Vikan - 17.11.1966, Qupperneq 39
Toni gefur fjölbreytileika
Sama stúlkan. Sama permanentið. Ölíkt útlit
TONI lífgar og gerir hár yðar meðfærilegt. Gerir yður kleift að
leggja og greiða hár yðar hvernig sem þér óskið. Heldur lagmngunm.
Sama permanentið heldur hvaða lagningu sem er. Hér eru þrjár
ólíkar hárgreiðslur, sem eru grundvallaðar á einu Toni. En þér
getið greitt yður á tugi mismunandi vegu.
Um Toni—Aðeins Toni hefur tilbúinn bindivökva. Engin
fyrirhöfn. Tilbúið til notkunar í handhægri plastik flösku. Vefjið
aðeins hárið upp á spólurnar og þrýstið bindivökvanum í hvern
lokk. þér munið öðlast fullkomið Toni. Engar krullur. Engir
stífir broddar. Toni gerir hár yðar mjúkt og skínandi. Auðveldar
hárgreiðsluna. Reynið Toni.
lék á möndli og stýrishjólin
hreyfðust með því. Þeir Contal-
félagar voru í langsamlega mest-
um vandræðum með farangur-
inn, og það var hinn góðhjartaði
Godard, sem hljóp undir bagga
og flutti fyrir þá persónulega
muni þeirra, teppin og matvælin.
Þeir Contalmenn höfðu ekkert
með sér af skóflum eða öðrum
slíkum verkfærum, né heldur út-
búnað til að komast upp úr aur
eða sandbleytu; að vísu var far-
artækið ekki þungt, þegar allur
farangur hafði verið tekinn af
því, en þó seig það í þegar til
lengdar lét.
Spijkerinn var lang glæsileg-
asta farartækið. Godard hafði
hresst upp á málninguna og sett
myndarlegt hvolftjald fyrir far-
angurinn aftan á. Það var mikil
viðhöfn, þegar leiðangurinn var
tilbúinn til brottfarar, ræðuhöld
og flugeldar, hljómsveit lék og
fulltrúar viðkomandi þjóða gáfu
sínum mönnum flögg á bílana.
Svo gaf eiginkona fyrsta sendi-
ráðsritara Frakka rásmerkið, og
fylkingin sé af stað. Fyrst kom
hljómsveitin, síðan fulltrúi Le
Martin í Spijkernum, og saman
við heiðursskothríð fallbyss-
anna, springa flugeldar og belj-
andi hljómsveit í fararbroddi
gjammið i Pékine — litlu tíkinni
hans Godards. Að lokum náði
fylkingin norðurhliðum borgar-
innar, og ökumennirnir hertu
förina. Léttur regnúðinn safnað-
ist um þá og vegirnir voru orðn-
ir leðjustrik með hvössum stein-
um, sem skóku bilana óvægilega.
Hér varð að fara hægt og nota
lægstu gírana. En hvað um það,
sögulegasti þolraunaakstur ald-
arinnar var hafinn, Peking að
baki; framundan var París eftir
ótrúlega og ófyrirsjáanlega erf-
iðleika. Og Pékine gjammaði.
Bílaprófun Vikunnar
Framhald af bls. 9.
sambandi við það, að hægt er að
opna allt framrúðustykkið í einu
lagi.
Að aftan er hægt að opna bfl-
inn upp á gótt. Hurðinni er skipt
í tvennt þversum, og opnast efri
helmingurinn upp en hinn niður.
Þannig útbúinn gleypir blllinn ein-
hver ósköp, og aftursætinu má
kippa út í snarheitum, ef flytja þarf
mikið. Bilið, sem annars verður frá
aftursæti aftur að hurð, er eina
farangursrúmið f bílnum, þegar
hann er fullsetinn, og sannarlega
ekki of mikið. Enda hafa margir
sett á þá toppgrindur til að geta
haft eitthvað með sér.
Vélin er sex strokka, 105 ha,
og virSist úrvals gripur. Ég
minnist þess ekki, aS nokkur
vél sem ég hef kynnzt, fari eins
vel í gang. Rétt a3 koma við
lykilinn, og Fordinn malar eins
og giaður köttur. Og þegar
komiS er í land, sem er erfitt yf-
irferSar, þá er verulega gaman
aS Bronkónum. Eini verulegi
gallinn þá er aS mínu viti sá,
aS ekki er hægt aS láta bflinn
fara nógu hægt, svo maSur hef-
ur tilhneigingu til aS syndga
upp á kúplinguna og þaS er ekki
nógu gott. Þetta á við úm þann
meS lægra drifinu, hvaS þá
þann meS því hærra, en hægt
er aS velja um tvö drif í bílinn.
Skifting milli drifa f bílnum er
gerð með stöng, sem er á sama
stað og venjuleg gírskiptistöng á
bílum, sem hafa gólfskiptingu. Ég
bjóst við, að maður myndi meira
fálma eftir henni en raunin varð á,
kannski er ég bara orðinn vanur
stýrisskiptingunni .Drifskiptistöng-
in hreyfist fram og aftur, val um
fjórar stillingar, og skilin milli
þeirra ekki alveg nógu glögg.
Oþarfi á að vera að nema staðar
til að skipta milli drifa, og þetta
er rétt, hvað snertir endastöður
stangarinnar, en til þess að finna
fyrir víst millistiilingarnar verður
maður að nema staðar og prófa
sig áfram .
Ekki varð ég gripinn Broncóæði,
þótt ég settist um stund undir stýri
tveggja Bronkóa. Hins vegar var ég
sáttari við þá eftir að prófa þann
seinni og skildi við þá með það á
tilfinningunni, að gangverkið —
vélin, gírkassarnir og drifin —
væru góð vara og örugg, og eftir
sem áður þykir mér bíllinn heldur
fallegur. S. H.
Ég get gert
betur en pabbi
Framhald af bls. 21.
an stað gegnum farangursgeymsl-
una. En eiginkona Billys stóð eftir
á vellinum og var hrint um koll af
æstum skrflnum.
Maðurinn, sem hefur haft mest
áhrif á söngferil Nancy fram til
þessa, er aðalumboðsmaður henn-
ar Lee Hazlewood, sá sem raunveru-
46. tw. VIKAN 39