Vikan - 20.07.1967, Side 15
HUIKULT
w mu
18. HL.UTB
Svo opnaöi ég afturdyrnar og velti Louis
út á jöðina. Slefan rann út á millri þykkra,
blárra varanna, og myndaði bólur, þegar
hann andaði fá sér.
Hún féll saman í sætinu eins
og hrygglengjan í henni hefði
bráðnað. -— Þú mátt ekki láta þau
sleppa, sagði hún fýlulega. Eftir
allt sem þau hafa gert mér. Ef þú
lætur Ti'oy sleppa, drepur hann
þig strax í dag.
—Það hugsa ég ekki, sagði ég.
— Gleymdu þeim og farðu að
hafa áhyggjur af sjálfri þér.
— Ég hef enga framtíð til að
hafa áhyggjur af, er það?
— Ég vil fá að sjá Sampson
fyrst, svo skal ég ákveða það.
— Ég skal vísa þér til hans.
— Hvar er hann?
— Ekki langt að heiman frá
sér. Hann er við ströndina um
það bil fjörutíu mílur frá Santa
Teressa.
— Er þetta satt?
— Þetta er satt, Harper, en þú
sleppir mér ekki. Þú vilt ekki
taka yið peningunum, vænti ég?
—Ekki frá þér.
— Hversvegna ættirðu að gera
það? spurði hún illgirnislega. —
Þú hefur náð í hundrað þúsund-
in mín.
— Ég vinn fyrir Sampson fólk-
ið. Það fær þau aftur.
— Það þarf ekki á peningum að
halda. Af hverju hugsarðu þig
ckki um Harper. Það er önnur
persóna í þessu með mér. Þessi
önnur persóna átti engan þátt í
því, sem kom fyrir Eddie. Hvers
vegna heldurðu ekki peningunum
og skiptir þeim jafnt með þessarri
annarri persónu?
— Hver er hann?
— Ég sagði ekki að það væri
karlmaður. Röddin var farin að
ná sér eftir meðferð Marcie og nú
beitti hún henni af mestu snilld.
—Það er óhugsandi, að þú get-
ir unnið með konu. Hver er þessi
karlmaður? Hún vissi ekki, að
Taggert var dáinn, og þetta var
elcki rétta stundin til að segja
henni það.
Gleymdu því, Mér datt að-
eins í hug, að ég gæti treyst þér.
Ég hlýt að vera orðin eitthvað
verri. Ég hef ekki sagt þér hvar
Sampson er. — Því lengri tíma
sem það tekur þig að segja mér
það, þeim mun minna langar mig
að gera nokkuð fyrir þig.
— Hann er í húsi á ströndinni,
um það bil líu mílur norður af
Buenavista. Hann er í því
sem einu sinni var búningsher-
bergi strandklúbbs, sem fór á
hausinn í stríðinu.
Og er hann lifandi?
— Hann var það í gær. Fyrsta
daginn var hann veikur af klóró-
forminu, en það er allt í lagi með
hann núna.
— Var í gær, meinarðu. Er
hann bundinn?
— Ég hef ekki séð hann. Eddie
var sá eini.
— Og þú hafðir hugsað þér
að láta hann svelta í hel.
— Ég gaí ekki farið þangað
Hann þekkti mig í sjón. Eddie var
sá eini, sem hann þekkti ekki.
— Og Eddie dó af slysni?
— Nei, ég drap hann. Hún sagði
þetta næstum hreykin. — En
þú getur samt aldrei sannað það.
Ég var ekki að hugsa um Samp-
son, þegar ég skaut Eddie.
—Þú varst að hugsa um pen-
ingana. Að skipta þeim í tvennt
í staðinn fyrir þrennt.
— Ég viðurkenni, að það var
að nokkru leyti það, en aðeins
að hluta. Eddie varð mér til marg-
háttaðrar bölvunar allt frá þvi að
ég var krakki. Þegar ég loksins
gat farið að standa á eigin fótum
og var farið að verða eitthvað á-
gengt, kom hann mér í tukthús.
Ég var í dópinu og hann seldi það.
Hann hjálpaði löggunni að sanna
það á mig, og fékk í staðinn létt-
an dóm sjálfur. Hann vissi ekki,
að ég vissi það, en ég hét því að
launa honum lambið gráa. Ég
náði honum, þegar hann hélt að
hann væri kominn á græna grein.
En kannski það hafi ekki komið
honum svo mjög á óvart. Hann
sagði Marcie, hvar hann gæti
fundið mig, ef eitthvað gengi úr-
skeiðis.
— Það gerir það alltaf, sagði
ég. — Mannrán borgar sig ekki.
Allra sízt þegar ræningjarnir fara
að myrða hver annan.
Ég beygði inn á Sunset Boule-
vard og nam staðar við fyrstu
bensínstöðina, sem ég kom á. Hún
horfði á mig taka kveikjulyklana
úr.
- Hvað ætlarðu að gera?
— Hringja eftir hjálp handa
Sampson. Hann getur verið að
dauða kominn, og það tekur okk-
ur að minnta kosti hálfa aðra
klukkustund að komast þangað.
Hefur þessi staður eitthvert nafn?
— Hann var kallaður Suniand
Beach Club. Þetta er löng græn
bygging. Hún sést ofan af þjóð-
veginum.
í fyrsta sinn var ég viss um,
að hún væri að segja sannleikann.
Ég hringdi til Santa Teressa úr
símanum í stöðinni, meðan af-
greiðslumaðurinn setti bensín á
bílinn minn. Ég gat fylgzt með
Betty Fraley í gegnum gluggann.
Felix svaraði í símann: Hjá
Sampson.
—Harper hér. Er herra Graves
þarna?
—- Já, sir. Ég skal ná í hann.
Graves kom í símann. —Hvar í
andskotanum ertu?
—Los Angeles. Sampson er lif-
andi, eða var það að minnsta
kosti í gær. Han ner læstur inni í
búningsklefanum í strandklúbb,
sem kallaður er Sunland. Veiztu
hvar hann er?
— Ég veit það. Hann hefur ekki
verið starfræktur i mörg ár. Ég
veit hvar hann er, norður af Bu-
enavita, hjá þjóðveginum.
— Farðu þangað eins fljótt og
þú getur, með sjúkrakassa og mat,
það er eins gott að þú hafir með
þér lækni og lögregluforingjann.
— Er hann illa haldinn?
Framhald á bls. 44.
29. tbi. VIKAN 15