Vikan - 14.09.1967, Síða 47
piataði
ykkurl
Gríileikari orðinn
sifnvorpskónoir í
Boidaríkiiinm
I>essa sögu er haegt að nota
sem próf á kunningjahópinn. Að
öllum líkindum fáið svör, eitt-
hvað í þessa átt: „En bjánalegt!“
eða „en draumur!“ En sá sem
svarar ,.])að ættuð þið sjálf að
vita“, gefur óneitanlega miklar
upplýsingar um sjálfan sig.
Sagan gerðist á fæðinga-
deild. Þetta var ósköp venju-
leg fæðing, en þegar barnið
sá heimsins ljós, heilsaði það
ekki þessum táradal með
gráti, eins og venja er til. Þess
í stað hló hvítvoðungurinn
hátt. Viðstaddir voru undr-
andi á þessu fyrirbæri og
skoðuðu vandlega þetta vel
skapaða glaðlega barn. Það
var ekkert óeðlilegt við hvít-
voðunginn, nema ef vera
skildi að hægri hnefinn var
fast krepptur, eins og hann
væri að fela eitthvað. Ljos-
móðirin rétti varlega úr
fingrunum, og sjá; þessi
hrekkjalómur hafði falið í
lófa sínum eina af þessum
marg umræddu pillum . ..
Öflugasti maðurinn í bandaríska
sjónvarpsheiminum í dag er gild-
vaxinn, geðillur og fimmtugur að
aldri, drekkur brennivín úr kaffi-
bolla þegar hann kemur fram á
skerminum og er þess á milli stöð-
ugt á hneykslanlegu kvennafari.
Hann heitir Jackie Gleason og er
nú oft kallaður „kóngurinn í
Miami".
Fyrir þremur árum síðan komst
Gleason allt í einu að þeirri niður-
stöðu, að hann nennti með engu
móti að halda áfram með sjón-
varpsþátt sinn í New York. Hann
sagðist vilja eiga heima á stað,
þar sem hægt væri að „leika golf
þrjú hundruð sextíu ok fimm daga
á ári". Sjónvarpsfyrirtækið CBS,
sem Gleason vinnur hjá, varð hel-
tekið skelfingu, því þáttur Jackies
var einn sá vinsælasti. Það lofaði
að kosta flutning hans á þægilegri
stað, og Miami varð fyrir valinu.
Þar varð CBS að byggja yfir
þessa sérvitru stjörnu, og engan
smákofa. Tíu herbergi eru í ibúð-
inni, átta litvarpstæki og dyra-
bjallan spilar fyrstu strófurnar úr
innganslagi -Gleasons. Að sjálf
sögðu er húsið staðsett rétt við völl
eins fínasta golfklúbbs í heimi,
Miami Country Club. Gleason leik-
ur golf á hverjum morgni, fimm
daga í viku. Kylfur hans eru allar
gulli greyptar.
Þegar Gleason hefur ekki annað
að gera, fer hann á vinnustofuna
og undirbýr sjónvarpsþætti sína.
Hann á sérbyggðan Mercedes með
vínstúku og síma. Hann hefur allt-
af að minnsta kosti eina blondínu
í fylgd með sér og er alræmdur
fyrir ástalifnað sinn, sem þykir
vægast sagt í nokkru ósamræmi
við borgaralegt siðgæði.
Sjónvarpsþáttur hans veitir tvö
hundruð og fimmtíu milljónum
króna á ári inn í atvinnulíf Miami-
borgar, og er hann þó aðeins einu
sinni í viku. Og vitaskuld er við-
búið að fleiri stjörnur fari að dæmi
Gleasons. Þá langar æ meira 1
sólina; það kvað stundum snjóa í
New York. Þetta hefur orðið til að
auka álit Gleasons í sjónvarps-
heiminum. Þar er sagt að trúður-
inn sé orðinn að kóngi.
Jackie Gleason; Feitur, geðillur,
sérvitur og hræðilega voidugur.
JOHNSON OG KENNEDY
Róbert Kennedy hefur samið full-
kominn frið við Lyndon B. Johnson,
eftir því sem bezt verður séð. Blöðin
í Washington skrifa að vísu ekki mik-
ið um málið, en stjórnmálasérfræðing-
ar sega að þetta geti orðið sérlega
örlagaríkt.
Margir héldu um tíma, að misklíð-
in milli Johnsons forseta og nokkurra
helztu foringja Demókrataflokksins
gætu kostað hann hundruð þúsunda
atkvæða í kosningunum árið 1968. En
það litur varla út fyrir það eftir þetta.
Og menn taka vart alvarlega félags-
skap demókratanna, sem ætla að
vinna að framboði Kennedys, enda
hefur Kennedy sjálfur lýst þvi marg-
sinnis yíir, að þessi félagsskapur sé
honum óviðkomandi.
En fyrrnefndir stjórnmálasérfræð-
ingar segja, að Kennedy, sem hefur
unnið ötullega í stjómmálunum, hafi
nýlega séð, að hann hefur enga von
um að ná undirtökunum gegn John-
son árið 1968. Ef hann byði fram.
gætu sveiflurnar orðið yfir til repú-
blikananna, — þó enginn viti ennþá,
hver verði kandídat þeirra.
Aðrir forystumenn demókrata hafa
komizt að sömu niðurstöðu, segja
fyrrnefndir sérfræðingar.
Yngri stuðningsmenn og ráðgjafar
Kennedys eru samt ennþá ákafir á
þeirri skoðun, að hann eigi að keppa
við hann, en hinir eldri og reyndari
ráðleggja honum, að snúa blaðinu al-
gjörlega við og styðja Johnson af al-
efli.
Þeirra ráðum hefur Kennedy fylgt.
Og nýlega, á fundi í New York, lof-
aði hann og prisaði Johnson. Aftur
á móti er forsetinn sjálfur rólegur
um þessar mundir, — af hverju sem
það nú stafar.
En það koma forsetakosningar í
Bandaríkjunum á eftir árinu 1968. —
37. tbi. VIKAN 47