Vikan - 18.04.1968, Blaðsíða 6
/
Mtíám h gerfl
Sundurteknir, auðveldir í flutningum.
Standard stærðir:
Br. 110 - 175 - 200 og 240 cm.
Smíðaðir einnig í öðrum stærðum.
- Póstsendum -
Biðjið um upplýsingar.
HÚSGAGNAVERZLUN
llxels Eviólfssonar
Skipholti 7 - Símar 10117 - 18742
^______________________________________J
\
SLÆM SPRETTA
Kæri Póstur!
Ég les þig í hverri viku
og hef séð, að þú hjálpar
mörgum, sem eru í vanda.
Og hér er ég með svolítið
fyrir þig að glíma við. Ég
er 14 ára strákur með frem-
ur ljóst hár og hef mikinn
áhuga á að safna skeggi. En
lítið virðist spretta, þótt ég
raki þetta Iitla sem kemur.
Nú ætla ég að spyrja þig,
hvort þú getir hjálpað mér.
Er það satt, að ef maður
rakar skeggið eða þau hár
sem fyrst koma — þá fái
maður fyrr skegg? Og kem-
ur fyrr skegg á dökkhærða
stráka en ljóshærða? Og
hvað á ég að gera til að fá
skegg sem allra fyrst?
Svaraðu mér nú, Póstur
minn, fljótt og vel og enga
útúrsnúninga.
Tommi.
Jú, það er gömul trú,
hvort sem það er hjátrú eða
ekki, að skeggvöxturinn
aukist, ,ef menn byrja
snemma að raka sig og raka
sig oft. Ekki erum við trú-
aðir á, að skegg komi fyrr
á dökkhærða stráka en
ljóshærða. Hins vegar sést
það betur hjá þeim fyrr-
nefndu. En ráð til að auka
skeggvöxt kunnum við því
miður ekkert, Tommi minn.
Þú verður bara að bíða og
raka þig kvölds og morgna
— og fá þér gerviskegg, ef
allt um þrýtur.
ÖKUKENNSLA OG
HÆGRIAKSTUR
Virðulegi Póstur!
Við erum hér þrjár ung-
ar sálir, sem verðum
seytján ára í maí.' Mark-
mið lífs okkar er að fá rétt-
indi til að aka bifreið. í
maí verður einmitt tekinn
upp hægriakstur eins og
allir ættu nú að vita. En
þá vaknar spurningin: Fá-
um við að læra á bíl fyrr
en eftir að hún er gengin
í gildi? Okkur var tjáð, að
við fengjum ekki að læra
fyrr en eftir þriggja mán-
aða reynslu af hægriakstri.
Er það rétt? Og svo ef við
fáum að læra áður en
hægriakstur er kominn á,
lærum við þá vinstri eða
hægri-akstur?
Við vonum, að þessi
snepill lendi ekki í rusla-
körfunni, því að þetta er
nefnilega okkar hjartans
mál. Sumsé, virðulegi Póst-
ur: sendu okkur skýr svör
við spurningum okkar.
Hjarlkærar kveðjur. Og
hvemig er skriftin. Og enn
einu sinni ástarkveðjur,
þakklæti og kossar.
Yðar náð og hávelborin
æruverðugheit,
Sigga, Svenni og Kjartan.
Virðulega þrenning: Oss
hefur verið tjáð, að kennd
vcrði vinstri umferð allt
þar til síðustu vikuna fyr-
ir hinn örlagaríka dag, 26.
maí. Þá verður ökukennsla
felld niður og einnig nokk-
urn tíma eftirl að hægri um-
ferð er gengin í gildi.
Hversu langur tími það
verður eftir breytinguna
hafa háttvirt stjómvöld enn
ekki ákveðið. En það verð-
ur að sjálfsögðu auglýst
rækilega á sínum tíma.
Vér ráðleggjum yður, að
bíða með að læra á bíl, þar
til hægri umferð er komin
á, til þess að engin hætta
sé á, að þér ruglizt í rím-
inu. Beztu þakkir fyrir
lengstu, virðulegustu og
innitegustu kveðju, sem
Póslurinn hefur fengið —
sérstaklega kossana.
FEIT Á LÆRUNUM
Kæri Póstur!
Ég kaupi yfirleitt alltaf
Vikuna og mér þykir mest
gaman að Póstinum. En nú
langar mig að spyrja þig:
Hvað á maður að gera til
þess að fitna ekki? Ég er
EKKI eins og þær alverstu,
en fer að verða það. Ég er
svo hrædd um að f itna mik-
ið á lærunum. Ég er þrettán
ára og er að verða 60 kíló.
Á ég að taka lýsi eða borða
bara appelsínur eða borða
minna á máltíðum?
Kæri Póstur: Viltu koma
með nokkrar tillögur. Ég
vona að þú látir þetta bréf
í Póstinn strax í næsta
blaði.
Ein sem bíður
eftir svari.
Borðaðu minna á máltíð-
um. Annars ertu enn of ung
til þess að hugsa mikið um
vöxt þinn. Og þú munt
mt
6 VIKAN
15. tbl.