Vikan - 20.07.1967, Page 5
Y JALD — BAKPOKI — SVEFNPOKI —
LAXAPOKI — allt eru þetta vinningar í
Sumargetraunimii okkar og þeir eru allir frá
Belgjagerðinni hf. Hér er um fyrsta flokks vöru
að ræða, enda hefur Belgjagerðin lagt kapp á að
gera útileguútbúnað sinn stöðugt léttari og með-
færilegri, en jafnframt sterkari og endingarbetri.
Þeir nota eingöngu fyrsta flokks vestur-þýzk efni,
sem hafa reynzt afar vel.
Mörgum hefur þótt súrt í brotið, þegar tjaldið
hans hel'ur bilað lítils háttar, að geta ekki fengið
gert við það. Nú er þetta vandamál úr sögunni. —
Belgjagerðin hefur komið á fót viðgerðarþjónustu.
Þar er gert við öll tjöld, sem Belgjagerðin fram-
leiðir.
Fátt er skemmtilegra en bregða sér í svolitla
útilegu og hvílíkur munur að eiga þá allan útbún-
aðinn sjálfur, en þurfa ekki að hlaupa um á milli
kuimingjanna og fá tjaldið hér, svefnpokann þar
og bakpokann kannski í þriðja staðnum. Það er
hverjum manni nauðsynlegt að eiga þessa hluti til
þess að hann geti brugðið sér út í náttúruna í
stutta ferð eða langa eftir atvikum.
í Sumargetraunmni okkar gefst lesendum tæki-
færi til að eignast vandaðan útileguútbúnað frá
Belgjagerðinni — ef heppnin er með.
Getrauiii fer banaie
fnn:
Við höfum raðað saman sex orðum með mismunandi letri og klippt þessi
orð niður í búta. Þið eigið að raða bútunum saman upp ó nýtt og skrifa
orðin, sem þó komci út, Á EYÐUBLAÐ SEM VERÐUR í SÍÐASTA BLAÐI
GETRAUNARINNAR. Skrifið síðan nöfn og heimilisföng ó úrklippuseðlana
ÚR ÖLLUM BLÖÐUNUM, sem getraunin verður í, og sendið VIKUNNI
Ciscimt eyðublaðinu með lausnarorðunum.
MUNIÐ: SENDA VERÐUR ÚRKLIPPUSEÐLA ÚR
ÖLLUM GETRAUNARBLÖÐUNUM í EINU LAGI
ÁSAMT LAUSNARORÐUNUM.
[ '
1 1 1 SUMARGETRAUN 3.
1 1 NAFN:
1 1 IH HEIMILI:
’S 'ft
ð 1 SlMI:
1 1 29. tbi. VIKAN 5
i
i
i