Vikan


Vikan - 21.11.1968, Síða 27

Vikan - 21.11.1968, Síða 27
Michael, bróðir Pauls, er enn ókvæntur og býr heima hjá föður sínum. Húsið var gert í stand og búið nýtízkulegum húsgög- um. Það lcostaði 8000 pund eða litlu minna en kaup- verð hússins nam. „Stundum sakna ég Liverpool og minna gömlu vina þar, en ekki mjög mikið,“ segir Jim. „Eg var orðin leið- ur á fólki, sem vék sér að mér hvenær sem það gat og sagði alltaf þetta sama: „Þú hlýtur að vera stoltur af honum syni þínum“. Þetta var farið að fara í taugarnar á mér. En nú get ég boðið mínum gömlu og góðu vin- um að heimsækja mig hingað og get notið samvista við þá.“ Helzta tómstundagaman Jims er að fara á veðreiðar. Næst mesti hamingjudagurinn í lífi lians rann upp 6. júlí 1964, þegar honum var boðið að vera viðstaddur frumsýningu á fyrstu kvikmynd Bítlanna. „Við fórum öll til Dorchester á eftir. Margrét prins- essa var þar. Ég sá, að Paul var með pakka undir hendinni. Hann kom til mín og rétti mér pakkann. „Þetta er handa þér, pabbi,“ sagði hann. Ég opnaði pakkann fullur eftirvæntingar. Þetta var mynd af hesti. ITvað í ósköpunum á ég að gera með mynd af hesti, hugsaði ég. Paul hlýtur að hafa lesið hugsanir mínar, því að hann sagði: „Þetta er ekki bara mynd. Ég keypti þennan hest. Þú átt hann, og hann á að keppa í Chester á laugardaginn!“ Þetta var frægur veðhlaupahestur og kostaði 10.50 pund. Hann hefur verið mjög sigursæll á veðhlaupa- brautinni, síðan Jim eignaðist hann. 1966 fékk hann til dæmis 3000 pund í verðlaun. Jim þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af fjármálum. Hann hefur eins og raunar foreldrar allra Bítlanna banka- innstæðu, sem hann tekur af, þegar hann þarf á pen- ingum að halda. En Jim evðir ekki peningum í neinn óþarfa, þótt hann geti leyft sér það. Iíann lifir að mestu sama lífi og liann gerði áður. „Breytingin var of snögg. Ég var jú orðinn 62 ára gamall, þegar hún gerðist. Það tekur dálítinn tíma að venjast henni.“ Hr. oq frú Harrison Foreldrar Georgs Harrisons búa í útjaðri Warring- ton-borgar. Þau fluttu frá Liverpool 1965, þegar hr. Harrison hætti að starfa sem strætisvagnabílstjóri. Það er sjaldgæft að íbúar í Liverpool flytjist til staða eins og Warrington, þegar þeir komast í álnir. Yfirleitt kjósa þeir fremur að fara til Cheshire eða í þá áttina, eins og Jim McCartney. Warrington er 15 mílur frá Liverpool og álíka langt frá Manchester. Hún er ein af hinum ótalmörgu iðnaðarborgum í Lancashire, þar sem himinninn er grár af verksmiðjureyk, jafnvel á sól- björtum sumardögum. En Harrison-fjölskyldan býr raunar ekki í borginni sjálfri, heldur litlu þorpi utan við hana, sem heitir Appleton. Þrátt fyrir iðnaðarsvæðin stendur húsið eins og í vin, umkringt ökrum á hverja vegu. Ekkert hús er í sjónmáli. Af húsum foreldra Bítlanna er þetta afskekkt- ast og erfiðast að finna það. Þetta er L-laga villa, og garðurinn umhverfis hana er þrjár ekrur að stærð. Hjónin eru tíðum önnum kafin við að planta trjám og runnum. Hjá þeim vinnur garðyrkjumaður tvo daga vikunnar. Húsið er á einni hæð og eitt herbergið er hvorki meira né minna en þrjátíu og tvö fet á lengd. Þar halda þau samkvæmi og sýna kvikmyndir. George keypti húsið fyrir 10.000 pund, en að lokinni viðgerð og endurbótum hafði það kostað 20.000 pund. Svipað hús í Bourne- mouth, þar sem Mimi býr, mundi kosta helmingi meira. Innanstokks eru nýtízkuleg húsgögn hvert sem litið er, teppi á öllum gólfum og ýmsir smámunir út um allt. Flestir þessir munir eru gjafir, ekki frá syni þeirra, lieldur aðdáendum hans víða um heim. Á einum veggn- um hangir stór gullskjöldur með svohljóðandi áletrun: „Gjöf til Louise og Harold Harrisons fyrir þann tíma og erfiði, sem þau hafa fórnað Bítlaaðdáendum. Sam- banda Bítlaklúbba, Pomona, Kaliforníu, 1965.“ Foreldrar hinna Bítlanna álíta, að frú Harrison hljóti að vera eitthvað skrítin; að minnsta kosti skilja þau ekkert í, að hún skuli verja svo miklu af tíma sínum í að sinna aðdáendum, þegar hún þarf þess alls ekki. En þannig vill til, að frú Harrison er ákafur aðdáandi allra aðdáenda Bítlanna! I öllum tómstundum sínum situr hún og svarar bréfum. Flest kvöld situr hún við bréfa- skriftir til klukkan tvö á nóttunni. Hún skrifar um 200 bréf á viku. Og sum þeirra eru tvær síður að lengd. Frímerkjareikningur þeirra hjóna er gífurlegur. „Ég svara alltaf sjálf öllum bréfum. Þótt þau séu skrif- uð á erlendum tungumálum, sem ég skil ekki, eins og til dæmis spönsku, les ég þau samt. Stundum skil ég eitt og eitt orð, eins og til dæmis „admiro“. Sem svar við slíkum bréfum læt ég nægja að skrifa kveðju aftan á mynd af George. „Frú Harrison þarf miklar birgðir af myndum af Bítlunum. Stundum hefur hún sent yfir 2000 myndir á mánuði út um allan heim. „Ég hef fengið mörg falleg bréf, stundum jafnvel þakk- arbréf frá foreldrum aðdáenda Bítlanna. Hér er til dæm- is eitt: Kæra frú Harrison! Þér getið ekki ímyndað yður, hversu mikilvægt bréf yðar var. Dóttir mín var búin að skrifa í allar áttir, en fékk aldrei neitt svar. En svo einn góðan veðurdag fær hún bréf hvorki meira né minna en frá móður Georges Harrisons. Hún réði sér varla 'fyrir fögnuði. Á þessu sést, að bréfin hafa orðið til góðs. Á tímabili barst svo mikið af bréfum, að ógerningur var að svara þeim öllum. 1963—64 bárust um 450 bréf daglega hvaðanæva að úr veröldinni. Þegar George var 21 árs bárust 30.000 afmæliskort til háns, og ung- lingar stóðu í hópum fyrir utan húsið okkar allan daginn. Við urðum að fá lÖgregluþjón til þess að standa vakt. En síðan hefur bréfunum fækkað smátt og smátt, og ■ 46. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.