Vikan - 20.07.1967, Síða 16
EFTIR
RANU
Andres Indriðason
Þeir mölva og
brjóta
Liðsmenn brezku hljómsveitarinnar The Who eru
þekktir fyrir það að ganga berserksgang á sviðinu
og mölva jafnvel hljóðfæri sín mélinu smærra. Þetta
hefur að sjálfsögðu haft æsandi áhrif á áheyrendur*
og það gerðist til dæmis í Árósum fyrir einu ári, aft
svo til allir stólar í áheyrendasal voru mölvaðir,
þegar hljómsveitin komst í „stuð“ — og þar meft
áheyrendurnir. Vart þarf að taka þaft fram, að hljóm-
sveitinni var tilkynnt að leik loknum, að þess væri
vænzt, að hún kæmi ekki oftar fram í húsinu!
Gítarleikari The Who heitir Pete Townsend. Hann
á miklu fylgi að fagna í heimahögum, og á degi
hverjum fær hann stóran bunka af bréfum frá aðdá-
endum sínum, en í bréfunum er nær undantekninga-
laust beðið um að fá einhvern hinna ónýtu gítara,
sem goðið hefur eyðilagt á sviði. Pete var spurður
að því á dögunum, hvað hann gerði við alla ónýtu
gítarana.
Hann sagði, að sumir gítaranna væru settir í við-
gerð — til þess að hann gæti byrjað að mölva þá á
nýjan leik! Og Pete hélt áfram: „Fyrir nokkrum
mánuðum höfðum við bílstjóra, sem safnaði saman
tólf ónýtum gíturum. Hann ætlaði síðan að nota
heillega hluta úr hljóðfærunum og fá þannig nokkra
heila gítara. Skömmu eftir að hann byrjaði að fást
við þetta, sagði hann upp bílstjórastarfinu — og
hefur ekki sézt síðan!
Sænska hljómsveitin Sven Ingvars, sem okkur er að góðu kunn, hefur nú sent frá sér
enn eitt metsölulagið — „Jag ringer pá fredag“. Þetta lag var fyrir skömmu i öðru sæti
sænska vinsældalistans, og hver veit nema það eigi einnig eftir að verða vinsælt hér.
Hljómsveitin ætlar nú að hætta að koma fram á hljómleikum. Þessa ákvörðun tóku þeir
félagarnir nýlega, og hyggjast þeir í framtíðinni leika inn á hljómplötur og vinna að
sjónvarpsþáttum. Þeir hafa nýlega gert þrjá sjónvarpsþætti fyrir þýzka sjónvarpið og
sent frá sér plötu þar i landi.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★**★★★★★★★★★★*★**★*★★★ ★★★*■<. ★★★★★★★★+★★★★*★
VÍSAÐ ÚR LANDI ?
Fyrir nokkrum mánuðum var brezka hljómsveilin
The Quik á ferð í Reykjavík. Þessi hljómsveit er
ein af þúsundum „smáhljómsveita" í Bretlandi, og
það er eins með hana og aðrar þrezkar hljóm-
sveitir, að þcgar hún er komin úr heimahögunum
og í önnur lönd, þá or liún allt í einu orðin óskap-
le'ga fræg. Hljómsveitin The Quik hefur sent fri
sór eina hljómplötu »neð laginu „Love is a heauti-
ful lhing“. Þessi mynd af þeim fólögunum er úr
brezka blaðinu Rccord Mirror, eu í texta með
myndinni sagði svo m.a. „Þeir eru nýkomnir frá
hljómleikaferð um Island, en þar settu þoir allt
á annan endann og voru að lokum beðnir góðfús-
lega að fara burt úr landinu".