Vikan - 17.11.1966, Side 41
Eldavélar:
Fjölmargar gerðir.
Helluborð:
Tvær gerðir: Inngreypt
eða niðurfelld. Klukku-
rofi, borð úr Krómnikkel-
stóli, sjálfvirk hraðsuðu-
hella m. 12 hitastilling-
um.
Bakaraofn:
Klukkurofi, tvöföld hurð,
innri hurð með gleri, Ijós
í ofni, infra-grill með
mótordrifnum grillteini.
Lofthreinsari:
Afkastamikill blásari,
loftsía, lykteyðir.
SÖLUUMBOÐ UM ALLT LAND
REYKJAVfK: HÚSPRÝÐI H.F.
Laugavegi 176. — Símar 20440 — 20441.
BRÆÐURNm
Vesturgötu 3. Sími 11467.
ammBBam h.f.
lega skapaði „These boots are
made for walkin". Hann hafði alls
ekki Sinatradótturina sérstaklega í
huga, þegar hann samdi þetta lag.
En hann aftur á móti neyddi hana
til að taka upp nýjan söngstíl, sem
henni var eiginlega alls ekki að
skapi. Fram að því hafði Nancy
Sinatra hvíslað lögum eins og
„Tonight you belong to me" eða
„Think of me" viðkvæmnislega að
hljóðnemanum með misjöfnum ár-
angri. En dag einn tók Lee Hazle-
wood af skarið og sagði við hana:
— Nú hættirðu þessu. Þú ert ekki
lengur seytján ára stelpa með koll-
inn fullan af dagdraumum, heldur
fullþroska kona. Sem sagt, þú skalt
syngja sem slfk.
Nancy sýndi fullan skilning á
þessu.
— Það er alveg makalaust, sagði
blaðamaður nokkur, — hún bregzt
við eins og brúðan Olympia f „Æv-
intýrum Hoffmanns". Söngverkið
gengur í samræmi við það, hvernig
það er dregið upp.
Meðan Frank Sinatra heldur
áfram að lofsyngja rómantíkina í
sfvinsælum dægurlögum, sem færð
eru í nýjan búning, gerir dóttir hans
kunnugt: — Ég geri betur en pabbi.
Með hörkulegum raddblæ syngur
hún um „and-rómantíkina". Hvort
þetta gefst betur er svo undir
áheyrandanum komið. Hún hefur
náð meiri hylli upp á síðkastið, svo
mikið er vfst. Það sýnir salan á
plötum hennar. Nýja lagið hennar
„How does that grab you, darling?"
virðist einnig ætla að ná miklum
vinsældum. Það er mjög í sama dúr
og „Stígvélin", og það er með ráð-
um gert, segir ungfrú Sinatra. Stíg-
vélin hennar Nancy eru augljós-
lega ekki bara til að þramma á
þeim, heldur eru þau tákn nýrrar
allvígalegrar kvenfrelsisstefnu. —
Ef sá útvaldi er ekki nógu fljótur
til að sýna áhuga, tekur konan ein-
faldlega málin í sínar hendur.
— Það má nota ýmsar aðferðir
til að ná tangarhaldi á karlmönn-
um, hálfhvæsir Nancy í hljóðnem-
ann og grfpur öðru hverju fram í
fyrir hljþðfærunum með stuttu
vonzkulegu „ha" eða „yeah" eða
„wouw" eða „rrr". Milljónir dæg-
urlagaunnenda af veikara? kyninu
eru stórhrifnar af þessu. Milljónum
karlhlustenda finnst sér ögrað til
að temja stígvélakisu.
I kvikmyndinni „The angry
angels" (Reiðu englarnir) leikur
Nancy „bifhjólabrúði" á móti Peter
Fonda, syni Henry Fonda. Hún
bæði klórar og bítur, og ekki nóg
með það, heldur gengur hún f
svörtum leðurstakki með hakakrossi
á, eingöngu af löngun til að vera
ógnvekjandi í útliti. Þar með ætti
draumlynda stúlkan að vera kveð-
in niður í eitt skipti fyrir öll, segir
Nancy Sinatra.
Hún á hús í Beverly Hills; auk
þess á hún tvo hraðskreiða bfla til
skiptanna, einn Mustang og einn
Honda. Hana dreymir um að elgn-
ast fimm eða sex börn. En — þeg-
ar hún fer að hugsa sig betur um,
— þá yrði hún sennilega að gifta
sig, og það vill hún ekki gera aftur
í bráð.
Meðan Nancy var í Evrópuför-
inni, safnaði hún blaðaúrklippum
af kappi með efninu Nancy Sinatra
til að senda föður sfnum í Kali-
forníu. — Hann hefur gaman af
því, segir hún. Samband föður og
dóttur er miklu betra en almennt
er álitið. Reyndar gerir Nancy góð-
látlegt gys að því, hvað faðir henn-
ar hugsar mikið um peninga og
hvað hann er mikill harðstjóri yfir
umhverfi sfnu. En þegar hún segir:
— Ég hata Sinatra, eins og hún hef-
ur stundum gert, þá á hún fremur
við Sinatranafnið en persónuna.
Auðvitað hefur það verið mikill
stuðningur fyrir Nancy að eiga
frægan og valdamikinn föður. Frank
Sinatra er varaformaður Warner
Bros félagsins, sem fyrir skömmu
keypti hljómplötufyrirtækið
„Reprise".
— Þegar ég var lítil, hataði ég
alla þessa skemmtanalífshringavit-
leysu, sem ég kynntist svo vel
gegnum föður minn, segir Nancy
Sinatra. — Ég var sölumaður, um-
boðsmaður, einkaritari, — en að
lokum átti það eftir að fara svo,
að ég varð sjálf söngkona.
Og fyrst við erum á annað borð
að tala um föðurinn, sakar ekki að
geta þess, að hin óbilgjarna gagn-
rýni hans á „stígvéla"-plötunni
þarfnast smávegis leiðréttingar.
Frank fór ekki niðrandi orðum,
heldur einmitt lofsamlegum orðum
um þetta fræga lag dóttur sinnar,
sem hann sagði, að hún syngi „með
reglulega skemmtilegri, lítilli rödd".
Þetta með lítilf jörlegu (= litlu)
Pv r i'
SKARTI GRI Pl R
i 1
SIGMAR & PÁLMI
Hverfisgötu 16A, sími 21355
46. tbi. VIKAN 41