Vikan - 14.09.1967, Síða 3
w
B
®l
mm
Á öllum sviðum er eilíf barátta háð þótt örlögin bregði stöku sinnum á gaman. og unga fólkið sem ástinni varð að bráð í Árbæjarkirkju með viðhöfn er gefið saman.
Þar vígðust einnig ástinni herra og frú er aðlagast höfðu siðum framandi þjóða og kærleikans vegna valið sér nýja trú en varpað Lúther og sveinum hans fyrir róða.
VfSUR VIKUNNAR Af kærleikans brautu beygir þessi og hinn og biskup óttaðist loks um kirkjunnar heiður er presturinn bað þar Bahaí spámann sinn að binda fuglana tvo í sitt ástarhreiður.
Meðan brjöst nnitt, æska
og ástir fylltu . . .
Hann var frumstæður og villtur. Hann las með mér
og fyrir ægilegum vil'iakrafti hans varð ég að beygja
mig í duftið. Þennan mann hefði ég getað elskað alla
ævi, heitri, ástríðuþrunginni ást. En hann lét mig hverfa
út úr lífi sínu ....
Þetta er ummæli dönsku skáldkonunnar Magdalenu
Thoresen um Grím Thomsen. Fyrir einhverja duttlunga
örlaganna æxlaðist svo til, að hún fékk herbergi leigt
við hliðina á Grími, þegar hann var ungur stúdent í
Kaupmannahöfn. Þau skötuhjúin áttu margt sameigin-
legt. Bæði voru utangarðsfólk í vissum skilningi og í
hatrammri andstöðu við umhverfið. Bæði höfðu þau
einlægan áhuga á listum, bæði athvarfslaus í borg-
inni við sundið, bæði áttu í útistöðum við vandafólk.
En ástarsæla þeirra varð skammvinn. Magdalena hvarf
úr lífi Gríms umkomulausari en nokkru sinni, þögul,
særð og smáð. Þá gekk hún með barni hans, en mun
ekki hafa þorað að segja honum hvernig komið væri.
I næsa blaði hefst greinaflokkur um Grím Thomsen
og Magdalenu Thoresen, sem Kristmundur Bjarnason
hefur tekið saman. Af öðru efni má nefna fjórðu grein-
ina um heimssýninguna í Montreal, sem Sigurður Hreið-
ar skrifar. Nefnist sú grein Gengið um skála. Þá verð-
ur grein um dóttur Dajans á vígstöðvunum, þátturinn
Hús og húsbúnaður og ótalmargt fleira.
í ÞESSARIVIKU
HÚMOR í VIKUBYRIUN
BRÆDURNIR Á ÞÚFUNESI
MEÐAN MENNIRNIR HAFA MÁUÐ HALDA
SÖGURNAR ÁFRAM AÐ VERÐA TIL, rætt við
Hallfreð Örn Eiríksson, cand. mag.........
ÞEGAR ÉG VAR ÁTJÁN ÁRA, smásaga
TIGRISTÖNN, framhaldssaga um ævintýri
Modesty Blaise ...........................
EFTIR EYRANU, þáttur Andrésar Indriðasonar
um nýjustu dægurlögin ....................
DAUÐINN ER Á HÆLUM ÞEIRRA ALLRA,
síðari hluti greinar um leitina að stríðsglæpa-
Bls. 4
Bls. 10
Bls. 12
Bls. 14
Bls. 16
mönnum Þjóðverja .......................
ANGELIQUE í BYLTINGUNNI, framhaldsagan
um þessa vinsælu, frönsku ævintýrakonu
VIKAN OG HEIMILIÐ, þáttur Guðríðar Gísla-
dóttur .................................
FYRSTA FÖR ÍSLENDINGS LOFTLEIÐIS YFIR
ATLANTSHAF, rætt við Þórodd E. Jónsson,
sem flaug með þýzka loftskipinu Hinden-
burg ...................................
SÍÐAN SÍDAST
Bls.
Bls.
Bls.
Bls.
Bls.
18
22
24
26
46
ÚTGEFANDI; IIILMUt HF.
Rltstjóri: Sigurður Hreiðar. Mcðritstjóri: Gylfi Gröndal.
Blaðamaður: Dagur Þorleifsson. Útlitsteikning: Snorri
Friðriksson. Dreifing: Óskar Karlsson.
Ritstjóm, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Sklpholt
33. Símar: 35320 - 35323. Pósthólf 533. - Verð í lausasölu
kr. 35. Áskriftarverð er 470 kr. ársþriðjungslega, greiðist
iyrirfram. Prentun og myndamót Hilmir hf.
FORSÍÐAN
Kaupstaðabúar eru margir hverjir gamlir sveita-
menn, eins og kunnugt er, og þegar komið er fram
í september langar menn að fara í réttir eins og í
gamla daga. Vonandi geta sem flestir leyft sér að
bregða sér í réttir og hressa upp á gömui kynni. Á
forsíðunni birtum við að þessu sinni mynd af Sauð-
árkróksrétt, sem Ævar Jóhannsson hefur tekið.
37. tbl.
VIKAN3