Vikan - 18.04.1968, Qupperneq 22
IIHBLIHBflBNIB SEM OLL Bl
HÉR ER RAKIN í STUTTU MÁLI SAGAN AF BONNIE OG CLYDE, SEM NÝLEGA HEFUR VERIÐ
BONNIE-ÆÐI GANGI YFIR HEIMINN.
Kvikmyndin af Bonnie og Clyde hefur náS mikilli lýðhylli. Framleiðendumir hafa grætt of
fjár, ný tízka, kennd við Bonnie, er komin fram og nafn hjúanna er þekkt vörumerki.
Á páskadag 1934 sat roskinn
bóndi að nafni William Schi-
effer undir stórri eik og hvíldi
sig eftir matinn. Hann gaf auga
bílunum sem fóru framhjá bæn-
um hans, er var við stóra þjóð-
veginn milli Dallas og Grape-
vine í Texas. Nýr Ford stanz-
aði spottakorn frá og einhver
kastaði út vískíflösku hlæjandi.
Stundarkorni síðar komu tveir
umf erðarlögregluþj ónar á bif-
hjólum, hemluðu og gengu að
Fordinum, sem virtist hafa bil-
að. Schieffer sá rifflum og
skammbyssum miðað út um bíl-
gluggana. Skot gullu við, og báð-
ir lögreglumennirnir skullu á
rykugan veginn.
Schieffer læddist nær til að
sjá betur, hvað hér væri á prjón-
unum. Bíldyrnar opnuðust og
út steig lítil, ljóshærð stúlka.
Hún hélt á haglabyssu, og hafði
verið sagað framan af hlaup-
inu. Hún gekk að öðrum fallna
lögreglumanninum og stóð smá-
stund yfir honum; hann virtist
dauður. En hún skaut tveimur
skotum í höfuð hans.
— Nei sjáið þið, höfuðið hopp-
aði eins og gúmmíbolti, kallaði
hún.
Hún og karlmaðurinn í bíln-
um skellihlógu og óku svo af
stað. Schieffer flýtti sér fram
á veginn og sá að báðir lög-
reglumennirnir voru dauðir.
Annar vegfarandi í bíl náði í
lögregluna, sem fór með liðs-
menn sína tvo, E. D. Wheeler,
tuttugu og sex ára, og H. D.
Murphy, tuttugu og þriggja, á
líkhús í Dallas.
Morðingjarnir voru sloppnir
í bíl sínum, hraðskreiðum Ford
V 8. En fingraförin á viskíflösk-
unni, sem hent hafði verið úr
22 VIKAN 15-tbl