Vikan - 20.07.1967, Side 28
baðströnd, en hún vildi fara til
Bahamaeyja. Þau ókvóðu að fara
til Flórída og svo til Bahamaeyja.
Það var einmitt miðnæturflug til
Miami, McElroy keypti miðana og
þau voru að stíga um borð, þegar
lögreglan kom. „Herra Philip Mc
Elroy, ég er hræddur um að yðar
sé þarfnazt heima. Það er dóttir
yðar."
„Hún er ekki dóttir. . . . O drott-
inn minn dýri:" sagði McElroy.
Hann hugsaði um að reyna sprett-
hlaup, en só, að það var þýðing-
arlaust.
Þau fóru inn til bæjarins aftur (
lögreglubílnum. „Þegar fólk er
svona á sig komið", sagði lögreglu
þjónninn fullur vandlætingar, „þá
er ekki hægt að stinga af og
skilja það eftir. Það var eins gott
að þessi læknir náði ( okkur í tæka
tíð." Lögregluþjónarnir fylgdu þeim
iupp í lyftunni. Dr. Strauss-Huppe á
Ihæðinni fyrir neðan beið í íbúð-
ínni. Hann hafði gefið Virginíu
róandi lyf og tertubita og hún svaf
sætt í þeirra eigin rúmi. Hjónin
þökkuðu löggunni og Strauss-Huppe
og fylgdu þeim til dyra.
Frú McElroy vantaði eitthvað til
að dr. Strauss-Huppe ætti eitt-
hvað slíkt og til að spara honum
aðra ferð læddist hún niður til íbúð-
ar hans. McElroy stóð í forstofunni
og hugsaði um hvað hann ætti af
sér að gera, þegar hann heyrði há-
vaða nokkurn úr sínu fyrrverandi
svefnherbergi. Það var Virginía að
bylta sér í fyrrverandi rúminu hans.
Hann læddist að dyrunum og kíkti
inn.
„Á morgun" kallaði Virginía
syfjulega, „fáið þið að heyra hvern-
ig hægt er aS æpa."
Eftir eyranu
Framhald af bls. 17.
Sellers, David Niven, Ursula
Andress og Woody Allen. Se-
an Connery er hins vegar
ekkert viðriðinn þessa mynd.
Margir muna eflaust, að Csino
Royale var myndasaga í Morgun-
blaðinu fyrir u.þ.b. tveimur ár-
um. Hljómsveit Herb Albert nýt-
ur stöðugt mikilla vinsælda, og
ekki alls fyrir löngu lék hljóm-
sveitin fyrir hvorki meira né
minna en hundrað þúsund áheyr-
endur á einum og sama stað.
☆
Assúan-stíflan
Framhald af bls. 19.
miklir, en þó varð hann ólíkt
meiri gæfumaður í sínum hernaði
en Nasser hefur orðið. Hann hafði
meira að segja vit á því að semja
frið við Hittita, og er sá frið-
arsamningur hinn elzti, sem til
er í skráðum heimildum. Það er
því engin óþarfa svartsýni að
halda því fram, að Egyptum hafi
heldur lítið aukist vit og reisn
á þeim þrjú þúsund árum, sem
liðu milli þeirra Ramsesar og
Nassers. D.Þ.
í fullri alvöru
Framhald af bls. 2.
lendinga er þessa klausu að finna
innan sviga:
„Vill ekki einhver góður al-
þingismaður flytja frumvarp um
borðfrið á veitingahúsum? Nú
tekur maður borð á veitingahúsi
og skal þá gestgjafa eða þjónum
skylt að vernda hann fyrir ásókn
fullra manna o.s.frv."
Þessi tillaga hefur sannarlega
ekki misst gildi sitt, þótt hún sé
orðin tuttugu ára gömul.
G. Gr.
Virginia
Framhald af bls. 13.
Og sjá, nokkru síðar stóð fólk sig
að því að vera einmitt að gera það
Einu sinni sagði hún dr. Strauss
Huppe, sem bjó á neðri hæðinni, að
hann myndi samrekkja frú McEI-
roy. Herra McElroy drakk heil ósköp
þessa nótt og vissi aldrei hvort spá-
in rættist, en engu að síður stóð
honum ekki á sama.
Brátt fór Virginía að fá gesti, jafn-
vel þó McElroy hjónin væru alls ekki
að halda partí. Fjöldi þeirra óx og
óx. Þeir komu hvenær sólarhringsins
sem var, dag eða nótt, og komu
alltaf með eitthvað gott handa Virg-
iníu að borða. Virginía naut þessa
nýja lífs. Hún æpti sjaldan nú orðið
og ef svo bar við, var það venju-
lega bara í gamni. En McElroy hjón-
in þreyttust æ meir á þessu nýja
lífi Virginíu, því þau þurftu að
hugsa um hana, koma henni ( rúm-
ið og úr, klæða hana og hátta, og
svo framvegis, því engin vinnukona
fékkst lengur til að vinna í húsinu,
ekki einu sinni nein ræstingarkona.
Það rann upp fyrir þeim, að allur
þeirra tími fór í að hugsa um Virg-
iníu. Einn og einn morgun komst
herra McElroy ekki einu sinni í vinn-
una. Þau skruppu varla á Bítlamynd-
ir núorðið, né í partí hjá öðrum
og rennilegi græni jagúarinn stóð
svotil óhreyfður í skúrnum. Þau
hlustuðu ekki einu sinni á Rolling-
ana í útvarpinu. Virginía hafði á-
kveðið að þeir væru gamaldags.
Eina nóttina, þegar búið var að
hátta Virgin(u, sátu hjónin lengi
saman á tali. „Þetta getur ekki
gengið svona," sagði frú McElroy
Þau ákváðu að strjúka strax um
nóttina. Hvort um sig setti niður
í tösku og þau læddust á tánum
út úr íbúðinni og þrýstu á lyftu
hnappinn. Rétt í því, að þau gengu
inn í lyftuna byrjaði Virginía að
veina. Til allrar hamingju var eng-
inn lyftuvörður. Frú McElroy ýtti á
neðstuhæðarhnappinn og niður fóru
þau og heyrðu ópin í Virginíu dvfna
smám saman.
Dyravörðurinn náði í leigubíl og
þau létu hann aka sér út á flug-
völl. Hann vildi fara til Flórída á
• Asparagus
• Oxtail
• Mushroom
• Tomato
• Pca with Smoked Ham
• Chicken Noodle
• Cream of Chicken
• Veal
• Egg Macaroni Shells
• 11 Vegetables
• 4 Seasons
• Spring Vegetable
Bragðið leynir sér ekki
MAGGI súpurnar fré Sviss
eru hreint afbragð
MAGGI súpurnar frá Sviss eru búnar til eftir upp-
skriftum frægra matreiðslumanna á meginlandinu,
og tilreiddar af beztu svissneskum kokkum. Það er
einfalt að búa þær til, og þær eru dásamaðar af
allri fjölskyldunni. Reynið strax í dag eina af hinum
átján fáanlegu tegundum.
MAGGI
SUPUR
FRÁ
SVISS
Umboðsmenn:
I. Brynjólfsson & Kvaran
28 VIKAN 29- tbl-