Vikan - 20.07.1967, Page 45
— Já, Troy hefur valdið mér
vonbrigðum. Að verzla með Mex-
íkana er allt of lágkúrulegt, fyrir
glæpamann áj borð við hann.
Hann ætti að vera að selja ferða-
mönnum Hollywood Bowl.
—Þetta borgaði sig vel. Hann
græddi á tvo vegu. Hann tók fé af
ræflunum fyrir greiðann. Dreifði
þeim svo á milli búgarðanna fyrir
svo og svo mikið á haus. Mexíkan-
arnir vissu ekki að þeir voru not-
aðir fyrir verkfallsbrjóta. En
þannig fékk Troy vissa vernd frá
æðri stöðum. Louis mútaði mexi-
könskum yfirvöldum hinum meg-
in.
— Keypti Sampson verkfalls-
brjóta af Troy?
— Já, en það verður aldrei
hægt að sanna það. Sampson var
mjög var um sig.
—Ekki nógu var, sagði ég. Hún
var þögul eftir það.
Þegar ég beygði inn á þjóðveg-
inn, tók ég eftir því að sársauka-
drættir fóru um andlit hennar. —-
Það er viskiflaska í hanzkahólf-
inu. Þú getur notað hana, bæði
til að hreinsa brunasárin og klór-
umar framan í þér, eða þú getur-
drukkið það.
Hún fór eftir báðum uppástung-
unum og bauð mér að opna flösk-
una.
— Nei takk.
— Af því að ég drakk úr henni
fyrst? Allir mínir sjúkdómar eru
andlegir.
— Ég vil það ekki.
— Þér líkar illa við mig, er það
ekki?
— Ég drekk ekki eitur. En það
hefur sínar góðu hliðar. Það lít-
ur út fyrir, að þú hafir nokkurn
heila, þó á lágu plani sé .
Kærar þakkir, gáfaði vinur.
— Og þú hefur séð sitt af
hverju.
— Ég er ekki jómfrú, ef þú átt
við það. Ég hef ekki verið það síð
an ég var ellefu ára. Eddie sá sér
leik á borði til að græða einn doll-
ar. En ég hef aldrei unnið fyrir
mér neðan beltis. Tónlistin bjarg-
aði mér frá því.
— Það er verst, að hún skyldi
ekki bjarga þér frá þessu líka.
— Ég tók mína áhættu. Það
heppnaðist ekki. Af hverju held-
urðu, að það skipti mig einhverju
máli?
— Vegna þess, að þessi önn-
ur persóna skiptir þig máli. Þú
vilt að hann fái peningana, hvað
sem kemur fyrir þig.
— Ég sagði þér að gleyma því.
Eftir stundarkorn bætti hún við:
— Þú gætir sleppt mér og hald-
ið peningunum fyrir þig sjálfan.
Þú færð aldrei aftur tækifæri tii
að græða hundrað þúsund dollara
á einu bretti.
— Ekki þú heldur, Betty. Og
ekki Alan Taggert.
Hún stundi af undrun og á-
falli. Þegar hún fann röddina aft-
ur, sagði hún illskulega: — Þú
hefur verið að snúa á mig. Hvað
veiztu um Taggert?
TialdiO er heimili viar í viOIeouini
SPORT 5 m fjölskyldu-
tjöldin með bláu auk-
þekjunni eru hlý, enda
gerS fyrir ísl. veðráttu.
Kosta aSeins kr. 3790.
Hústjöld svefntjald og stofa á aðeins kr. 5850.OO. Vindsæng-
ur frá kr. 470.oo. Teppasvefnpokar. Nestistöskur. Gasprím-
usar. Pottasett. Gummíbátar 1 og 2 manna á góðu verði. —
Verzlið þar sem hagkvæmast er.
Munið: Viðleguútbúnaðurinn og veiðistöngin fást í
— Það, sem hann sagði mér,
— Ég trúi þér ekki. Hann hefur
aldrei sagt þér neitt. Hún leiðrétti
sig : — Hann veit ekkert til að
segja.
— Jú
— Hefur eitthvað komið fyrir
hann?
— Hann er dáinn. Hann er
með gat á höfðinu eins og Eddie.
Hún ætlaði að fara að segja
eitthvað, en gráturinn kom á
undan orðunum. Eftir langan grát
hvíslaði hún: — Hversvegna sagð-
irðu mér ekki fyrr, að hann væri
dáinn?
— Þú spurðir ekki. Varstu ást-
fangin af honum?
— Já, sagði hún. — Við vor-
um ástfangin hvort af öðru.
— Ef þú varst svona ástfangin,
af hverju dróstu hann þá inn í
svona lagað?
— Ég dró hann ekki. Hann
vildi gera það. Við ætluðum að
fara í burtu saman.
-— Og lifa hamingjusöm upp
frá því?
— Sparaðu þessa ódýru brand-
ara handa sjálfum þér.
— Ég ætla ekki að kaupa ást-
ardraum af þér, Betty. Hann var
strákur og þú ert gömul kona,
að minnsta kosti að reynzlunni
til. Ég held að þú hafir lagt hann
undir þig. Þig vantaði hentugan
mann, og hann þjónaði sínum
tilgangi.
— Það er ekki rétt. Rödd henn-
ar var undarlega blíð. — Við
höfum verið saman í hálft ár.
Hann kom í Píanóið með Samp-
son, viku eftir að ég byrjaði þar.
Það var ást við fyrstu sýn af
beggja hálfu, en hvorugt átti
nokkuð. Við urðum að komast
yfir peninga til að byrja upp á
nýtt.
— Og Sampson var auðlindin.
Mannrán lá beinast við?
— Það þarf ekki að vorkenna
Sampson. En okkur datt annað
í hug fyrst. Alan átti að giftast
stúlkunni, dóttur Sampsons, og
láta Sampson borga honum fyrir
að skija við hana. Sampson eyði-
lagði það sjálfur. Hann lánaði
Alan húsið sitt í Valerio eina
nótt. Um miðja nótt uppgötvuð-
um við Sampson, þar sem hann
var bak við tjöldin í svefnher
berginu að kíkja á okkur. Eftir
það sagði Sampson stúlkunni, að
ef hún giftist Alan, myndi hann
gera hana arflausa. Hann ætlaði
líka að reka Alan, en við vissum
bara of mikið um hann.
Framhald í næsta blaði.
KJOLA-
EFNI..
LAUGAVEGI 59 SlMI 18647
38 tbl VIKAN 45