Vikan - 20.07.1967, Side 19
deilu, sem um getur í sögunni,
spratt svo allur gyðingdómurinn,
sem hjarað hefur um þrjár þús-
undir ára og er aldrei sprækari en
nú. Ekki er ólíklegt að Nasser
hugsi nú þungt til umrædds fyr-
irrennara síns, að hann skyldi
vera sá dauðans amlóði að upp-
ræta ekki verkalýðshreyfingu
þessa þegar í fæðingunni.
Þessir tveir framámenn líkjast
hvor öðrum að því leyti, að báð-
ir eru framkvæmdamenn um
byggingar og orðhákar, en í garp-
skap hefur þjóð þeirra heldur
betur farið aftur síðan á dögum
Ramsesar. Hætt er við að smyrl-
ingur hins stórmennskufulia forn-
konungs myndi velta sér við, þar
sem hann liggur undir gleri í
Kaíró-safni, ef hann mætti horfa
upp á löðurmannlega stríðs-
frammistöðu dusilmenna þeirra,
sem nú byggja Nílardalinn. Sjálf-
ur stríddi hann á sinni tíð í Asíu,
en ekki gegn smáríki með fimm-
tánfalt færri íbúa en Egyptaland
hefur, heldur gegn Hittítum, ann-
arri voldugustu þjóð hins þekkta
Vesturheims í þá daga, og haf-
andi ekki fimmtíu milljónir Ar-
aba, tvö hundruð milljónir Rússa
og sjö hundruð milljónir Kín-
verja sér að hálfgerðum eða al-
gerðum bandamönnum. Að vísu
sótti Ramses ekki gull í greipar
Hittíta, sem voru styrjaldarmenn
Framhald á bls. 28.
Á þessari loftniynd scst hvar byrjað er
að setja hofið saman spölkorn frá uppi-
stöðuvatllinn, sem nú er fimmtán metra
djúpt yfir fyrrvcrandi gólffleti þess. Land-
ið liarna cr ekki bcint búsældarlegt, cnda
má heita að eyðimörkin Sahara nái al-
veg að vatnsbakkanum.
Forn-egypzkar hcimildir hcrma, að þrjá-
tíu þúsund manns hafi vcrið þrjátíu ár
að höggva hofiö inn í rauðan sandsteins-
hamarinn. í því voru tólf salir, sem
teygðust scxtíu metra inn í fjallið, ríku-
lega skreyttir lágmyndum, áletrunum og
höggmyndum, þar á meðal tíu af Rams-
csi sjálfum, og er hver l>eirra tíu metrar á
hæð (stytturnar á forhliðinni cru tuttugu
metra háar). Nú voru fimmtán hundruð
menn aðeins tuttugu og átta mánuði að
saga hclgidóminn í stykkl og flytja upp
fyrir klettaheltið — að vísu með tækni nú
tímans sér til hjálpar. Hvert stykki er
vandlega mcrkt, til að cngin mistölc vcrði
við endurreisn hofsins.