Vikan - 05.09.1968, Blaðsíða 48
Iíann er eins og hirðfífl í útliti: tæpir tveir metrar á
hæð, með óvenjulega langa fætur, frámstæðar tennur og
blíð og sakleysisleg augu. Naf'n hans hljómar líka svolítið
skopléga: Dario Fo.
Islenzkir leikhúsgestir liafa kynnzt verkum ítalska ]eik-
ritaskáldsins Dario Fo lítillega. Leikfélag Reykjavíkur
sýndi þrjá einþáttunga eftir hann ekki alls fyrir löngu.
Frægastur varð þátturinn „Nakin maður og annar í kjól-
fötuin“, sem einnig var sýndur í sjónvarpinu í fyrra.
Frægð Dario Fo fer stöðugt vaxandi. Síðastliðinn vetur
var nýtt leikrit eftir hann flutt í Stadsteatren í Stokkhólmi
og vakti mikla hrifningu. Hann setti sjálfur leikritið á
svið og lék annað aðalhlutverkið. Hitt aðalhlutverkið lék
kona hans, France Rame. Mún hefur leikið flest aðal-
kvenhliitverk í leikritum manns síns, enda eru þau samin
með hana í huga.
Leikrit Dario Fo eru oftast sþrenghlægileg. En í þeim
er líka fólginn hvöss þjóðfélagsádeila, sem gefur þeim auk-
ið gildi. Þannig eiga góð leikrit að vera að dómi höfundar;
fvrst og fremst skemmtileg, en ekki meiningarlaus og ekki
eingöngu til afþreyingar.
Meðfylg'jandi mynd er tekin af þeim hjónum að lok-
inni frumsýningu í Stokkhólmi síðastliðinn vetur.
V___________
48 VIKAN 35- tbl