Vikan


Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 34

Vikan - 18.08.1966, Blaðsíða 34
flæmi. Allt var þetta þarna — út við sjóndeildarhringinn, og beið bara eftir því, að einhver hefði manndóm í sér til að grípa það. Allir vissu um þetta. Ekki minna en tveir menn höfðu látið lífið við að ná því — en þeir höfðu verið heimskingjar. Hann hafði lagt á ráðin. Hann ætlaði ekki að bíða í sjö eða átta ár eftir mikilli rigningu. Nei. Með tíu ösnum gat hann gert það hvenær sem var. Hver asni gat borið átta gallon af vatni, fjögur sitt hvoru megin — átta- tíu pund var þeim ekki ofviða. Hann mundi fara 10—15 mílur á dag. Fyrsta daginn mundi hann skjóta einn asna, grafa helminginn af vatninu og gefa skepnunum hinn helminginn. Það var lítið fyrir níu asna, en á öðrum degi ætlaði hann að skjóta tvo, grafa aftur fjögur gallon og gefa ösnunum sjö, sem eftir væru, hin tólf. Eftir því sem þeim fækkaði, yrði vatnsskammt- urinn ríflegri. Þarna voru safamiklir gras- runnar, sem nærðust á dögg- inni, og gerðu ösnunum kleyft að komast af með minna vatn. Hann gerði ráð fyrir átta daga ferð. Á áfangastað mundi hann hafa átta gallon af vatni og enga asna, og síðan hafði hann brús- ana sem biðu hans á tíu mílna fresti á heimleiðinni. Hann fór hvað eftir annað yfir áætlunina í huganum. Hann ætl- aði að leggja af stað á morgun — eða næstu viku, eða í næsta mánuði. En þá varð heppnin aft- ur á vegi hans. Jonas, einn af fjárhirðum hans, kom til hans með gamlan búsk- mann, allan skorpinn og hrukk- óttan og þakinn óhreinindum. Hárið var allt samanklístrað, en augu hans fyrir ofan há kinn- beinin voru skær eins og votir steinar. Hann var með lítinn boga með sér og á öxl hans hékk örva- mælir. Hann bar skinnskýlu bundna með tvinnaðri görn um magann og slá úr antilópuskinni yfir herðunum. Hann leit af hirðinum á hvíta manninn og fór ofan í smávasa á beltinu og dró eithvað upp úr honum. Hann rétti höndina að hvíta manninum, en opnaði ekki lóf- ann. Schalk rétti fram sína hönd, lófann upp. Eitthvað datt í hann. Eitthvað þungt og gult — ó- unnið gull. Það var þá þarna. Draumur hans hafði rætzt. Hann hafði fengið auðævi upp í hend- urnar. „Hvað vill hann fá fyrir það?“ Hann hélt stykkinu upp með tveim fingrum. „Kind,“ sagði hirðirinn. „Fáðu honum hana. Og segðu honum að fara með mig þangað,“ sagði Schalk og benti upp á fjallið. Búskmaðurinn rétti upp tvo fingur og sagði eitthvað. reyna að rifja upp hvað hann hefði heyrt um hvíta menn. Eitt vissi hann með vissu. Gull — þeir voru æstir í gull. Kann- ski ætti hann að setja fyrir hann gildru — gullgildru. Þann dag, sem þetta lá opið fyrir honum, hefði hann auðveldlega getað skotið hvíta manninn. Hund- arnir voru ekki lengur nein hindrun. En hann vildi ekki skjóta hann. Þetta var síðasta veiðiferðin hans. Þegar hvíti maðurinn væri dauður, mundi ekkert verða eftir til að gera. Hann fór að hugsa um for- tíðina. Hann sá hana eins og mynd, sem límd hefði verið yfir nútíðina. Litli ættbálkurinn hans, tveir bræður hans, frændi, og fjölskyldur þeirra. Tvær hend- ur af fólki. Fingur tveggja handa af fólki, það var allt og sumt. Hvítara hvítt.. Hreinni litir! Notið Blaa Omo, nyjasta og bezta þvottaduftið næsta þvottadag. Sjaið hvernig Omo freyðir vel og lengi og gerir hvíta þvottinn hvHari og íiti mislitu fatanna skærari en nokkru sinni fyr! Reynið Omo. Sjáið með eigin augum hvernig Omo þvær hreinast! Þau höfðu svo oft komið að þessu vatnsbóli. Konurnar höfðu sogið upp vatnið, strútseggin lágu á jörðinni hjá þeim, og mennirnir horfðu á. Nú var þessu öllu lokið — hann var einn eftir. Hann sá dánu börnin sín. Það höfðu verið erfiðir tímar. Hvítu mennirnir höfðu útrýmt villtu dýrunum. Vegna þess að þau voru að deyja úr hungri höfðu þau stolið nokkrum kindum. En þá höfðu þau verið hundelt og skotin eins og skepnur. Það var auðvitað ólöglegt, meira að segja á þeim tímum, að skjóta búskmenn, en það vissi hann ekki. Hann fór aftur að hugsa um konuna sína, eins og hún hafði verið einu sinni, með þjóhnapp- ana stinna af fitu, eins og borð aftan á bakinu á henni. Það gat setið barn á þeim — og þá kom aftur eitt af börnunum fram í huga hans. En svo fór hann í burt, burt frá búgarðinum, og fór að leita að dálitlu, sem hann hafði falið fyrir löngu, löngu síðan. Schalk du Bois stóð fyrir utan húsið sitt með glas í hendi og horfði út að fjallinu, sem lá í 70—80 mílna fjarlægð. Hann at- hugaði litaskiptin í því. Þetta fjall var orðið honum hugstætt og hann vonaðist til að þar væri gull — eða aðrir málmar. Gull var ekki það eina, sem var mikils virði, þótt það væri það bezta. Hefði hann peninga, gæti hann látið að sér kveða. Hann sá sig í huganum sem þingmann. Hann sá fleiri búgarða, þúsundir kinda, nautgripi og óendanlegt land- 34 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.