Vikan - 18.08.1966, Side 6
með
BÍLDUDALS
nidursodnu grænmeti
HeildsölubirgSir: -BirgSastöS SÍS, Hggert Kristjansson og Co.
ÓBEIT Á
„FÖLSKUM AUGNHÁRUM"
Kæra Vika.
Hvað á maður að ganga langt
í að láta kvenfólkið misbjóða
fegurðarsmekk manns? Stelpan,
sem ég er með, notar fölsk augn-
hár, og það fer í taugarnar á mér.
Þetta veit hún, en heldur samt á-
fram að klístra þessum viðbjóði
í andlitið á sér. Ekki veit ég
hvern hún ætlar að heilla með
þessu, og eitt er víst, að það
„gengur ekki í augun á mér“.
Hún heldur því fram, að þetta
fari sér vel, en ég sé enga ástæðu
til þess að hún haldi þessu áfram.
Á ég að leggja blátt bann við
uppátækinu?
H. Vald.
Nei, alls ekki. Ef stúlkunni
finnst þetta „augnayndi", þá ætt-
ir þú bara að sjá í gegnum fingur
við hana, og láta þér ekki falla
þetta svona þungt. Finnist henni
þetta „fara sér vel“, þá er það
alveg nægileg ástæða til að hún
fari sínu fram.
AF HIMNUM OFAN.
Kæri Póstur!
Nú ætla ég að leggja fyrir þig
spurningu sem þú mátt til með
að svara. Þannig er mál með
vexti að um daginn var ég við
smalamennsku á bæ nokkrum í
Borgarfirði. Þá fann ég einhvers-
konar tæki með fallhlíf. Stærðin
var, hæð: 15 cm, lengd: 16 cm. og
breidd: 12 cm. Það var í hvítu
plasthulstri sem er hægt að opna
og þá koma í ljós allskonar
leiðslur og drasl sem ég skil ekk-
ert í. Framan á tækinu stendur
Modulator Radiosonde MD 210,
B/AMT—4B og U.S.A. Niður af
tækinu var annað tæki sem var
likt og kók-flaska í laginu en var
reyndar brotið frá. Svaraðu mér
nú fljótt Póstur minn, og enga
útúrsnúninga.
Forvitinn.
P.S. Hvernig er skriftin?
Þetta mun vera sending af himn-
um ofan... nei, fyrirgefðu —
engir útúrsnúningar!
Tæki það, sem þú lýsir er veð-
urathugunartæki, sem notað er
til rannsóknar á hita- og raka-
stigi i háloftunum. Þau eru send
upp frá Keflavíkurflugvelli fjór-
um sinnum á sólarhring, tvisvar
á vegum íslenzku veðurstofunn-
ar og tvisvar á vegum hinnar
bandarísku. Tækið sendir frá sér
upplýsingar, sem tekið er á móti
í Keflavík. Fá þeirra finnast hér
á landi aftur. Þgu eru yfirleitt
ónýt, þegar þau falla til jarðar
aftur, og því þarf ekki að hugsa
um að koma þeim til skila, haf-
irðu verið að velta því fyrir þér.
— Skriftin mætti að skaðlausu
vera vandvirknislegri.
HÚSIN, SEM „OPNA“
Kæra Vika!
Hvernig er það, fer það ekki
í taugarnar á þér þessi nýi furðu-
háttur að láta alls konar stofnan-
ir og dauða hluti ,,opna“? Nú eru
það venjulega hús, sem „opna“.
Eða hefur þú ekki tekið eftir því
eins og ég, þessum fullyrðingum
í blöðum og útvarpi: Húsið opn-
ar kl. 9, hótelið opnar á miðviku-
daginn kemur, sýningin opnar
næstkomandi laugardag, verzlun-
in opnar eftir nokkra daga, úti-
bú bankans opnar, þegar við er-
um búnir að finna nýja lóð fyr-
ir banka!
Hvernig fara hús að því að
opna, og hvað er það, sem þau
opna? Eftir orðunum að dæma á
að fá mann til að trúa því, að
þau geti þetta einhvern veginn
hjálparlaust, og engin mannvera
þurfi þar að leggja til hjálpar-
hönd, en þá væri réttara að segja:
Húsið opnast kl. 9, hótelið opn-
ast n.k. miðvikudag, sýningin
opnast o.s.frv.
Ef til vill er orðið úrelt á þess-
ari sjálfvirknisöld að notast við
gömlu aðferðina, að opna með
handafli, enda væri þá sagt: Hús-
ið verður opnað, hótelið verður
opnað, sýningin verður opnuð
o.s.frv.
Vel á minnst, hótel! — Við
hjónin brugðum okkur út að
borða fyrir skömmu, sem reynd-
ar er. ekki í frásögum færandi.
Við fórum í nýjasta hótel borg-
arinnar, hinn vistlegasta stað,
sem „opnað“ hafði þá fyrir
nokkrum vikum! Matur og þjón-
usta var engu lakari, en við er
að búast á íslenzkum veitinga-
stöðum, svo að ég kvarta a'lls
ekki í sambandi við það.
Eitt var það þó, sem olli okk-
ur talsverðum ama. Þarna inni í
veitingasalnum var arnsúgur
mikill, þannig að vart var hægt
að éta sér til hita og servétturn-
6 VIICAN