Vikan


Vikan - 18.04.1968, Síða 41

Vikan - 18.04.1968, Síða 41
leitt neitt ( Ijós, sem styður þessa kenningu, né ótal fleiri kenningar, sem komið hafa fram. Engum hefur tekizt að koma með tilgótu, sem geti skýrt, hvers vegna svo mörg skip og flugvélar hafa horfið á þessu svæði. Ef til vill finnst skýring á fyrirbærinu einn góðan veðurdag. En þangað til verður „Þríhyrningur dauðans" sannkallaður ógnvaldur öllum þeim, sem þurfa að leggja leið sína um hann — bæði á sjó og í lofti. ☆ Unglingar.... Framhald af bls. 25. fasta, hljóp hún að bílnum, þar sem Clyde og aðrir félagar henn- ar voru fyrir. Skot reið af og hitti Moore í ennið. Maxwell sériffi flýtti sér á vettvang, en var einnig skotinn niður. Hann dó fjórum dögum síðar. Og þau Bonnie og Clyde mörkuðu tvær skorur í vopn sín, en þann gamla sið úr villta vestrinu höfðu þau í heiðri unz yfir lauk. Bonnie, Clyde og Hamilton losuðu sig við bílinn og stálu öðrum. Piltarnir skildu Bonnie eftir hjá móður hennar meðan þeir rændu búð í næstu borg. Síðan tóku þeir hana upp aftur og stefndu til Oklahóma. Næst fréttist af þeim fjórt- ánda ágúst, en þá voru þau kom- in til Nýju-Mexíkó til að heilsa upp á móðursystur Bonniear. Þar rændu þau lögreglumanni, höfðu hann hjá sér í bílnum daglangt en slepptu honum síðan heilum á húfi. Þetta bragð léku þau all- nokkrum sinnum á næstu átján mánuðum og átti það drjúgan þátt í því dirfskuorði, er fór að fara af þeim. Þeim þótti gaman að aka langt án viðkomu og voru fljót að hverfa úr augsýn lögregumanna, sem lítið gátu að gert. Þau skruppu til Michigan svo að Hamilton gæti heilsað upp á föð- ur sinn, sem þar bjó. Þar frömdu þau nokkur bankarán, sem lítið hafðist uppúr, og síðan héldu þau Bonnie og Clyde áfram að rása um Miðvesturríkin. Hamil- ton settist um kyrrt, en vin- stúlka hans ein kom upp um hann og hann var dæmdur til tvöhundruð sextíu og þriggja ára (!) þrælkunarvinnu. Bonnie og Clyde urðu sér skjótlega úti um félaga í hans stað. Bill Jones, seytján ára bílþjóf- ur, hafði ekki hugmynd um hvað hann átti í vændum er þau tóku hann á þjóðvegi einum í Texas. Daginn eftir stálu þeir Bill og Clyde bíl fyrir utan gistihús eitt. Eigandinn stóð þá að verki, hljóp á vettvang og stökk upp á aur- brettið í von um að stöðva þá. Clyde setti skammbyssuna á háls honum og hleypti af skoti, sem næstum tók höfuðið af mannin- um. Síðan sagði hann hlæjandi við Bill að nú væri hann með- sekur um morð og yrði því neyddur til að fylgja þeim Bonn- ie gegnum þykkt og þunnt. Löngu síðar sagði Bill lög- reglunni að bæði Bonnie og Clyde hefðu misboðið honum kynferðislega. „Þau gerðu líf mitt að algeru helvíti. Stundum bundu þau mig við tré til að ég skyldi ekki strjúka frá þeim.“ Næsta fórnardýr Barrowklík- unnar varð Howard Hall, fyrr- um kúreki, sem rak smáverzlun í Sherman, Texas. Kvöldið ell- efta október 1932 komu Bonnie og Clyde inn í búðina og keyptu brauð og dós með laxi. Clyde rétti búðarmanninum, F. R. Little, fimm dollara seðil, en síðan dró Bonnie skammbyssu upp úr handtösku sinni og átti að halda þeim Hall og Little í skefjum meðan Clyde tæmdi peningakassann. En Clyde rak skammbyssu sína svo fruntalega í kviðinn á Hall að gamli mað- urinn hrökk aftur á bak. Clyde drap hann síðan með tveimur skotum, en síðan voru þau Bonn- ie góða stimd að pakka niður hjá sér nauðsynjum af ýmsu tagi. Hver mánuðurinn leið af öðr- um, ný rán voru stöðugt framin með heldur litlum gróða, og ný morð. Þess á milli slöppuðu skötuhjúin af með skemmtun- um af borgaralegasta tagi, fóru út skóg með matarkörfu, stund- um með móður Bonniear eða einhverjum öðrum ættingja. Þá tóku þau Bonnie og Clyde mynd- ir hvort af öðru. Hann lét helzt mynda sig hjá síðasta bílnum, sem hann hafði stolið, og lét þá riffil standa upp við vélarhúsið. Hún var stoltust af að vera mynduð með byssur, en ein mynd er til af henni reykjandi stórsígar. Blaðamenn náðu þeirri mynd og birtu mynd af henni sem glæpamannadrottningunni, sem reykti stóirsígara. Bonnie reiddist. Þótt hún þegar væri samsek um nokkur morð, fannst henni kvenlegri virðingu sinni misboðið með að gefa í skyn að hún reykti vindla, þegar hún í raun réttri reykti aðeins sígar- ettur. 15. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.