Vikan - 18.04.1968, Side 15
John F. Kennedy
flytur ræðu, skömmu
eftir að hann var
kosinn forseti 19G0. —
Þessi mynd er kann-
ski merkilegust fyrir
þá sök, að við hlið
Jolins situr Johnson
núverandi forseti og
aö baki honum er
Róbert Kennedy.
Róbert veitti ekkju
hins látna bróður
síns, Jacqueline
Kennedy, og börnum
hennar, ómetanlega
hjálp eftir hin vá-
legu tíðindi, sem
gerðust í Dallas 1963.
„Berjið ekki að dyr-
um; gangið rakleitt
inn“, stendur á hurð-
inni á skrifstofu Ró-
berts Kennedys. Ró-
bert er maður frjáls-
lyndur og hreinskipt-
inn og lítið gcfið um
sýndarmennsku og
meiningarlausar
kurteisisvenjur.
í
s -
son forseti er oft kallaður með upp-
hafsstöfum s(num LBJ.
Öllum er Ijóst, að velgengi sína
og óhrif ó Róbert Kennedy fyrst og
fremst að þakka minningunni um
John F. Kennedy. Það hefur komið
æ betur í Ijós, hversu mjög hann
Kkist bróður sínum, bæði í fram-
komu, mólrómi og hreyfingum.
Hann var ó margan hátt óreynd-
ur og óþroskaður, þegar hann, að-
eins 35 ára gamall, tók boði bróð-
ur síns um að gerast yngsti dóms-
málaráðherra landsins. ( því starfi
reyndist hann of tilIitslaus og ákaf-
ur og eignaðist því marga óvildar-
menn.
Nú er hann hins vegar 41 árs og
hefur öðlazt meiri reynslu og
þroska. Hann er ódeigur og einarð-
ur og staðráðinn í að taka við því
embætti, sem bróðir hans missti á
svo svívirðilegan hátt.
Hinn viljasterki faðir hans hefur
sagt um hann: ,,Bob er sá af börn-
um mínum, sem líkist mér mest."
Þeir sem hafa hitt hann sakna
hins hlýja handartaks og augna-
ráðs, sem bróðir hans hafði. Kalt
viðmót Róberts og ísköld og raunsæ
íhygli hans mun ef til vill verða
honum fjötur um fót sem frambjóð-
anda til forsetakjörs. En á seinustu
árum hefur Róbert breytzt einmitt
hvað þessu viðkemur. Hann er ekki
alveg eins sjálfsöruggur og sjálfs-
ánægður og hann var. Hann er
hættur að rökræða miskunnarlaust
við hvern sem er og halda fram
sinni stefnu sem hinni einu réttu.
Áður komst enginn að í slíkum rök-
ræðum. Nú er hann hins vegar far-
inn að gæta hófs ( þessum sökum
og hlusta á skoðanir annarra. Hann
er orðinn miklu mildari og sveigjan-
legri í viðhorfum og skoðunum. Og
hann er nýlega tekinn upp á að
hæðast kaldranalega að sjálfum
sér og hefur aflað sér aukinnar sam-
úðar með þvf.
Róbert Kennedy er sannkallaður
keppnismaður. Hann kann ekki að
tapa. Einu sinni sagðist hann fyrir-
líta alla þá sem tapa. Þegar hann
stundaði íþróttir á skólaárum sínum,
var járnvilji hans sterkasta hlið. Hið
sama hefur orðið uppi á teningnum
á stjórnmálaferli hans. Hann herð-
ist við hverja raun; ef hann tapar
færist hann ( aukana og tekur á
öllum sínum kröftum. Sigurvilji er
einn af stærstu kostum hans.
Móðir þeirra, Rose, lýsir vilja-
styrk Róberts með þv( að segja frá
stöðu hans í hópi systkina sinna:
„Þeir bræðurnir voru fjórir. Elzt-
ur var Joe, næst kom John og þá
Róbert og Edward rak lestina. Ró-
bert bar alla tíð mikla virðingu fyr-
ir eldri bræðrum sínum og tók þá
sér til fyrirmyndar f einu og öllu.
Búast hefði mátt við, að Róbert og
Edward fengju minnimáttarkennd
Framhald á bls. 29.