Vikan - 17.11.1966, Side 26
í haust dvaldi hér um tíma sænska kvik-
myndaleikkonan Ingela Brander, sem um
þessar mundir nýtur mikilla vinsælda í
Evrópu sem saxófónleikari og söngkona.
Með henni í för var umboffsmaður henn-
ar, Fritz Ruzicka. VIKAN bauð Ingelu í
ökuferð um borgina og næsta nágrenni
hennar einn góðveðursdaginn í haust og
frá því ferðalagi eru meðfylgjandi mynd-
ir, sem Kristján Magnússon tók. — Ingela
hefur farið víða um heim, en lét í ljós
ákafa hrifningu yfir Islandi og íslending-
um. Hún gat þess við okkur Vikumenn,
að hún hefði stundum velti því fyrir sér,
af hvaða þjóðerni hún gæti hugsað sér að
eiginmaðurinn væri, og nú væri hún kom-
in að þeirri niðurstöðu, að hann mætti
gjarnan vera íslenzkur — en á íslandi
vildi hún ekki eiga heima. Hins vegar
væri margt, sem mælti með því að koma
hingað við og við, og þá ekki sízt íslenzku
hestarnir, sem unnu ást hennar við fyrstu
sýn. Hún hafði jafnvel við orð að kaupa
sér íslenzkan hest — og þá náttúrlega
líka jörð í Danmörku, þar sem hún held-
ur til, því hesturinn þarf bæði svigrúm og
gras.
Það þarf Bronco eða ámóta farartæki til að komast ómæddur upp á
Úlfarsfell. Ingela var afarhrifin af þeim rauða, sem við fengum lánað-
an, og vildi fá að vita um hestaflatölu, gírahlutföll og aðra tæknilega
hluti, enda tæknimenntuð sjálf. Heima á hún nýjan Mercury og Volvo
Sport og segist helzt ekki hera við að keyra undir 120.
■;
:
: ;':| í : í
:• •• yy.yy/.-y.-ýy.ýý
Efri mynd til vinstri
I»ótt hitaveitan gerði
ekki betur en að
hafa undan í fyrstu
frostum í liaust, þá
var samt hlýtt í
skjóli um miðjan
daginn# þegar sólin
skein, og hvað er
betra en að hvíla sig
í sólaryl eftir skvamp
í volgu vatni.
Gestur í Meltungu á
hund sem heitir Dóni.
Margir bæru þó nafn-
ið með meiri rétti,
því Dóni í Mel-
tungu er afbragð
annarra hunda um
alla framkomu og
kjassfenginn í meira
Margir eru hrifnir af Vesturbæjarsundlaug, í þeirra hópi er Ingela Brander, sem naut þess að leika sér við börnin í haustsól
og hlýju vatni#
\ * f & m
Óvíða í nágrenni Reykjavíkur er fallegra útsýni en ofan af Úlfarsfelli. Að
melbungunni vestan við Stórahnúk sér útyfir Kjalarnes og Sundin til
Akraness annarsvegar, en hinsvegar yfir Reykjavík og Kópavog. Myndirn-
ar tvær fyrir miðju eru teknar þar uppi og sér á annarri yfir Reykjavík,
en á hinni myndinni situr Ingela á vörðu, með Móskarðshnúka í baksýn.
Gestur bóndi í Meltungu í Kópavogi var að reka saman fé uppi á Vatns-
endahæð og dansmærin reyndist liðtæk að hlaupa fyrir rollurnar. Á mynd-
inni hér fyrir neðan er hún komin inn í króna til þeirra og spilar fyrir þær
á saxófóninn, en einangrarnir á loftnctsstögunum koma eins og hljómar
iit úr hljóðfærinu.