Vikan - 20.07.1967, Blaðsíða 4
FerO ferir tvi til Mirikki. Pilinid
Bvidivélir. n snrtvinr frá Belii
OLAROID er ævintýri líkast. Þú tekur mynd, bíður síðan í 15 sekúndur og dregur
® þá myndina framkallaða og: tilbúna út úr vélinni. Það sem hingað til hefur mest
angrað þá sem gaman hafa af að taka myndir í tómstundum sínum, en framkalla ekki
sjálfir, hefur einmitt verið biðin meðan verið er að íramkalla filmuna. Nú er þessi bið
úr sög-unni.
Auk þeirrar skemmtunar sem Polaroid veitir mönnum í tómstundum þeirra, eru at-
vinnufyrirtæki þegar farin að nota Polaroid við starfsemi sína. Polaroid er mjög hand-
hæg vél fyrir tryggingafyrirtæki, sem þurfa að taka myndir af skemmdum bíla, sem
lenda í árekstri, fyrir skipafélög, sem taka myndir af vörum sem skemmzt hafa, —
og svo mætti lengi telja. Polaroid hefur mikið hagnýtt gildi íyrir atvinnufyrirtæki og höf-
uðkosturinn er að sjálfsögðu sá, að myndin er tilbúin STRAX.
í Sumargetrauninni eru tíu POLAROID SWINGER myndavélar og fyrir þá sem komn-
ir eru lengra í Ijósmyndalist höfum við einnig tvær POLAROID AUTOMATIC (210 og
250) sem eru raunar jafn auðveldar og SWINGER, nema hvað stilla þarf fjarlægðina.
AÐ VAR MIKIÐ um dýrð-
ir þegar þota Flugfélags
íslands kom til landsins, enda
um að ræða fyrstu þotuna, sem
íslendingar eignast. Þar með höf-
um við gerzt aðilar að þotuöld-
inni og ferðir til framandi landa
taka nú skemmri tima en áður.
Mikill mannfjöldi safnaðist sam-
an á Reykjavíkurflugvelli í talíð-
skaparveðri laugardaginn 24.
4 VIKAN 29-tbl-
júní sl. og fagnaði Gullfaxa hin-
um nýja. Lúðrasveit lék og ræð-
ur voru fluttar og almennur
fögnuður rikti.
Með komu hinnar nýju Boeing
727 þotu hefur Flugfélag íslands
náð mikilvægum áfanga. 1. júlí
sl. var tekið upp þotuflug í dag-
legum samgöngum við meginland
Evrópu og Bretlands. Nú tekur
ekki nema 2 klukkustundir og
40 mínútur að fljúga til Kaup-
mannahafnar og 10 mínútum
skemur er verið að fljúga til
London.
Þeir sem hreppa fyrsta vinn-
inginn í Sumargetraun Vikunnar
hljóta ferðalag alla leið til Ma-
rokkó eins og kunnugt er. Þeir
hefja ferðalagið með því að stíga
upp í hina nýju og glæsilegu
þotu Flugfélagsins og fljúga með
henni til Kaupmannahafnar. Þar
stíga þeir upp í aðra þotu, kann-
ske nákvæmlega af sömu gerð,
frá SABENA og halda áfram til
áfangastaðarins. Hinir lánsömu
lesendur Vikunnar munu komast
að raun um, að hvað aðbúnað
farþega snertir stenzt Gullfaxi
samanburð við hið allra bezta,
sem tíðkast í þotum á lengstu
flugleiðum. Boeing-verksmi'ðj-
urnar hafa kappkostað að draga
úr titringi og hávaða og tryggja
þægindi farþega á allan hugsan-
legan hátt.
BBgi' 5Miífi i .«jf ^‘ ,‘íi-vúL '• ■ &é§iÉ
ÍWIfe'lÍrF' ” Mlm