Vikan - 20.07.1967, Page 27
jmmÆw
í'.í &■#■"',
.', ■■■',
',%}ý/Á
wMM
:■■', -y •
<1 ... og kallar að þýzkur kafbátur sjáist á bakborða. Við vor-
um mcð tuttugu þúsund tonn af bcnsíni í geymunum ...
O . .. þeir voru lifandi lík, ekki holdtóra á beinunum.
O- Þarna sérðu nú sjálfur, hvað þú færð fyrir eina skitna
O fimm dollara.
v.!
>>£*ý■*-■■■
■n*:t
ÞEGAR SELUR ER SKOTINNIAUGA
Jón Pétur Jónsson heitir hann, fæddur
árið 1904 á því fræga þingeyska samvinnu-
höfuðbóli Gautlöndum, uppalinn að nokkru
á Héðinshöfða, þar sem Einar Benediktsson
hefur trúlega líka leikið sér í varpanum, sigldi
síðan um heimsins höf sjö eða fleiri í næstum
tvo tugi ára en stundaði þorskadráp á reyk-
vískum togurum bæði á undan og eftir. Og
nú býr hann í Hrafnistu, þeim stórg helga-
steini íslenzkra sjógarpa, og hnýtir spyrði-
lykkjur til að hengja með skreiðina, sem
við seljum blámönnum þeim af íbóþjóð, sem
nú er búið að setja hafnbann á vegna þess
að þeir vilja ekki vera í bland við aðra
Nígeríumenn.
Jón er sonur Jóns Jónssonar frá Gaut-
löndum, sonar Jóns Sigurðssonar, bónda
og sveitarhöfðingja og bróður Péturs á Gaut-
löndum, hins tápmikla alþingismanns og sam-
vinnuforkólfs. Af Pétri og baráttufélögum
hans er til málverk, sem hangir uppi í sam-
komusal Sambandshússins og gildir þar sem
einskonar altaristafla. Þar birtist Pétur heit-
ur í yfirbragði og rauðskeggjaður, sannur
byltingarleiðtogi. Jón bróðursonur hans er
líka prýðilega skeggjaður, en hans skegg hef-
ur friðsamlegri tit, sem minnir á feld platínu-
refs. Og blá augun eru kyrrlátleg og óherská,
eiginlega barnsleg. Hann talar móðurmálið
með óvenju skýrum og hreinum framburði
og vottar ekki fyrir erlendum hreim, en ein-
staka sinnum, þegar hann nefnir einhver
heiti eða hugtök, grípur hann til ensku eða
dönsku, og þá er framburður hans á þeim
rnálum tilsvarandi hreinn og lýtalaus.
Samtal okkar Jóns fer fram í herbergi
hans á þriðju hæð Hrafnistu. Hann skenkir
mér í óbrjótanlegt glas pilsner, sem hann
hefur tekið ískældan uppúr vaskinum hjá sér,
fylltum gvendarbrunnvatni, og tyllir sér svo á
móti mér við borðið. Svo tínir hann uppúr sér
brandara og frásögur af merkilegum ævintýr-
um í furðulöndum handan við höf, og útskrifuð-
um blöðunum í rissblokkinni minni fjölgar í
takt við lykkjurnar á negraskreiðina, sem hlað-
ast upp í stafla við borðshornið. Jóni segist svo
frá:
— Ég fæddist að vísu á Gautlöndum, en man
ekkert eftir mér þaðan, því ég var ekki nema
tveggja ára þegar faðir minn flutti að Ærlækj-
arseli í Norður-Þingeyjarsýslu. Þaðan flutti hann
að Héðinshöfða, og þar man ég fyrst eftir mér.
Faðir minn hafði allstórt bú, þrjú hundruð ær,
minnir mig, og átján í fjósi, en margt af því
voru geldneyti. Þá var fært frá, og við sátum
yfir, Gunnlaugur bróðir minn og ég. Hann varð
sjómaður eins og ég og flutti út; ég hitti hann
síðar í Fíladelfíu.
JON PÉTUR JQNSSON
RIFJAR UPP MINNINOAR
FRÁ SIGUNGUM UM
HEIMSHÖFIN SJð
Dagur Þorleifsson skráöi - Teikning Baltasar
GAGNFRÆÐINGUR FRÁ AKUREYRI —
TOGARAMAÐUR Á KREPPUÁRUNUM.
Ég fór í gagnfræðaskólann á Akureyri og
lauk þaðan prófi. Mér eru enn minnisstæðir
margir kennaranna minna, til dæmis Sigurður
Guðmundsson, skólameistari. Þú varst að segja
að ég talaði góða íslenzku, og það hlýt ég að
eiga honum að þakka; hann barði þetta mis-
kunnarlaust inn í okkur. Af öðrum kennurum
man ég til dæmis vel eftir Brynleifi Tobíassyni,
Vernharði Þorsteinssyni, sem kenndi dönsku, og
Áma Þorvaldssyni, enskukennara. Meðal skóla-
bræðra minna voru ýmsir, sem nú eru lands-
þekktir, svo sem Valdimar Stefánsson, saksókn-
ari ríkisins, Steingrímur J. Þorsteinsson, prófess-
or við Háskólann, Þórarinn Björnsson, skóla-
meistari á Akureyri og bræðrungur minn Krist-
ján Steingrímsson, fyrrverandi sýslumaður.
Ég hefði ef til vill kosið að halda áfram námi
að loknu gagnfræðaprófi, en um það var ekki
að ræða, því peningana vantaði. Og á sjóinn
fór ég einfaldlega vegna þess, að á skárri og
betur borgaðri atvinnu var enginn kostur. Ég
var fyrst á fiskiskipum fyrir norðan, frá Akur-
eyri og Siglufirði, en síðan á togurum frá
Reykjavík, Skallagrími, Snorra goða, Agli
Skallagrímssyni. En ekki get ég sagt þér hvemig
Reykjavík var á þessum árum — kreppuárun-
um — því ég get varla talið að ég hafi kynnzt
borginni neitt, þótt ég kæmi þar einstaka sinn-
um í land. En kjör sjómanna voru nú dálítið
öðruvísi þá en nú. Þá voru engin vökulög. Mig
minnir að á togurunum væri þá sextán tíma
vinna en átta tíma hvíld. Vetrarvertiðin stóð
svona í hæsta lagi þrjá-fjóra mánuði, febrúar,
marz, apríl og maí þegar bezt lét, en svo var
togurunum lagt það sem eftir var ársins. Tog-
arasjómenn fóru þá á síld, eða þá að þeir reyndu
að fá sér vinnu í landi, sem ekki var hlaupið
að. En frá því á haustin og fram yfir nýár var
ekkert að gera, ekki þá á kreppuárunum.
HJÁ SAMEINAÐA OG STANDARD OIL.
Þetta var erfitt líf, en það var ekki upp á
annað betra að hlaupa hérlendis á þessum tima.
Mig fór að langa til að sjá mig svolítið um í
heiminum, áður en aldurinn færðist yfir mig
um of. Svo að ég lagði leið til Kaupmannahafn-
ar og réðist á flutningaskip Sameinaða gufu-
skipafélagsins. Það var árið 1934. Þar varð ég
að vera ordinary seaman, eða einskonar viðvan-
ingur, í þrjú ár. Það þýddi ekki að reyna að
ráða sig upp á skárri kjör, af því að ég hafði
ekki verið á millilandaskipum áður. Þetta var
svo sem ekkert slæmt nema að því leyti til að
kaupið var lægra. Og mér fannst þetta dálítið
hart, þar sem ég var kominn um þrítugt og
þaulvanur sjómennsku.
Ég sigldi á tveimur skipum frá Sameinaða,
Georgíu, sem sigldi til Norður- og Suður-Ame-
ríku og Nevada, sem aðeins sigldi til Suður-
Ameríku. Þessi skip höfðu mjög merku hlut-
verki að gegna, því þau fluttu heim fóður handa
svínastofni Dana, sem er eins og menn vita
helzta undirstaða þjóðlífsins í landi þeirra. Síð-
an var ég um hríð á þriðja danska skipinu,
sem var frá öðru útgerðarfyrirtæki, Lundby
hét það. Á því sigldi ég um allt, til Suður-Ame-
ríku, Austurlanda og víðar. Ég var á því í
þrjú—fjögur ár, og var þar enn þegar stríðið
brauzt út. Þegar Danmörk var hernumin, tóku
bandamenn skipið til sinna þarfa, og var farið
með það til New York — þar var ég svo
viðloðandi í tíu — tólf ár, sigldi á olíu-
flutningaskipum frá Standard Oil öll stríðs-
árin. Á þeim fór ég á ýmsar hafnir í Evröpu,
Ameríku og Austurlöndum. Svo var ég á Admir-
Framhald á bls. 33.
29. tbi. VIKAN 27
26 VIKAN »• tbI'