Vikan - 20.07.1967, Qupperneq 40
Loksins fæddisfl kr&nprinsinn ■
og gjafirnsr voru ekkerfl smáræði
í 117 ár hefur verið beðið eftir
krónprinsi í Hollandi. Þegar ríkis-
arfinn, Beatrix prinsessa fæddi
barn sitt, var það tilkynnt með
fallbyssuskotum. Fimmtíu skot, —
og fólkið beið í ofvæni, — fimm-
tíu og eitt Það var drengur!
Hann hefur líka fengið mörg nöfn,
— Willem Alexandre Klaus Georg
Ferdinand á hann að heita. Klaus
er auðvitað í höfuðið á pabbanum,
Klaus von Amsberg. Það er eng-
inn efi á því að þessi drengur er
margþráður, enda sýnir gjafa-
borðið að hollenzku konurnar hafa
aðeins setið við sauma undanfarið.
s #;
■
KARLMANNAPEYSUR
FYRIR KVENFÓLK
„Prófessor Higgins" er nafnið á þessari vestispeysu úr orlon-
garni frá I. & R. Morley London.
Sniðin eins og karlmannsflík með leðurhnöppum og tveim vös-
um og var meðal nýjunga, sem sýndar voru á kynningu á haust-
fötum fyrirtækisins fyrir 1967.
Til þess að öðlast þetta heimakæra og afslappaða útlít hafa stúlk-
ur hingað til þurft að kaupa karlmannaföt, en þetta snið er sér-
staklega gert fyrir þær.
VIIVIIIIIARKEIFI FVRIR
IJARTASIAG
Tæki, sem gefur frá sér viðvörunarhljóð allt að 40 mínútum fyrir hugsan-
lega banvæna kransæðastíflu og gerir læknum viðvart um hættulegt ástand
sjúklings er nú í reynslu í sjúkrahúsi í Englandi.
Vélin, sem er einstök í sinni röð, mælir hjartslátt sjúklings og sýnir „lif-
andi“ línurit um hann á skermi við sjúkrarúmið, um leið og það sendir hann
einnig á pappírsræmu. Við allar snöggar breytingar á hjartslættinum gefur
tækið viðvörunarmerki, sem hægt er að stilla inn á móttökutæki hvar sem er
í húsinu, eða heim til læknisins.