Vikan - 20.07.1967, Qupperneq 7
huga á hjúkrun og mig langar
til að spyrja þig nokkurra spurn-
inga í sambandi við hana:
1. Hvað þarf maður að vera
gamall til þess að geta byrjað
að læra hjúkrun?
2. Þarf maður að vera mennta-
skólagenginn?
3. Hvað er maður lengi að
læra hjúkrun?
4. Þarf maður að kunna ein-
hver tungumál?
P.S. Hvernig er skriftin?
Ein áhugasöm.
Þegar þú ert orðin 18 ára get-
urlðu hafið nláWi í Hjúkrunar-
skóla fslands. Þú þarft ekki að
vera menntaskólagengin, en hins
vegar þarftu að liafa annað hvort
gagnfræðapróf eða landspróf og
þú þarft að hafa yfir 6 í rétt-
ritun, reikningi og dönsku. Hjúkr-
un mun vera fjögurra ára nám.
Annars skaltu snúa þér til skóla-
stjóra Hjúkrunarskóla íslands og
fá hjá honum nánari upplýsingar.
Hann hefur viðtalstíma frá klukk-
an 16—11 á þriðjudögum og
fimmtudögum. Það er mikill
skortur á hjúkrunarfólki í Iand-
inu og auk þess er hjúkrun göf-
ugt starf og svolítið rómantískt
á köflum. Þú skalt’ ekki hika við
að gera hjúkrun að lífsstarfi þínu.
LEIKLIST.
Kæri Póstur!
Vilt þú vera svo góður áð
svara nokkrum fyrirspurnum um
leiklist, sem er áhugamál mitt:
1. Er til leiklistarskóli sem
heitir Leiklistarskóli æskunnar
eða leikhús sem heitir Leikhús
æskunnar?
2. Hver er hámarksaldurinn
og hvað kostar eitt námskeið?
3. Hvaða próf þarf að hafa til
að innrita sig inn í L. R. eða
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins?
Vertu blessaður og sæll.
L.
Við vitum ekki til að Leiklist-
arskóli æskunnar hafi nokkum
tíma verið til. Hins vegar starf-
aði Leikhús æskunnar með mikl-
um blóma til skamms tíma og
lifir góðu lífi enn. Það var stofn-
að af áhugamönnum og þeir réð-
ust í hvert stórvirkið á fætur
öðru, sýndu opinberlega leikrit-
in Herakles og Ágíusarfjósið og
Einkennilegur maður eftir Odd
Björnsson. Sömuleiðis sýndu þeir
valda þætti úr leikritum Shake-
speares. Kostnaðurinn við þessar
uppfærslur varð svo mikill, að
hið unga áhugafólk leitaði á náð-
ir Reykjavíkurborgar, og síðast-
Iiðinn vetur var leikhúsinu breytt
í Leikklúbb æskunnar á vegum
æskulýðsráðs. f klúbbnum voru
síðatliðinn vetur 15 manns, sem
starfaði af miklum dugnaði og
áhuga, hélt margar kvöldvökur
og minni háttar sýningar. 1 sum-
ar ætlar klúbburinn að bregða
sér í utanlandsreisu til Danmerk-
ur og Þýzkalands. Inngöngu í
Leikklúbb æskunnar fá allir sem
orðnir eru 15 ára og eru ekki
orðnir eldri en 25 ára. Næsta
vetur verður starfsemin umfangs-
meiri en áður, og þá er ráðgert
að koma á fót leiklistarnámskeiði.
Til þess að komast í Leikskóla
L. R. eða Leikskóla Þjóðleikhúss-
ins þarf gagnfræðapróf, en einnig
þurfa umsækjendur að standast
inntökupróf, sem haldið er ár-
lega í Iðnó en annað hvert ár í
Þjóðleikhúsinu.
PÚKÓ TEXTI.
Kæra Vika!
Við erum hérna tvær stelp-
ur og erum báðar ægilegir aðdá-
endur Dáta. Núna nýlega er nýj-
asta platan þeirra loksins komin
á markaðinn. Þar er eitt lag sem
okkur finnst svaka næs, en text-
inn við það er svo púkalegur og
gamaldags, að við erum alveg
rasandi. Hann er um einhvern
kall á Eyrinni og er svo dreif-
býlislegur, að hann gæti verið
frá því árið sautján hundruð og
súi'kál. Önnur okkar á fimmtuga
frænku og hún syngur oft eitt-
hvert lag sem heitir Bjössi á
mjókurbílnum. Þessi texti um
Gvend á Eyrinni er nákvæmlega
eins. Hvemig dettur Dátum í hug
að setja svona texta við veru-
lega sætt og næs bítlalag?
Bless.
Tvær með Dátum.
Við höfum því miður ekki heyrt
þetta lag, en getum samt ímynd-
að okkur að Gvendur karlinn á
Eyrinni eigi lítið erindi inn í
nýmóðins bítlalag. Hér hefur Dát-
um orðið á í messunni. Þeir hafa
ruglað saman nýja og gamla tím-
anum, en milli þeirra er heilt
hyldýpi, eins og allir vita.
^^bankett
VIFTAN YFIR ELDAVÉLINA
Hreint og hressandi! Það er gaman að matreiða í nýtízku eldhúsi, har sem loftið
er hreint og ferskt. Það skapar létta lund, vinnugleði og vellíðan, hvetur hug-
myndaflugið — og matarlykt og gufa setjast ekki í nýlagt hárið né óhreinka föt
og glliggatjöld; málning og heimilistæki gulna ekki og lireingerningum fækkar.
Raunveruleg loftræsting! Með Bahco Bankett fáið bér raunverulega loftræstingu,
því auk þess að soga að sér og blása út gufu og matarlykt, sér liún um eðlilega
og heilnæma endurnýjun andrúmsloftins í eldhúsinu og næstu herbergjum. Sog-
getan er ein af ástæðunum fyrir vinsældum Bahco Bankett.
Hljóð! Þrátt fyrir soggetuna lieyrist varla í viftunni. Bahco Bankett er sennilega
hljóðasta viftan á markaðinum.
Engin endurnýjun á síum! Athugið sérstaklega, að Bahco Bankett barfnast engrar
endurnýjunar á lykt- og gufueyðandi síum, sem dofna með tímanum. Bacho Bank-
ett hefur engar slílcar, en heldur alltaf fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Fitusíur úr ryðfríu stáli! Bahco Bankett hefur hins vegar 2 stórar, varanlegar fitu-
síur úr ryðfríu stáli, sein ekki einungis varna því, að fita setiist innan í útblásturs-
stokkinn, heldur halda viftunni sjálfri hreinni að innan, því að loftið fer fyrst
gegnum síurnar. Fitusíurnar eru losaðar með einu handtaki og einfaldlega skolaðar
úr heitu vatni stöku sinnum.
Rétt vinnuhæð, innbyggt Ijós og rofar! Lögun Bacho Bankett skapar óþvingað
svigrúm og sýn vfir eldavélina. Innbyggt liós veitir þægilega lýsingu og rofarnir
fyrir Ijós og viftu eru vel og fallega staðsettir.
Falleg, stílhrein og vönduð — fer alls staðar vel! Bacho Bankett er teiknuð af
binum fræga Sigvard Bernadotte, eins og mörg fallegustu heimilistækin í dag, og
cr sænsk úrvalsframleiðsla frá einum stærstu og reyndustu og nýtízkulegustu loft-
ræstitækjaverksmiðjum álfunnar.
BACHO ER BETRI. I*a3 cr einróma álit neytcndasamtaka o; rcynslustofnana ná-
grannarikjanna, að útblástursviftur einar veiti raunveruleea loftræstingu. Hagsýnir
húsbygBjendur gera hví rá'ð fyrir úthlástursgati eða sérstökum loftháfi. Þcir, sem
endurnýja eldri eldhús, hrjóta einfaldlega sat á útvegg cða ónotaðan reykháf. Sú
fyrirhöfn marghorgar sig.
NÝJNG: Bahco raðstokkar. Við höfum nú á hoðstólnum létta og sterka, hvíta
plastpoka með beygjum og öðru tilheyrandi, scm hver og cinn getur raðað saman,
án minnsta erfiðist eða sérstakra verkfæra.
Veljið því rétt, veljið viftu, sem veitir
raunverulega loftræstingu og hcldur allt-
af fullum afköstum — kostnaðarlaust.
Veljið BAHCO BANKETT.
• •
Komið, skrifið eða útfyllið úrklipp-
una og fáið allar upplýsingar um
Bahco Bankett, stokka, uppsetningu,
verð og greiðsluskilmála.
SÍMI 24420. SUÐURGÖTU 10 RVÍK.
FONIX
Sendið undirrit. Bahco Bankett myndalista með öllum upplýsingum:
Nafn: ..........................................................
Heimilisfang:
Til Fönix s.f., pósthólf 1421, Reykjavik.
29. tbi. VIKAN 7