Vikan - 13.10.1966, Blaðsíða 5
TILA AP GJORBYLTA
>kipulaginuHM
Lögreglan í Amsterdam er höfuðóvinur Provosanna.
Á hverjum laugardegi cru sérstakar herlögregiu-
svcitir hatöar til taks að meöhöndla unglingana.
I*á kemur oft til harðra sviptinga. Þessi stúlka
lenti í tuski við lögrcgluhund, sem reit kjólinn
hennar meö þeim hætti, sem myndin sýnir.
Ríb Stolk, 20 ára, er próvos. Sara Stolk,
18 ára, próvos. Af æskulýð Hollands
eru 20000 í þessum samtökum, eða ef
til vill 30000. Próvos er leitt af sögninni
provocare (lat.), sem þýðir að skora á,
mana.
Þessir æskumenn eru harðir í horn að taka,
og þeir eru ósættanlegir við hinn almenna
borgara og lögmál þau sem farið er eftir í
þjóðfélaginu. Þeir heimta fullkomið frelsi í
ástamálum, hatast við allan tepruskap, trúar-
brögð og hræsni.
Rob Stolk, sem er foringi samtakanna, segir
svo í viðtali:
— Við erum mods, bítnikkar og stjórnleys-
ingjar. Við höfum hvorki bíla né önnur vél-
knúin farartæki. Við klekjum út byltingar-
áformum okkar og hugmyndum í óþrifalegum
kjallarakompum, og þessar hugmyndir hræða
og vekja viðbjóð hjá hinum heimaalningslegu
löndum okkar. Við erum von föðurlandsins
um betri framtíð!
Þessi ungi fríðleiksmaður er viss í sinni sök.
Bjarta meyjarhárið fellur í fögrum lokkum
um háls og enni. Bros hans eru björt og blik-
andi.
Hjá honum situr Sara hans, smávaxin og
ljóshærð, fyrsta próvosbrúður Hollands. Þau
giftust í haust er leið og mættu hjá borgar-
stjóranum ríðandi hvítum hjólhestum, og í
fjölmennri fylgd ungra próvosa, sem flestir
voru berfættir og í nankinsbuxum. Á eftir
fór fram táknræn gifting í poplistarkirkju og
þar vígði þau einn af þeim.
Nú, þegar samtal þetta fer fram, er sunnu-
dagskvöld við gragtina (skurðinn) Voorburg-
erval í Amsterdam.
Græn kjallarahurð stendur opin í hálfa gátt.
Fyrir utan hangir spjald með þessari áletrun
á sænsku: „Fotografering förbjuten". (Bannað
að taka myndir), og undirskriftin er „Domn-
arfet“, en þetta er gjöf frá tveimur sænskum
„trúbræðrum", sem hafa verið þarna á ferð
hjá próvosunum.
Niðri í kjallarakompunni er þröng á þingi,
því þar eru saman komnir 50 próvosar. Það
heyrast smellir í ritvél, því það er verið að
fjölrita blað þeirra. Stúlkur tína saman þau
blöð, sem tilbúin eru. Tveir piltar eru að negla
millivegg milli skrifstofunnar og „samkomu-
salarins“. Síminn hringir 1 sífellu. Blaðasalar
koma og fara.
Rob Stalk er aðalmaðurinn í starfi þessu,
hann leiðbeinir, skipuleggur og hefur umsjón
með því öllu.
Hann segir:
— Við gefum út tvö blöð, vikublað og mán-
aðarblað. Upplögin hækka í sífellu. í dag seld-
ust 1500 eintök af Image á hálftíma. Við prent-
um blaðið Provo í 20000 eintökum. í næsta
skipti á upplagið að vera 30000. Við gerum
okkur vonir um að geta bráðum farið að gefa
Framhald á bls. 37.
VIICAN 5