Vikan


Vikan - 07.07.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 07.07.1966, Blaðsíða 32
ILFORD ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR FILMUR: Pan F. FP-3, HP-3, HPS. FRAMKALLARAR: ID-11, ID-20, Microphen o.m.fl. FIXERAR: IF-2, Hypam hraðfixer, o.fl. STÆKKUNARPAPPÍR: Bromide, Plastika, Multigrade. ÖNNUR EFNI: Wetting Agent, Hypam herðir. MYNDAVÉLAR & SÝNINGARVÉLAR í úrvali. Illltaf feti framar EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: Ælíb HALLAMÆLAR: MÆLISTIKUR: MÆLISTENGUR: HORNSPEGLAR: Ni-2, Ni-3, Ni-4. ýmsar gerðir. 4m. í 2m. og 4m. í lm. P-l-2-5-6-7-8. HAUKAR HF. Garðastræti 6. — Sími Pósthólf 1006. 16485 16006 STJÖRNUSPÁ % % é-W n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Síðari partur vikunnar flytur með sér mikla róm- antík og skemmtanir fyrir unga fólkið. Gleymska þín frá fyrri viku kemur sér afar illa fyrir þig. Þó fréttir af máli sem þú hefur mikinn áhuga fyrir. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Ef þú heldur málunum ekki vakandi sofna þau ein- faldlega og ertu þar af leiðandi drjúgum snauðari. Byggðu þér ekki skýjaborgir því hætta er á að bjartsýnin dugi þá skammt. Heillalitur er blár. m Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú átt í erfiðleikum með að ákveða þig. Hlutir sem þér finnst hart nærri óskiljanlegir koma í veg fyrir að þú komir áætlunum þínum í framkvæmd. Þú ert mjög ánægður með vissan hlut í eigu þinni. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú færð fréttir af gömlum slóðum og tekur nokkrar ákvarðanir í sambandi við þær. Kunningi þinn hef- ur mikil áhrif á gang mála þinna. Þú ert ánægður með sjálfan þig og fjölskyldu þína. Wi\ JiJl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Gakktu ekki á eftir útistandandi skuldum, reyndu fremur að lifa spart og haga seglum eftir því sem þú hefur í hendi. Þú verður miðpunkturinn í fyrir- tæki sem þú hafðir alls ekki hugsað að vera með í. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Mikil umbrot eru í höfði þínu og skaltu bera þig upp við þér vitrari menn. Þú verður að bæta á þig verki vegna vanskila annarra. Ungur maður kemur mikið við sögu upp úr helginni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Maður sem þú ert skuldbundinn reynist þér mjög hugmyndaríkur. Hætt er á að framkvæmdir þínar tefjist vegna vanrækslu þinnar í skipulagningu. Þú ert ílla upplagður og ættir að forðast vökur. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Eitthvert smáatvik veldur þér heilabrotum en í raun og veru hefur það ekki mikla þýðingu. Þú lætur um of stjórnast af ákveðinni persónu og ættir á var- færinn hátt að losa þig undan áhrifum hennar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú færð skell sem þú átt víst skilið og skammast þín rækilega. Fjármál þin eru í betra lagi en ekki skaltu gera neina bindandi samninga, nema þá yf- ir mjög stuttan tíma. Heillatala er fjórir. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl: Þú hefur gleymt smáatriði en nokkrir aðilar líta þig óhýru auga fyrir bragðið. Þú færð hugmynd sem er þess virði að reyna hana, en þú skalt bíða nokkra hríð eftir betri byr. 'Wffl Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Ný persóna leikur skyndilega mikilvægt hlutverk í lífi þínu og skaltu vera við öllu búinn. Þú stendur þig mjög vel og vekur traust samferðafólksins. Þú skalt leggja kapp á áhugamál þín. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ert gestkomandi þar sem þér er veitt mikil at- hygli sem gerir þig svolítið órólegan og óeðlilegan. Þú umgengst mikið fjölskyldu þína og hefur góð- an tima til að hugsa um eigin hag. 32 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.