Vikan - 01.06.1967, Page 34
Eldhúsborcf
á einum fsefi
STALHUSG’O'GN
meira gólf pláss ■ létt ■ gott verff
■ allar gerffir og stxrffir ■
■ slólar bekkir kollar ■
■ greiffsluskilmálar ■
betra ad sitja betra ad hreinsa betra ad rada
vií Odinstorg sími 10322
muni fletta ofan af miklu víð-
tækara samsæri. Sjálfur minnt-
ist ég á það fyrir nokkrum vik-
um, að ég hefði nokkra menn
frá Kúbu grunaða. Þetta var
ekki annað en yfirvarp. Þegar
fréttin um það, að ég væri
að rannsaka málið, barst út fyrir
tilstilli blaðanna, og miklu fyrr
en ég hefði viljað, varð ég að
grípa til þess ráðs að reyna að
villa um fyrir almenningi, svo
mér yrði ekki gert ókleift að
halda áfram. Ég lét það í veðri
vaka að það væri Kúba, sem
stæði að baki morðinu.
Morðinginn sjálfur
er ennþá ófundinn.
í sannleika sagt eru einhver
tengsl, þó að lausleg séu, milli
þessa samsæris og öfgamanna á
Kúbu. Oswald hafði án efa ein-
hver sambönd við þá.
En ég hef ástæðu til að ætla,
að Shaw hafi viljað hafa sem
allra fæsta þátttakendur að kom-
izt varð af með í samsærinu,
eftir að hann komst að þessum
samböndum Oswalds. Hvort sem
sú var ástæðan eða hitt, að hann
var afbrýðisamur við Oswald, —
er svo mikið vist að Shaw tók
engan virkan þátt í síðustu at-
riðunum í undirbúningi málsins.
En hitt, að hann klakti út
þessari þokkalegu fyrirætlun í
samráði við Ferrie, ætti að duga
honum til tíu ára fangelsisvistar.
Samt vil ég gjarna lofa honum
því, að hann skuli fá að fara
frjáls allra ferða sinna ef hann
framselur þann mann sem skaut
skotinu, sem reið Kennedy að
fullu: Manuel Garcia Gonzales.
☆
Þetta verður allt að
þróast....
Framhald af bls. 21
til þess að ekki þurfi að nota
salinn undir slíkt og einnig sér-
stakur hljóðupptökusalur, sem
ekki þyrfti að vera stór.
— Eru nokkrir nýir framhalds-
þættir væntanlegir á næstunni?
— Það verður þá ekki fyrr en
í haust. Sjónvarpið verður eins
og kunnugt er lokað allan júlí-
mánuð vegna sumarleyfa, og þeir
þættir sem nú eru fastir, ganga
áreiðanlega eitthvað áfram þá.
— Heldurðu að menn sakni
ekki sjónvarpsins í júlímánuði?
— Ég veit ekki. Sumir munu
kannski sakna þess1, en aðrir
verða ugglaust dauðfegnir. Fólk
hefur annað að gera á sumrin
en sitja inni og horfa á sjónvarp.
Þar að auki sést illa á skermin-
um í birtunni um hásumarið.
— Hvað um norræna sam-
vinnu í sambandi við sjónvarps-
efni?
— f sumar heldur stjórn Nord-
Vision, sem er samtök allra sjón-
varpsstöðva á Norðurlöndum.
fund hér í Reykjavík. Þá verður
væntanlega samið í ríkara mæli
um bein skipti á sjónvarpsefni.
Sú samvinna er að vísu þegar
hafin, og við höfum sýnt marga
þætti frá hinum Norðurlöndun-
um, þótt við höfum ekki lagt
mikið af mörkum sjálfir. Eina
efnið sem við höfum lagt til er
Surtseyjarmyndin, sem sýnd var
fyrir nokkru og danski sjónvarps-
maðurinn Leth Sörensen tók á
okkar kostnað. Þótt sjónvarpið
okkar sé enn á byrjunarstigi, þá
efast ég ekki um, að við munum
geta lagt ýmislegt efni til, þegar
fram líða stundir.
— Hversu lengi ganga fram-
haldsþættir yfirleitt, eins og t.d.
Dýrlingurinn?
— Það er mjög misjafnt og
fer að sjálfsögðu eftir vinsæld-
um þeirra hvers og eins. Norð-
menn sýndu 50—60 þætti af Dýr-
lingnum, þegar nokkru eftir að
sjónvarpið þeirra hófst, en nú
eru þeir byrjaðir að sýna hann
aftur. Yfirleitt höfum við orðið
að kaupa miklu fleiri af fram-
haldsþáttunum en við vildum.
Þeir vilja helzt ekki selja minna
en 26 þætti í einu, og við höfum
veika aðstöðu, þar sem við get-
um ekki borgað nema lítið fyrir
þættina. Það tekur alltaf tíma
að fá erlendar sjónvarpsstöðvar
til þess að anza þessum lágu til-
boðum frá okkur. Þó hefur það
gengið furðu vel. Okkur hefur
gengið betur að fá leikna þætti
og þætti þar sem listamenn koma
fram frá Bandaríkjunum en Ev-
rópu. Það stafar af því, að í
Bandaríkjunum greiða framleið-
endurnir listamönnunum í eitt
skipti fyrir öll og eiga síðan
þættina til eigin ráðstöfunar. Víð-
ast hvar í Evrópu fá hins vegar
allir aðilar aukagreiðslu fyrir
hverja sýningu. Slikt er miklu
erfiðara viðfangs, þegar um lága
greiðslu er að ræða eins og hjá
okkur. Ég gizka til dæmis á, að
ástæðan til þess að við fengum
hina ágætu Shakespeare-þætti
BBC hafi verið sú, að þar hafi
komið til einhver niðurgreiðsla
af hálfu brezka ríkisins.
— Hvernig kanntu annars við
starfið?
— Það hefur verið mjög gam-
an að taka þátt í þessu uppbygg-
ingarstarfi hér í sjónvarpinu.
Starfsfólkið er ungt og hressilegt,
enda hefði ekkert þýtt að leggja
upp í þetta nema með ungu fólki.
Gömlu tækin og allur hinn frum-
stæði útbúnaður hefur reynt mik-
ið á taugarnar. Það er ekki til
enn þá nema eitt eintak af mörg-
um vélunum, svo að ekkert má
bila. Og ef einhver starfsmaður
tekur upp á því að veikjast, þá
er voðinn vís.
Ég vil minnast á samstarfs-
menn mína hér í skemmtideild-
inni, þá Tage Ammendrup og
Andrés Indriðason. Þeir stjórna
þeim þáttum sem við sjáum um
og hafa báðir staðið sig prýði-
lega. Álagið á þeim hefur verið
geysilega mikið. Erlendis fá
stjórnendur miklu lengri tíma
til að vinna að þáttum sínum.
Tage stjómaði til dæmis upp-
tökunni á Jóni gamla, og er-
lendis hefði hann fengið minnst
hálfan mánuð til þess eins að
semja „skotlistann". Ég mundi
segja, að bara það eitt að stjórna
34 VIKAN
22. tbl.