Vikan - 05.09.1968, Qupperneq 45
— Nei, sagði Ambrose hóg-
værlega.
— Hlustaðu á mig. Eldhús-
glugginn er ólæstur. Reyndu að
koma þér út fyrir morguninn.
Heyrirðu til mín?
Ambrose hafði hingað til haft
ágæta heyrn, en nú heyrði hann
ekki neitt.
— Heyrirðu, hvæsti Harriet
eins hátt og hún þorði. — Bíddu
þar til við erum sofnuð, gefðu
okkur tíma, en komdu þér svo
niður og fljótur út! Og þegar
hann var enn skilningssljórri en
trúlegt mátti teljast, hækkaði
hún röddina einu sinni enn og
skipaði. — Reyndu að koma þér
út fyrir morguninn,
Ambrose lokaði hleranum.
Robert opnaði baðherbergis-
dyrnar með fætinum. Hann var
að skola á sér hálsinn. Þegar
hann hafði lokið því, sagði hann.
— Svona, svona, ég kem eftir
hálfa mínútu.
Harriet leit inn í baðherberg-
ið.
- — Vertu eins lengi og þig
lystir.
— Þú sagðir, að ég ætti að
flýta mér út.
— Ég sagði ekki neitt.
— Ég heyrði greinilega til þín,
sagði Roþert. — Þú sagðir mér
að vera kominn út fyrir morgun-
inn. Mér fannst það ákaflega
undarlegt.
—• Ja hérna! Fyrir morgun-
inn!
Harriet reyndi að flissa. Ro-
bert starði á hana í speglinum
ruglaður. Hún brosti og fór.
En þegar hann kom fram,
hafði vaninn aftur tekið yfir-
höndina. Hann var að iða sér í
náttfatajakkann, þegar Harri-
et fór inn í baðherbergið. Hún
hvíldi ennið að rakablettinum á
speglinum, þar sem Robert hafði
andað á sína eigin spegilmynd;
síðan þvoði hún sér, burstaði
tennurnar og kom aftur inn í
svefnherbergið og þar var Ro-
bert, samkvæmt áætlun í ból-
inu, geispandi, brosti til hennar
eins og venjulega, meðan hún
gekk úr skugga um að þau hefði
hvort sitt vatnsglasið á náttborð-
unum. Svo kyssti hún hann.
Hann klappaði henni á vinstri
kinnina.
— Góða nótt, elskan, sagði
hann.
— Góða nótt, elskan, sagði
hún.
Fimm mínútum seinna bylti
hann sér ofurlítið og velti sér á
vinstri hliðina. Tíu mínútum
seinna — hún þurfti ekki að
fylgjast með klukkunni til að
vita það, — velti hann sér aftur
yfir á hægri hliðina, dræsti hátt
og lengi og var sofnaður.
Harriet lá vakandi. Hún starði
út í myrkrið og hugsaði um, hve
gersamlega allt öðruvísi þetta
rúm væri en það, sem var uppi
í risinu.
Hún lá grafkyrr og beið
Framhald á bls. 50.
*
RAFHA-HAKA 500 er sérstak-
lega hljóðeinangruð. — Getur
staðið hv.ar sem er án þess að
valda hávaða.
;í.
RAFHA-HAKA 500 þvottavéiin yðar mun ávallt skila yður full-
kurnnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi, •
þ.e. það sem við á fyrir þau efni er ér ætlið að þvo.
Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu
þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar.
Þvottakerfin eru:
1. Ullarþvottur 30°.
2 Viðkvæmur þvottur 40°
3. Nylon. Non-lron 90°.
4. Non-lron 90°.
5 Suðuþvottur 100°.
6. Heitþvottur 60°.
7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90°
.8 Heitþvottur 90°.
9. Litaður hör 60°.
10. Stífþvottur 40°.
11. Bleiuþvottur 100°.
12. Gerviefnaþvottui -m<
Og að auk. serstakt kerfl fynr þeyti\indu og tæniingu.
Öruggari en nokkur 5nnm
gagnvart forvitnum bömum og
unglingum.
Hurina er ekki hægt að opne
fyrr en þeytivindan er STOÐV-
UÐ og dælan búm að tæma
vélina.
i
I
H1IAR ER DRKIN HANS NÓA?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af þezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Síðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Matthea Jónsdóttir, Ránargötu 14, Reykjavík.
Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar.
Nafn
Heimili
Örkin er á bls.
35. tbi. VIKAN 45