Vikan


Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 26

Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 26
peaingi- stiiiinir í höfuðstafl- Næst á eftir sjoppurekstri er bankastarfsemi að verða vinsælasti atvinnuvegur þjóðarinnar, sagði einhver bjartsýnn og vitur maður nýlega. Telst okkur til, að 17 bankar, sparisjóðir og útibú séu í Reykjavík um þessar mundir og þarf að skipa nefnd til að rannsaka hvort þetta er ekki heims- met. Ef svo reynist, mætti nota það til að slengja framan 1 Svía og aðra. sem telja okkur með U- löndum (vanþróuðum löndum). Ef Danir eiga að standa sig á móti okkur að þessu leyti, þá verða að vera rúmlega 200 bankar í Kaup- mannahöfn og Bretar verða að hafa 2000 banka í London til þess að lafa í okkur. En það sýnir bezt, hvað íslendingar þurfa mikið á peningum að halda, að allir kvarta yfir auraleysi og lánafjárskortur er almenn plága. Kannski hafa menn ekki fylgzt nægi- lega með þróuninni og vita ef til vill ekki um þessa 17 banka og sparisjóði (fyrir utan Margeir) en nú gefst tækifæri til að átta sig á þessu með aðstoð meðfylgjandi mynda. Væri ráð að hafa blaðið með næst þegar farið er í víxlaleiðangur og mætti þá krossa við mynd, þegar sá bankinn er afgreiddur. Hér er Seðlabankinn ekki talinn með, en alls ó- fróðum skal bent á, að þangað fara menn einkum til þess að fá sér fína og ókrumpaða seðla í stað hinna þvældu, og svo til að leysa út gúmmítékka. Þessi ánægjulega þróun í bankamálunum hefur komið til vegna þess að þeir vilja standa sig í þjón- ustuhlutverkinu og sjá svo um, að ekki þurfi allir að fara niður í Bankastræti eða Austurstræti. Svo hefur einn bankinn fengið aðstöðu 1 þessu hverf- inu og annar í hinu og alltaf fjölgar fólkinu og full- trúunum, sérstaklega fulltrúunum. Svo rísa ný úti- bú í hverfunum og ný hverfi fyrir útibúin og nýir fulltrúar koma fyrir ný útibú og ný útibú fyrir nýja fulltrúa. Þessi fjöldi lánastofnana kemur sér vel fyrir þá, sem einungis fá fimm eða tíu þúsund króna víxil á hverjum stað, en þurfa að reyta saman svo sem hundrað þúsund kall fyrir útborgun í íbúð. Að vísu fer drjúgur slurkur af vinnutíma þessara manna í að stússast í bönkunum við framlengingar og redd- ingar, en það verður nú ekki á allt kosið. Og þá hefur þetta ekki síður komið sér vel fyrir þá herra, sem gefa út svokallaðar keðjuávísanir; það er ávís- anir sem að sjálfsögðu er ekkert til fyrir neinsstað- ar, en fjármálaséníin hafa ávísanareikninga i öllum helztu bönkum og „bjarga“ á einum stað með gúmmítékka á þann næsta og þannig koll af kolli. Meðfylgjandi eru myndir af 18 bönkum, banka- útibúum og sparisjóðum, en þar fyrir utan eru svo Sparisjóður Verkamanna, Sparisjóður vélstjóra og Sparisjóðurinn Pundið. Og þeim sem ekki finnst þetta nægilegt, skal bent á, að auk hinna opinberu peningastofnana eru til góðir og greiðugir menn, sem lána og ávaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. r-- íttíiíÝÍiiÁií XC C ÍC -X- mmm ■ • < .?• s'í . . ; | ■ 26 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.