Vikan


Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 31

Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 31
Sterk og vöndud VerdT vícf allra hæfi Gódir greidsluskil málar Litaval á plastáklædi og bordplasti Veltitappar á stólfótum án aukakostnada r ALLT Í ELDHÚSIÐ Á SAMA STAÐ í tíu daga og sofið undir berum himni með hnakkinn fyrir kodda og hestinn heftan hjá sér. Þetta var aðeins spurning um tíma. Á morgun, næstu viku, næsta mán- uð. Hann fór að hugsa um, hvað Ouma Brandt — Kata frænka, kallaði hann hana — hefði í mat- inn. Næsta dag sá hann þá. Gamli búskmaðurinn sat á hækjum sínum með bogann í höndunum og horfði á konuna sína soga upp vatn í gegnum reyr og spýta því svo í strútsegg, sem lágu þar hjá henni. Þegar þau voru orðin full, lokaði hún þeim með dökkbrúnu býflugna- vaxi. Það var ekkert vatn sjáan- legt, en undir klettinum var neðanjarðar uppspretta. Það var ekki hægt að sjá það af neinu að það væri þarna. Þau fáu gras- strá, sem uxu í skugga klettsins, voru nöguð niður í rót og ekkert grænt sást á jörðinni. Þegar hún hefði lokið við að fylla þau, mundi hún setja þau í netið, sem hún var með, og grafa þau síðan í eyðimörkinni, þar til þau þurftu á vatninu að halda. Þetta var Kalahari, eyðimörk- in, síðasti griðarstaður fólksins hans, og hann og konan hans voru ein af þeim fáu, sem eftir lifðu. Ekki langt frá þessum stað voru harðir steinar, sem ætt- menn hans höfðu höggið í myndir af villtum dýrum, og í hellunum voru málverk frá þeim tímum, þegar þeir höfðu lifað sem frjáls- ir veiðimenn innan um villtar skepnur Afríku. Hugur hans starfaði ekki eins og okkar, hann hafði engan skilning á samband- inu milli orsakar og afleiðinga. Hann lifði eins og ættmenn hans höfðu alltaf lifað — á veiðiskap, á rótum, sem konan hans gróf upp, á kryddi, sem hún safnaði. Það var ekki margt, sem þau ekki lögðu sér til munns. Skrið- kvikindi, slöngur, ormar og svo auðvitað antilópurnar, sem hann drap með litlu, eitruðu örvunum sínum. Hann sá fyrir sér konuna sína eins og hún hafði verið fyrir löngu, móður dánu barnanna sinna. Mjúkvaxin með þykka þjóhnappa, sem voru varabirgð- ir til erfiðari daga. Nú héngu þeir slappir undir litlu skinn- pilsi hennar. Nú var magi henn- ar þakinn örum eftir eldana, sem hún hafði sofið við og hreiðrað um sig við heita ösk- una, þar til hún hafði vaknað við að húð hennar sviðnaði. Hann sá þetta allt eins og á mynd. Hann sá litla hópinn af ætt- fólki sínu og börnin sín, og nú voru þau ein eftirlifandi. Nafn hans hafði verið Stór- kostlegur veiðimaður. Þó hann væri borinn saman við fræga veiðimenn, hafði hann verið frá- bær. Hún, konan hans og móðir barnanna hans, hafði verið köll- uð Vindblær í grasinu, af því að hún var falleg og full af yndisþokka. En nú báru þcru engin nöfn, því að þau voru ein í auðu landi. Þau höfðu aðeins hvort annað til að tala við. í augum þess fáa fólks, sem sá þau, lögreglunnar til dæmis, voru þau aðeins gamlir búsk- menn. Hann hataði engan. Það eina sem hann óskaði, var að fá að lifa, að konan hans, lífsföru- nautur hans, fengi að lifa. For- tíð og framtíð komu honum ekki við. Nútíðin var það eina, sem máli skipti fyrir hann, eins og fyrir ljónin eða antilópurnar. Þegar hann litaðist um, sá hann mann út við sjóndeildarhring- inn. Enginn hvítur maður hefði komið auga á hann. Samstundis hurfu þessar tvær litlu, gulu mannverur í rauðleitan sandinn og samlöguðust umhverfinu. En Schalk du Bois hafði séð þau, vegna þess að hann hafði horft á þau með sjónauka. Þau þekktu ekkert til slíkra hluta. Hann horfði stöðugt þangað sem búsk- mennirnir höfðu verið og reið hægt þangað, vestur á móti sól- setrinu. Það tók hann klukkutíma að komast að klettinum. Hann hlóð byssuna — það var aldrei hægt að vita hvað búskmenn tækju til bragðs — og gekk hægt að staðnum. Hann smeygði taumn- um fram yfir höfuð hestsins, en hestarnir voru vandir á að standa þannig kyrrir tímunum saman. Jú, hér voru spor. Þeir höfðu litlu holuna, þar sem hún hafði aðeins verið tveir. Hann sá hvar konan hafði kropið, hann sá sogið upp vatnið. Svo gekk hann að hestinum til að ná í skóflu úr farangrinum. Fótur hans sökk í votum jarð- veginum og vatnið vall upp um gatið. Þetta gat ekki verið betra. Ef vatnið kom svona fljótt upp í þurrum jarðvegi, hlaut það að vera nóg. Þá var ekki nema eitt eftir — það var að bragða það. Búskmenn drukku hvað sem var. Hann hikaði, hræddur um að það væri salt, en svo jós hann því upp í lófa sér. Það var ferskt — ferskt eins og vín. Hann hló. Þér hefur tekizt það einu sinni VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.