Vikan - 14.09.1967, Side 2
í FULLRI flLVÖRU
■ygy»«i»oc. •■•..••■■)
^SS?S?9?!?
WMM
^ííííííí^
,
’
'<mÞ SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
UMBOÐSMENN AKRANES: BERGUR ARNBJÖRNSSON
OKKAR ÚTI Á LANDI BOLUNGARVÍK. BERNÓDUS HALLDÓRSSON
SIGLUFJÖRÐUR: GESTUR FANNDAL
VESTM.EYJAR: BÍLALEIGAN A.S.
FORD CORTINA 1968 er lítið breytt eftir
hinar gagngerðu breytingar fyrra órs. —
Hinir fjölmörgu CORTINA - eigendur eru
beztu meðmælendurnir.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur
bifreiðinni mjúkan og öruggan akstur.
Gúmmihlifar yfir höggdeyfurum varna
skemmdum vegna óhreininda. Kraftmikil
miðstöð og loftræsting með lokaðar rúður.
Mikið farangursrými.
RJEKTflRLEYSI
Vakin hefur verið athygli á
ræktarleysi Reykvíkinga í garð
þeirra skálda, sem ólu aldur sinn
í höfuðstaðnum. Akureyringar
eru til fyrirmyndar í þessum efn-
um. Þeir hafa sýnt minningu
skálda sinna, Matthíasar Joc-
humssonar, Davíðs frá Fagra-
skógi og Jóns Sveinssonar, verð-
ugan sóma. Helzt hefur vottað
fyrir virðingu Reykvíkinga fyr-
ir minningu Einars Benedikts-
sonar. Það var gleðilegt, þegar út-
gáfufélagið Bragi réðist í að
reisa styttu af honum á Mikla-
túni, sem sýnilega verður hinn
snotrasti skrúðgarður með tím-
anum. Hins vegar er mörgum svo
farið, að þeir mega ekki eftir
Miklúbrautinni ganga, án þess að
harma hveru gerð myndarinnar
hefur tekizt illa. Og satt er það:
Hún er heldur klunnaleg og harp-
an fellur ekki sem bezt við mynd-
ina sjálfa.
Einar Benediktsson bjó í
Reykjavík í tæpa tvo áratugi, ár-
in 1894—1904 og 1922—1930, svo
að hvergi á myndastytta af hon-
um betur heima en hér. Síðustu
átta árin liíði hann hins vegar
eins og kunnugt er í Plerdísarvík
í Selvogshreppi ásamt Hlín
Johnson, sem annaðist hið aldna
skáld af einstakri alúð. Árið 1935
ráðstafaði Einar eignum sínum
og gaf Háskóla íslands Herdís-
arvík ásamt bókasafni sínu og
húsgögnum. Bækur Einars voru
fluttar í háskólabókasafnið 1950,
en ekki er mér kunnugt um, hvort
hróflað hefur verið við öðru.
Þeir sem komið hafa í Her-
dísarvík síðustu sumur, hafa
heldur ófagra sögu að segja. Þar
mun ailt vera í hinni mestu nið-
urníðslu. Ein sagan hljóðar á þá
leið, að einhverjir gárungar hafi
gert sér leik að því að skjóta í
gegnum húsið!
Aðdáendum Einars Benedikts-
sonar hlýtur að renna til rifja
niðurníðsla Herdísarvíkur, —
staðarins, þar sem skáldið lifði
kyrrlátu lífi síðustu æviár sín,
„horfinn veröldinni og veröldin
horfin honum“, eins og Sigurð-
ur Nordal komst að orði í út-
varpserindi á 75 ára afmæli hans.
Ef ekki reynist kleift vegna legu
staðarins eða kostnaðar að halda
Herdísarvík við og koma þar á
fót vísi að minjasafni um
„heimsskáldið, sem var dæmdur
til að yrkja á tungu fámennrar
þjóðar“ — þá væri betra að jafna
húsakynnin við jörðu. Altént er
það ekki minningu Einars Bene-
diktssonar samboðið, að hús
hans sé skotspónn skemmdar-
varga. G.Gr.