gestur Þorgrímsson.
14. ágúst: Flogið til Kaupmannahafnar og dyalist
þar í 3 daga.
17. ágúst: Flogið til Sofia, en þaðan farið til
Sólarstrandarinnar við Svartahaf. Nessebur og
dvalist þar í hálfan mánuð. Farið þaðan aftur til
Sofia og flogið 30. ágúst til Kaupmannahafnar
og dvalist þar í 3 daga.
2. september: Flogið til Keflavíkur
Búlgaría er eitt þeirra landa sem ferðamanna-
straumurinn á síðastliðum árum hefur aukist til
í ríku mæli enda eru baðstrendur þar síst lakari
e.n í Rúmeníu og náttúrufegurð mikil. Búlgarar
hafa byggt fjöldann allan af nýtízku hótelum
undanfarin ár og verðlag er þar mjög gott. Búlg
arar skipuleggja ferðir til nágrannalandanna eins
og Rúmenar t.d. til Istanbul með skipi og er verð
þar mjög gott. Sömuleiðis er um fjölda ferða að
ræða innanlands á mjög hagkvæmu verði.
Enginn vafi er á að Íslendíngar eíga eftir að auka
komur sínar til Búlgaríu á næstu árum enda eru
viðskipti landanna í örum vexti.
Hafið samband við okkur sem fyrst.
LAN □ s a N nr
i
FERÐASKRIFSTOFA
Skólavörðustíg 16, II. hæð
SIMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK