Vikan


Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 29

Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 29
 ZSgUL'i!1. .!u NEW Portrait Make up X FILM BY DOROTHY GRAY Algerlcga nýtt make-up, sem gefur eðlilegt útlit og mjúka húð —• MÝKRI EN SILKI. Strikar ekki né breytir lit og þurrk- ar ekki húðina. Portrait Makc-up á við alla húð og endist bezt — ER UNDURSAM- LEGT. Notað með eða án púðurs. Reykjavík, INGÓLFS APÓTEK. DOROTHY GRAY NEW YORK • LONDON • PARIS frá þeim að framan með lVa sm. breiðum faldi. Sníðið úr efninu lítið hálsmáls fóður eftir hálsmálinu og saum- ið það við hálsmálið á sama hátt og blúnduna á treyju nr. 1 og stingið 2 mm. frá brún á réttu. Rykkið pífuna með 2 rykkingar- þráðum og þræðið neðan á treyj- una réttu mót réttu. Látið hana nema við miðlínur að aftan eins og hálsmálsfóðrið. Þræðið ská- band milli rykkingarþráðanna í pífunni og leggið síðan niður við í höndum í vélsauminn, eða stingið út á röngu treyjunnar. Staðsetjið hnappag. og tölur eins og á treyju nr. 1. Nr. 7. Efni: Ljósblátt poplín- efni með hvítum doppum, — töl- ur. Sníðið treyjuna eftir sniðun- um. Saumið skáermar og gangið frá þeim að framan með því að sauma rör (leggið þunnt bendla- band innan í ermina og stingið tæpt í brún báðum megin. Gang- ið frá erminni að framan með mjóum faldi. Gangið einnig frá treyjunni að neðan með mjóum faldi. Búið til einfalda pífu úr efninu, festið við hálsmálið og gangið frá henni með bryddingu. Staðsetjið hnappagöt og tölur eins og á treyju nr. 1. Nr. 8. Efni: Brún- og hvítrúð- ótt léreftsefni, — léreftsblúnda, •—• tölur. Sníðið treyjuna eftir sniðun- um, en hafið nokkru síðari en sniðið. Saumið skáermar og framan á þær léreftsblúndu á sama hátt og treyju nr. 1. Saumið hliðar- saumana ekki alla leið niður og myndið á þá ávala niður að brún. Saumið léreftsblúndu neðan á treyjuna á sama hátt og treyju nr. 1. Gangið frá hálsmálinu eins og á treyju nr. 6, og staðsetjið hnappagöt og tölur eins og á treyju nr. 1. Hunangsfuglinn Framhald af bls. 13. ég vil þá ekki á mínu landi.“ „Nei,“ sagði Schalk, „auðvitað ekki. Enginn mundi kæra sig um það.“ Hann vissi ekki ennþá hverjir þetta voru. Kannski voru þetta ljón. En ljón voru ekki friðuð hér. Þau voru 500 mílur í burtu, á veiðisvæðinu. „Þeir drápu kind,“ sagði Braun. „Ég sagði lögreglunni það, en hún skiptir sér ekki af því. Hvað er ein kind fyrir þig, Meneer Braun? sagði lögreglustjórinn. Þú, sem átt 3000. Hvað varðar þá um það, nema til að leggja á mig skatta?“ Rödd hans var ön- ug. „Þeir spurðu mig hvernig ég gæti vitað að það voru þeir. Á þessu, sagði ég,“ og nú dró hann eitthvað upp úr vasa sínum. Það var lítil ör, og hann vafði papp- írnum varlega utan af henni. „Varaðu þig,“ sagði hann, þeg- ar Schalk rétti út hendina, „hún er eitruð. Þetta svarta þarna — þetta er slöngueitur, kaktus- mjólk og sitthvað fleira." Nú vissi hann það. „Búskmenn“ sagði Schalk. „Kvikindi, það er það, sem þeir eru. í gamla daga < „í gamla daga? Þú ert of ung- ur til að muna gömlu, þýzku tímann.“ „Ég var barn, Meneer,“ sagði Schalk. „Ég er fæddur í Wind- hoek.“ Svo hélt hann áfram: „Þú segir að þeir haldi sig á vestur- hlutanum? „Hverjir?“ Gamli maðurinn hafði tapað þræðinum. „Búskmennirnir.“ „Ja,“ sagði hann, „í vestur- hlutanum, og þeir ættu ekki að voga sér annað, annars skýt ég þá, hvað sem lögin segja.“ „Hve nærri koma þeir?“ spurði Schalk. „Hve nærri þorp- inu, á ég við?“ „Ekki mjög nærri — 20 mílur eða svo. Þeir eru hræddir. Þeir koma ekki nema þeir séu svang- ir.“ Þrekinn maður, sem setið hafði úti í horni, tók nú þátt í umræð- unum. „Þessvegna er lögreglan svona væg við þá,“ sagði hann. „Þeir eru eiginlega alveg tamd- ir orðið. Ein kind öðru hverju og aðeins ef þeir eru að deyja úr hungri — það er allt og sumt. Við drápum fyrir þeim bráðina, sem þeir lifðu á,“ sagði hann, „svo þetta er í rauninni ekki nema réttlátt." Bjáni gat þessi maður verið, hugsaði Schalk um leið og hann pantaði meiri bjór. Réttlæti. Það var ekkert réttlæti til. Það var til vald og það var til heppni, en ekkert, sem hét réttlæti. „Prosit," sagði hann og lyfti krukkunni. „Prosit,“ sögðu hinir hlæjandi. „Þetta vekur minningarnar,'1 sagði gamli maðurinn. „Ja, ja, það er margs að minnast. Bjór- stofan í Windhoek, dýragarður- inn, hermennirnir, hljómsveitin — það var í gamla daga ...“ Tuttugu mílur, hafði gamli maðurinn sagt. Þeir höfðu sagt honum það, sem hann þurfti að vita. í Rosenbergverzluninni hafði hann keypt nokkur teppi og skotfæri og haldið síðan vest- ur á bóginn. Þvílíkir kjánar gátu þessir menn verið. Ef búskmenn héldu til á þessum slóðum, hlaut að vera vatn þar. Hann hafði riðið VIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.