Vikan


Vikan - 21.11.1968, Qupperneq 43

Vikan - 21.11.1968, Qupperneq 43
LILÍIU LILJU LILUU LILUU Liljubindi eru betri. Fást í næstu búð. ákvörðun, skrifaði Stavros Liv- anos og bað um hönd Tinu dótt- ur hans. En hann hefði mátt vita betur. Livanos varð fjúkandi vondur, því eftir grískum venjum er það talið. útilokað að yngri systir gift- ist á undan þeirri eldri. Livanos var búinn að hugsa sér að veita Onassis blessun sína ef hann vildi kvænast Genie. En Tinu! Það var útilokað. Hann svaraði ekki einu sinni bréfinu og neitaði að hitta biðilinn. Onassis varð líka reið- ur, en hann sagði ekki neitt. Það var ekki fyrr en löngu seinna að hann sagði: — Livanos lítur á dætur sínar eins og skip. Hann verður að losna fyrst við elztu skipin! En eitt sinn hittust þeir af tilviljun, og þá bráðnaði ís- inn, og gamli maðurinn varð að ...................— Verkir, þreyta í baki ? DOSI beltin hafa eytt þrautum margra. ReyniS þau. Remedia h.f LAUFÁSVEGI 12- Sjcal 16510 beygja sig fyrir því sem varð að vera. — Ertu ennþá ákveðinn í að vilja endilega fá Tinu? spurði hann Ari, og án þess að bíða eftir svari bætti hann við: — Allt í lagi, ég gef mitt samþykki! Onassis var búinn að eignast hús við Oyster Bay á Long Is- land, sem var aðsetursstaður auðkýfinga. Þar synti hann, og lék sér á hraðskreiðum bátum. Hann fékk tilvonandi tengdaföð- ur sinn til að kaupa hús í ná- grenninu. f júní, þegar Tina var búin í skólanum, flutti fjölskyld- an til Oyster Bay. Tina og Ari voru mikið saman. Hann lék alls- konar listir á hraðbát sínum, Tinu til heiðurs og hún horfði á hann með hrifningu, þegar hann skrifaði stafina T-I-L-Y með hvítfyssinu úr kjölfarinu. — Tily? spurði hún, — hvað þýðir það? — Tina I love you“, svaraði Onassis, og þar með var hann búinn að bera bónorðið fram. Svo var trúlofun þeirra opin- beruð, eftir nokkrar unaðslegar sumarvikur. Þá var Tina sautján ára og Ari um fertugt. Sva var það 29. sept 1946, að mislitur skari brúðkaups- gesta safnaðist saman í grísk- kaþólsku kirkjunni í New York. Það voru vinkonur Tinu, sem flissuðu eins og smástúlkum er tamt innan um miðaldra herra með svarta skeggrót, sem komu handan yfir Atlantshafið, og það gerðu líka margir ættingjar On- assis. — Hveitibrauðsdagar okkar voru eins og draumar, sagði Tina nokkrum árum síðar. ☆ Framhald á bls. 7. (Ég vil taka það fram, að ég er tæplega þritugur karlmaður, ógiftur enn og þekki enga konu, sem heitir Guðrún, nema gamla frænku mína, sem ég hef ekki hitt í mörg ár). Eg verð skelfingu lostinn yfir þessum misskilningi. Ég botna hvorki upp né niður í því, að fólkið skuli álíta, að ég sé kven- maður. Ég tek til fótanna og hleyp eins hratt og ég get eftir hörðu hjarninu. Öðru hverju hrasa ég og flumbra mig á höndum og hnjám. En ég stend jafnharðan á fætur aftur og held áfram flóttanum, því að hópur af fólki veitir mér eftirför. Ég heyri alltaf skarkalann og læt- in í þessu fólki, sem eltir mig. Smátt og smátt heyri ég, að fólkið hrópar í kór: „Guðrún! Guðrún! Guðrún!“ í sama bili vaknaði ég. RennM útsaumur 125x45 cm Verð kr. 5.100,00. Sendum gegn póstkröfu. Glæsilegt úrval af bólstruðum húsgögnum. Rúmgóð bílastæði. Valhnsgögn Ármúla 4 Sími 82275 Þetta er einhver einkennilcg- asti draumur, sem mig hefur dreymt. Ég hef hugsað mikið um hann og bið þig þess vegna að reyna að ráða hann fyrir mig. Hvað táknar nafnið Guðrún í draumi? Með beztu kveðjum og þakk- !æti fyrir Vikuna. Einmana dreymandi. Mannanöfn hafa sérstaka merkingu í draumi, en erfitt er að segja til um, hvaða nöfn eru góðs viti og hver ekki. Yfirleitt er þó álitið, að nafnið Guðrún sé fyrir góðu. Líka álíta sumir, að þegar mann dreymi, að hann skipti um nafn, þá sé það fyrir því, að hann pipri. Og þá erum við líklega komnir að lykiiorð- inu við ráðningu þessa draums. I»ú segist vera ungur og ógiftur enn og undirskrift þín er „Ein- mana dreymandi“. Draumur þinn stafar areiðanlega af ótta við, að þú munir pipra. Þú stendur aleinn á jöklinum og þér líður vel. En þú hefur óþæg- indi af iblkinu í kringum þig, það hreytir í þig ónotum og hrindir þér til og frá og hrópar meira að segja stúlkunafn. Þessi draumur þann þarf alls ekki að tákna, að þú piprir. Hann staf- ar miklu fremur af ótta þínum við það hlutskipti. Og þar sem Guðrún táknar gott, þá er ekk- ert að óttast. Hver veit nema þú kvænist stúlku, sem heitir Guðrún! GLASGOW... Framhald af bls. 23. árs, fannst fyrir framan heimili sitt í Knightswood, Glasgow, með sór eftir hníf. Áverkarnir drógu hann til dauða. Gordan McDonald, tuttugu og ótta óra, var skorinn i framan. Tutt- ugu og eitt spor. Richard Fox, sextón ára, var bar- inn með járnröri þar sem hann sat í ruggustól. Einnig var hann skor inn og liggur nú fyrir dauðanum á sjúkrahúsi. Þrettón óra drengur var fluttur ó sjúkrahús með hnífstungur í kviðn- um. Hann er ó batavegi en verður líklega að liggja í tvo mánuði í við- bót. Tveir unglingar ruddust inn á heimili hjónanna Thomasar Craw- fords, fjörutíu og fimm óra, og Helen, fjörutíu og briggja. Þeir ristu sundur andlit Thcmasar og stungu Helen í kviðinn. Syni hjón- anna tvo. Thomas, tuttugu og tveggja ára og Joseph, seytjón óra, slösuðu þeir með hjólkeðjum. Francis McDowell, tuttutgu og þriggja óra, mastti tveimur fimmtán til sextón ára unglingum á götu í Glasgow. Þeir slógu hann i andlit- ið með brotinni flösku. Lögreglu- maður sem elti dólgana var stung- inn í kviðinn. Francis McDowell kemur til með að bera örin það sem hann ó eftir ólifað og lögreglumað- urinn er enn ekki úr lifshættu. Yfirvöld Glasgow segja sig þurfa tvö þúsund götulögregluþjóna til að halda uppi nægilegu eftirliti í allri borginni. Nú hefur borgin aðeins hundrað sextíu og sjö lögreglu- menn til þeirra starfa. Og manndrópin og misþyrming- arnar ganga sinn vanagang. ☆ Eftir eyranu Framhald af bls. 19. hljómplötu, og þegar Rosy var komin á hljómplötu tók frægðar- sólin að hækka á lofti svo um munaði. Á skömmum tíma klifr- aði lagið upp eftir brezka vin- sældalistanum, og það leið ekki á löngu, þar til Don var orðinn eftirsóttur skemmtikraftur í hljómleikasölum, ekki aðeins í 46. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.