Vikan - 18.08.1966, Síða 7
ar fuku eftir borðunum. Orsökin
var loftræsting, sem blés yfir
gesti heilsusamlegu, frísku lofti,
sjálfsagt bráðhollu. Okkur þótti
þetta þó fullmikið af því góða og
báðum þjóninn um að slökkva
á græjunum, þótt ekki væri nema
stundarkorn.
Svarið var: Því miður, það er
ekki hægt. Loftræstingin er sjálf-
virk!
Já, þetta er hvort tveggja afleitt.
Við mælum frekar með gömlu
aðferðinni, að hús verði hér eftir
opnuð, og svo ætti að banna sjálf-
virk loftræstingartæki — þau
eiga að vera handsnúin eins og
í gainla daga.
P.S.: Blaðadreifing okkar opnar
um þessar mundir í nýjum húsa-
kynnum.
KRISTUR í ÞOKU?
Kæri Póstur!
Fyrir ekki all löngu síðan var
sett upp altarisskreyting í Skál-
holtskirkju. Sjálfur hef ég ekki
séð þessa skreytingu, nema hvað
ég hef séð myndir af henni í
blöðunum og lesið umsagnir
blaðamanna um mynd þessa, en
þeir fara um hana hlýjum orð-
um og skáldlegum, tala um að
Kristsmyndin, sem þarna er um
að ræða birtist eins og í þoku.
Og þetta er mergurinn máls-
ins, jafnvel útlínur myndarinnar
eru óákveðnar, eins og dregnar
af manneskju, sem hvorki veit
hvar hún á að byrja, eða enda.
Sjálft höfuð inntak myndarinn-
ar, Kristur, er óljós þokukennd
vera, fjarræn og óraunveruleg,
mynd, sem á ekki lengur form.
Fullkomlega ómennsk, eitthvað
sem tilheyrir draumi fremur en
veruleika.
Og þá kemur spurningin. Er
þetta túlkun listakonunnar á sin-
um Kristi, eða þeim Kristi, sem
henni finnst vera Kristur kirkju
okkar?
Eða er þetta bending um að
hún standi ráðþrota frammi fyr-
ir þessu verkefni? Ráðþrota eins
og svo mörg okkar, venjulegra
leikmanna, sem eigum að heita
kristnir menn, og eigum að hafa
kristshugmyndina, að okkar leið-
arljósi.
En hver svo sem hugmyndin er,
sem að baki þessu liggur, er eitt
ljóst, Kristur og hugmyndin um
Krist er óljós.
Og þá kemur önnur spurning.
Hvað segir hin kristna kirkja um
þetta, er Kristur sá sem prest-
arnir kenna um á sunnudögum,
svona þokukennd draumvera,
fjarræn og óljós, sem erfitt er að
gefa nokkuð form?
Hversvegna eru kirkjurnar
tómar?
Er það kannski vegna þess, að
þeir sem þar eiga að bera boð-
skapinn, og opinbera Krist, hafa
gleymt honum, eða ef til vill
aldrei gert sér fulla grein fyrir
því, hvaða form þeir ættu að
gefa orðum sínum, þegar hans
skal minnzt.
Er undarlegt, að manni detti í
hug, þegar maður sér alla þessa
fallegu ramma, sem byggðir eru
á öðru hverju götuhorni, að þeir
séu gerðir um eitthvað sem eng-
inn skilur.
Ekki einu sinni þeir sem mennt-
aðir eru til þess.
S.P.S.
Við þökkum S.P.S. tilskrifin, og
komum hugleiðingum hans á
framfæri, þótt við séum honum
ekki sammála í ýmsum atriðum.
Blóm Vikunnar fær Eva Þórðar-
dóttir Garðsenda 5, fyrir eftir-
farandi sögu:
Sonur minn, sjö ára, var lát-
inn koma með tannbursta í skól-
ann í haust, í því skyni að læra
að bursta tennurnar rétt. Hann
fór með tannbursta, sem hann
hafði fengið, þegar hann var
tveggja ára og notað dyggilega,
enda var hann talsvert farinn að
láta á sjá. Þegar hann nú tók upp
burstann sinn í viðurvist skóla-
systkina sinna, fannst þeim burst-
inn heldur ræfilslegur, og voru
ekkert að fara í felur með skoðun
sína. En syni mínum varð ekki
svarafátt: „Það er ekki nema von
að burstinn sé orðinn slitinn, því
fyrst átti pabbi hann, svo
mamma, svo stóra systir mín, og
svo fékk ég hann“.
E.D.Þ.
™6anisíf
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandi! I»að er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi, þar sem loftið
cr hreint og fcrskt. Það skapar létta Iund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og gluggatjöld; málning og heimilistæki gulna ckki og hrcingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankétt fáið þér raunverulega Ioftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér hún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftsins í cldhúsinu og næstu hcrbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna heyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun á síum! Athugið sérstaklega, að Bahco Bankett þarfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bahco Bank-
ett hefur engar slíkar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr ryðfríu stáli! Bahco Bankctt hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fltu-
síur úr ryðfríu stáli, sem ckki einungis varna því, að fita setjist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hrcinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum sfurnar. Fitusíurnar cru losaðar með cinu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum. _______
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bahco Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn yfir eldavélina. Innbyggt ljós veitir þægiiega lýsingu og rofarnir
fyrir ljós og viftu eru vel og fallega staðsettir.
Falleg, stílhrein og vönduð — fel alls staðar vel! Bahco Bankett er teiknuð af
hinum fræga Sigvard Bcrnadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
er sænsk úrvalsframlciðsla frá einum stærstu, reyndustu og nýtizkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BAHCO ER BETRI. Það cr einróma álit ncytendasamtaka og reynslustofnana ná-
grannarikjanna, að útblástursviftur cinar vciti raunvcrulcga loftræstingu. Hagsýnir
húsbyggjendur gera því ráð fyrir útblástursgati eða sérstökum loftháfi. Þeir, sem
endurnýja eldri eldhús, brjóta einfaldlega gat á útvegg eða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn margborgar sig.
NÝJUNG: Bahco raðstokkar. Við höfuin nú á boðstólum létta og sterka, hvíta
plaststokka með beygjum og öðru tilheyrandi, sem hver og einn getur raðað saman,
án minnsta erfiðis eða sérstakra verkfæra. _____
Veljið því rétt, veijið viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og heldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Veljið BAHCO BANKETT.
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið allár upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
• • '&ty-
FONIX
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10. RVÍK.
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: .......
Heimilisfang:
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavík.
VIKAN 7