Vikan


Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 32
SPÁNARFERÐ 20 DAGAR Verð kr.2 3 3 2 5 Spánn er nú orðið vinsælasta ferða- mannaland álfunnar, enda ekki að furða, þvi töfrar landsins eru hrífandi og margvíslegir, Hér gefst. kostur á mjög skemmtilegri bílferð um suður og vestur Spán, sem endar með vikudvöl á lúxus- hóteli í Torremolinos. Fararstjóri í þessari ferð er Þóröur Örn Sigurðsson, mennta- skólakennari. FERÐAÁÆTLUN IT/F2/2 Brottför: 1. september 1. dagur Flogið árdegis yfir Glasgow til London. 2. dagur Flogiö til Madrid. Eftir komu þangað er dagurinn frjáls til eigin ráðstöfunar. Kvöldverður og gisting á hótelinu. 3. dagur Allar máltlðir á hótelinu. Hálfs dags ferð um Madrid, þar sem heimsóttir verða frægustu og merkustu staðir borgar- innar. 4. dagur Morgunninn frjáls. Síðdegis farin skoð- unarferð um borgina og fariö á nautaat. Að þvi loknu snæddur kvöldverður á glæsilegu veitingahúsi í hjarta borgar- innar. 5. dagur Árdegis farið í heils dags ferð til Toledo, einnar elztu og merkilegustu borgar f Evrópu. Borgin stendur á sjö hæðum, eins og Róm, og var til forna höfuðborg Spánar. -X 6. dagur Haldið brott frá Madrid eftir morgunverð og ekið suður á bóginn. Hádegisverður i Valdepenas. Komið síðdegis til Cor- doba og gist þar. 7. dagur Dvalið i Cordoba. Farið í skoðunarferð um borgina, og að henni lokinni er dag- urinn frjáls. 8. dagur Ekið frá Cordoba til Sevilla, sem margir telja fegurstu og sérkennilegustu borg Spánar. Afgangur af degi frjáls. 9. dagur Tvær hálfs dags kynnisferðir um Sevilla. 10. dagur Lagt af stað árdegis frá Sevilla. Viðkoma höfð í sherry-borginni Jerez de la Fron- tera. Síðan haldið áfram til Puerto de Santa Maria og gist þar. 11. dagur Farið frá Puerto de Santa Maria og ekið til Algericas, þar sem hádegisverður er snæddur. Síðan stigið á skipsfjöl og siglt til Gíbraltar. Kynnisferð uni „Klett- inn". Síðan siglt aftur til Algericas og ekið þaðan til Torremolinos. 12. 17. dagur Dvalizt í Torremolinos á hinu glæsilega hóteli Tres Carabélas. 18. dagur Ekið til Malaga og flogið þ'aðan til London. 19. dagur Frjáls dagur í London. 20. dagur Síðdegis flogið frá London til Reykja- víkur. Ath. Ferðina má framlengja í London í upphafi eða við lok feröarinnar. FERÐASKRIFSTOFA • • rÁI Hafnarstræti 5. — Sími 21720. J n Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þig vantar nýtt líf í vinnu þína eða með öðrum orð- um, þú ert sennilega orðinn dauðleiður á henni. Vikan er mjög hagstæð til allra stórræða. Sittu ekki heima um helgina, þú gætir misst af nokkru. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú leggur út í framkvæmdir sem þú hefur hugsað mikið um en alltaf kippt að þér hendinni á síð- ustu stundu. Miklar líkur eru til þess að allt fari vel. Ef þú ert ástfangin verða kvöldin rómantísk. ff Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Starfsfélagi þinn er að æra þig vegna átroðslu og framgirni, ef þú hefst ekkert að gæti hann spillt talsvert fyrir þér. Eldri maður gefur þér meiri gæt- ur en þú kærir þig um. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf): Þú kynnist persónum sem þú átt mjög lítið sálu- félag við en neyðist til að hafa nokkur samskipti við. Það reynir mjög á kurteisi þína og umgengn- isþjálfun. Þú verður að leggja kapp á vinnu þína. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Um tíma missirðu samband við persónu sem á eft- ir að hafa mikil áhrif á framtíð þína. Þú átt erfitt mcð að sitja á strák þínum í fjölskyldusamkvæmi, en það væri sennilega betra að gera það. Meyiarmerkið (24. ágúst — 23. september): Félagi þinn á í miklum kröggum, reyndu að útvega honum aðstoð ef þú ert of upptekinn sjálfur. Stríð- inn kunningi þinn kemur dálítið illa við þig, en það gæti orðið þér til góðs. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Miðdepill vikunnar verður samkvæmi sem gæti haft óbcin áhrif á frama þinn. Eitthvert farartæki veld- ur þér erfiðleikum, sennilega tefur það þig nokkuð. Rómantík og ást haldast í hendur í vikulokin. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Útgjöld þin reynast miklu hærri en þú hafðir gert ráð fyrir. Þú bætir sennilega við þig smá verkefni sem reynist þér drjúgt þegar fram í sækir. Frí- stundunum eyðirðu mest utandyra. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Notaðu vikuna til þess að laga til i kringum þig og kippa ýmsu smálegu í lag sem safnast hefur fyrir undanfarna mánuði. Eyddu kvöldunum heima og leggðu þig fram við að vinna vel. $ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Undanfarið hefurðu verið mjög niðursokkinn í á- hugamál þín og vanrækt þá sem þér eru kærastir. Reyndu að láta fjölskyldu þína njóta lífsins með þér. Þú færð góðan gest á fimmtudag. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar!: Það sem þér þótti erfitt úrlausnar fyrir hálfu ári er nú orðið leikur einn, en áður en þú bætir við þig vinnu skaltu hugsa þig mjög vel um. Notaðu frítímann til útivistar. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Kunningi þinn kemur þér af stað með verk sem hefur mikla kosti í för með sér að þú framkvæmir sjálfur. Fástu ekki um, þótt sumarið hafi verið þreytandi, þú færð góða hvíld i vetur. 32 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.