Vikan


Vikan - 18.04.1968, Síða 34

Vikan - 18.04.1968, Síða 34
Sækið sumaraukann Frá haustnóttum til vordaga er unnt að sækja sumaraukann með því að fljúga með LOFTLEIÐUM vestur til Ameríku eða suður til Evrópu og halda þaðan, þangað sem sólin skín allan ársins hring. Lág vetrarfargjöld og langt skammdegi freista til ferða allan veturinn, en einkum er þó heppilegt að sækja sumaraukann með LOFTLEIÐUM á tímabilum hinna hag- stæðu vor- og haustfargjalda, 15. marz— 15. maí og 15. september—31. október, en þá er dvalarkostnaður í sólarlöndum víðast hvar minni en á öðrum árstímum. ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HEIM LOFTLEIÐIS LANDA MILLI 1 WTLEIÐIfí 34 VIKAN 15-tbl- Verkfallinu er lokið. Kristvin aftur kominn á lyftarann sinn hjá Eimskip og væringar af verk- fallsvakt gleymdar — eða geymd' ar. Þá og síðan hefur mikið ver- ið rætt um réttmæti og gagn- semi verkfalla, sumir segja að verkföll séu úrelt vopn, aðeins til skaða. Á það skal ég ekki leggja dóm hér, þótt vissulega væri betra að komast hjá verk- föllum. Hitt er ég svo viss um, að verkföll og það sem þeim fylg- ir hefur ekki heppileg eða góð áhrif á börnin, sem við erum að ala upp. Þau líta á verkföll sem eitthvað spennandi og eftirsókn- arvert, þá er heillandi stríð milli verkfallsvarða og þeirra, sem eru að reyna að fara í kringum verk- fallið — eða stundum milli verk- fallsvarða og þeirra, sem eru að reyna að verja eignarrétt sinn. Og þá getur komið að þeim lang- þráða degi, að skólunum verði lokað. f þeirra augum verður verkfall álíka eftirsóknarvert og að komast á bíó eða sjá í sjón- varpinu mynd bannaða börnum. Á unglingana okkar hefur þetta örfandi áhrif til að komast í eitt- hvað spennandi, sem útrás í uppátækjum eins og að aka fram og aftur um Kópavoginn með vatn í tunnu, og kannski ein- hverjum verri. Hvaða afleiðingar kann þetta að hafa á launabar- áttu síðari tíma og samninga- vilja af beggja hálfu? ☆ TurnherbergiS Framhald af bls. 17. að út — það minnsta sem hún gat gert var að hverfa eins virðulega og henni var unnt. Hún hægði ferðina og eftir smá stund var hann búinn að ná henni og hélt áfram stórstígur, án þess að láta sig nokkru skipta hvort hún hefði við honum eða ekki. Þegar þau komu að hjóla stólnum nam hann staðar. Svo hvarf hann inn milli trjánna. Þegar hún kom þangað stóð hann og blaðaði í teiknibók hennar og staldraði aðeins við teikninguna, sem hún hafði gert af Lady Macfarlane. Rétt í svip hélt hún að hann myndi rífa blaðið úr blokkinni og böggla það saman, en það gerði hann ekki. Hann rétti henni bókina og sagði stuttara- lega: — Hirðið skranið yðar og sýnið mér hvar þér komuzt inn. Þau héldu áfram inn í garð- inn og nú varð hún að ganga á undan og varð sér þess óþægi- lega meðvitandi að hann gekk fast á hæla henni og að galla- buxurnar hennar voru rifnar að aftan og svo þröngar um mjaðm- irnar að henni fannst hún næst- um nakin og varnarlaus.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.