Vikan


Vikan - 18.04.1968, Síða 48

Vikan - 18.04.1968, Síða 48
 Þetta var konunni að kenna, ég sneri mér við til að horfa á hana. sem skein úr þeim, þá ónáðaði Pendrake stöðugt sá grunur, að hún byggi ýfir einhverju leynd- armáli, sem hann vissi ekki um. „Ég er kona,“ sagði hún. „Og við konurnar hugsum ekki rök- rétt eins og þið, elsku Arthur. Ég varð fyrst hrifin af þér, þeg- ar þú barðist fyrir lífi þínu í réttarsalnum. Síðan hef ég stöð- ugt orðið hrifnari af þér.“ Hálfum mánuði síðar og rösk- lega tveimur mánuðum eftir að Pendrake hafði verið sýknaður af morðákæru vegna láts fimmtu konu sinnar — hafði hann kvænzt þeirri sjöttu. Mikið var skrifað um brúð- kaup þeirra í blöðin, enda þótt þau reyndu bæði eftir fremsta megni að láta það fara fram í kyrrþey. Einhver blaðamaður fékk veður af því og var fljót- ur að setja það á forsíðuna. Dunphy lögregluforingi kom ó- boðinn til brúðkaupsins. „Þér eruð djarfir, hr. Pen- drake,“ sagði hann og glotti við tönn. Pendrake reyndi að láta eins og hann sæi hann ekki, en tókst það ekki. „Þér ætlið að freista gæfunn- ar einu sinni enn,“ hélt hann áfram. „Kannski er það ómaks- ins vert, ha? Það er til mikils að vinna í þetta sinn. En hvers konar bjáni er þessi frú Spencer eiginlega? Þykist hún ætla að betrumbæta yður? Eða ætlið þér að setjast í helgan stein og lifa hamingjusömu lífi hér eftir? Og mætti ég kannski spyrja, hvort hin nýja frú Pendrake á líka að fá að lifa í ró og spekt til æviloka? Ég hef mikinn áhuga á að vita það. Og ég mun fylgj- ast með ykkur — rækilega. Þér eruð að verða tómstundagaman mitt, hr. Pendrake." Ekki lofaði brúðkaupið góðu. Og því síður hveitibrauðsdag- arnir. Fern, sem hafði verið svo ástfangin af honum fyrir brúð- kaupið, var nú svo undarlega fjarræn og miður sín. Þau fóru í ferðalag til Vestur-Indíu, en rómantíkin fór gersamlega út um þúfur. Því fór fjarri, að Fern fleygði sér í fang honum eins og eftirvæntingarfull brúð- ur. í staðinn var hún afar frá- hindrandi og vör um sig og gaf honum gætur í laumi í tíma og ótíma. Hún njósnaði ekki bein- línis um hann, heldur virtist hafa svona einkennilegan áhuga á högum hans og lífsvenjum. „Arthur,“ sagði hún eitt sinn, er þau sigldu á skemmtisnekkju. „Var hinum konunum þínum kunnugt um fortíð þína?“ „Áttu við, að ég hafi verið kvæntur áður? Auðvitað. Ég laug aldrei að þeim.“ „Nei, ég á ekki við það. Vissu þær, hvernig þú hafðir losað þig við fyrrverandi konur þínar?“ Honum var skemmt. „Nei, auðvitað ekki.“ Augu hennar ljómuðu ein- kennilega. Honum þótti það tor- tryggilegt og ills viti. „Þá er ég eina konan þín, sem hef verið vöruð við,“ sagði hún. „Vöruð við hverju?“ „Hættu á illum örlögum." f þetta skipti vissi hann ekki, hvort hann ætti að hlæja eða reiðast. „Elskan mín,“ sagði hann. „Heldurðu í raun og veru, að ég ætli að myrða þig?“ „Ætlarðu það þá ekki?“ „Og samt baðstu mig að kvæn- ast þér?“ „Auðvitað, elskan! En í þetta sinn verðurðu að sjálfsögðu að vera miklu varkárari, af því að ég veit, hvað þú ætlar að gera. Og það sem er enn mikilvægara: Dunphy lögregluforingi veit það líka.“ „Hættu nú, Fern!“ Það var eins og hún væri að ráðleggja honum í fullri alvöru. „Hvað er að?“ „Þú talar tóma vitleysu. Ég hef ekki í hyggju að skerða eitt einasta hár á höfði þínu!“ „Nei, ég býst ekki við, að þú komir og tilkynnir mér það áð- ur.“ Nokkru síðar ræddi hann aftur við hana um þetta og var enn í æstu skapi: „Fern, hvers vegna í ósköpun- um skyldi ég vilja drepa þig?“ „Nú, en allar hinar konurnar þínar ....“ „Er endilega víst að sagan endurtaki sig? Heldurðu, að ég neyðist til að kvænast og fremja síðan morð aftur og aftur? Held- urðu í raun og veru að ég sé geðsjúklingur?" „Nei, elsku Arthur. En þú ert djarfur og varkár. Og þig lang- ar í tíu milljónir doliara.“ „En ég á þegar tíu milljónir. Ég er eiginmaður þinn.“ Hún hnyklaði brúnirnar: „Þú átt þær nú ekki ennþá. Þú hefur aðeins tekið fyrsta skrefið til að eignast þær.“ Þegar þau komu aftur úr brúðkaupsferðinni og höfðu flutt inn í ættaróðal Larkin- fjölskyldunnar, var hið fyrsta sem Fern gerði að láta útbúa löglegari kaupmála. Heill hópur af lögfræðingum vann að þessu verki. Arthur fékk að sjá erfða- skrána og lét útskýra hana fyrir sig. Hann var orðinn einkaerf- ingi konu sinnar. Við andlát hennar mundi hann erfa allar eignir hennar, hvern einasta eyri. „Ertu alveg gengin af vitinu,“ sagði hann við Fern, þegar lög- fræðingarnir voru farnir og þau loksins orðin ein aftur. „Þú hef- ur komið þessu þannig fyrir, að ég geti ekki snert einn einasta eyri á meðan þú ert á lífi, en verði hins vegar vellríkur um leið og þú hrekkur upp af!“ „En elsku Arthur minn,“ sagði hún sallaróleg. „Þú kvæntist mér peninganna vegna, var það ekki?“ „Það hef ég aldrei sagt.“ „Og þér þykir ekki svo vænt um mig, að þú viljir eyða þess- um peningum með mér. Þú vilt miklu heldur fá þá alla sjálfur. Og ég hef einmitt komið því í kring, að þú fáir vilja þínum framgengt.“ Hann botnaði hvorki upp né niður í henni. Hún hafði lað- azt að honum, vegna orðróms, sem var á kreiki um hann. Hún virtist hafa gifzt honum fyrst og fremst vegna þessa orðróms. 48 VIKAN 15- *“•

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.