Vikan - 21.11.1968, Page 44
PIRA-SYSTEM
HÍN FRÁBÆRA NVJA
HILLUSAMSTÆÐA ER í SENN
HAGKVÆM OG ÖDÝR
Það er ekki margt, sem hefur lækkað
í verði að undanförnu. Það hafa PIRA
liillusamstæðurnar gert sökum hagræð-
ingar og verðlækkunar í innkaupi. Nefn-
ið til hvers þér þurfið hillur og PIRA
er svarið. Ódýrustu bókahillur, sem völ
er á, hillur og borð í barnaherbergi, í
vinnuherbergi, í • húsbóndaherbergið.
Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli
borðstofu og stofu með PIRA-vegg.
Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA
hillusamstæður gcta staðið upp við vegg,
eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf-
ur eða naglar til að skemma veggina.
Notið veggrýmið og aukið notagildi
íbúðarinnar. PIRA hillusamstæðurnar
eru lausn nútímans.
KÖS OG SKIR tlf.
Ármúla 5 — Sími 84415—84416.
heimalandi sínu, heldur og víða
erlendis.
Þeir voru fáir, sem trúðu því,
að Don Partridge ætti eftir að
skapa sér varanlegan sess í
brezku skemmtanalífi. Allir virt-
ust sannfærðir um, að Don og
Rosy væru ekki annað en stund-
arfyrirbrigði og að götusöngvari
nr. 16 yrði brátt á sínum stað á
götunni.
En þar skjátlaðist mönnum.
Fimm mánuðum eftir að Rosy
kom á markaðinn, hafði Don
Partridge sent frá sér annað lag,
að þessu sinni Blue eyes. Þetta
lag komst alla leið í annað sæti
og það sat á vinsældalistanum í
tvo mánuði.
Don virðist einsýnt, að hann
muni ekki framar syngja á götu-
horni.
— Ef ég byrjaði að syngja við
biðraðirnar í West-end að nýju
kæmi enginn til að hlusta á mig
á hljómleikum. Enginn mundi
vilja borga shilling fyrir að koma
og hlusta. á náunga sem syngi
ókeypis á götunni.
En Don lítur með söknuði til
þeirra daga, er hann lifði frjálsu
lífi.
Ég elskaði lífið á götunni.
Ég gat farið á stúfana til að
krækja mér í aura, þegar mér
hentaði, og þegar mér fannst ég
þurfa á peningum að halda. Nú
lifi ég áhyggjufullu lífi og um
leið mjög þvingandi. En pening-
ar eru alltaf peningar, og mér
þykir skemmtilcgt að syngja
fyrir stóran hóp óheyrenda. Ég
hef alltaf haft ánægju af að láta
aðra glápa á mig, þannig að í
rauninni er ekki svo mikill mun-
ur á að vera pop-söngvari eða
götusöngvari. Munurinn er bara
sá, að nú borgar fólk, áður en
það hefur heyrt í mér í stað
þess að áður borgaði það, þegar
ég hafði lokið söng mínum, —
og oftar var það raunar svo, að
það borgaði alls ekki.
BRAUÐ ...
Framhald af bls. 47.
setjiö í litla depla ofan á 2/s af deig-
inu. Brjótið neðsta þriðja hlutann upp
yfir miðju deigsins og svo aftur efri
1 yfir það, eins og umslag. Snúið
deiginu hálfan hring, þannig að sam-
skeytin séu á hægri hönd. Lokið brún-
unum með því að þrýsta þeim saman.
Fletjið út og brjótið aftur tvisvar á
sama hátt og snúið því alltaf að hálfu
til hægri og setjið hvorn ‘/s hlutann
af smjörinu á í hvert sinn. Vefjið í
pclythen-plastpoka og kælið í ísskáp
í 50 mín. Fletjið síðan út í ílangt
stykki ca. 30x50 cm, þekið með smurðu
polythen-plasti og látið lyfta sér í 10
mín. Skerið endana beina með beitt-
um hníf og skerið síðan í tvennt eft-
ir endilöngu. Skerið hvort stykki í
þríhyrninga, ca. 20 cm háa og sama
lengd á botnlínu. Hálfur þríhyrning-
ur verður eftir á endunum. Gerið úr
þeim kúlur, penslið með eggblöndu,
látið lyfta sér og bakið. Þríhyrning-
ana 12 penslið þið svo líka með egg-
blöndu, rúllið upp neðan frá og upp
að efsta horni, þannig að það snúi
niður. Vefjið ekki fast. Flytjið á
ósmurða bökunarplötu, mótið deigið
líkt og hálfmána, penslið með egg-
blöndu og setjið inn í polythen-plast
til að láta það lyfta sér. Penslið þá
aftur með eggblöndu og bakið í miðju
á mjög heitum ofni í 20 mín. eða þar
til þetta er létt og gulbrúnt og stökkt.
Borið fram heitt með smjöri.
13. Brauðstönglar
Þeir geta verið úr hvaða hveiti-
brauðs-uppskrift sem er og má nota
til þess afgangsdeig. Þegar loftið hef-
ur verið slegið úr deiginu, eru tekin
lítil stykki og þeim rúllað í langa,
þunna stöngla, ekki þykkari en litli
fingur manns. Skerið í stykki ca. 20
cm löng og setjið á smurða bökunar-
plötu og látið lyfta sér. Bakið í miðju
í meðalheitum ofni þar til þeir eru
ljósbrúnir og stökkir, ca. 20 mín. Þeir
eru bakaðir, þegar þeir hrökkva sund-
ur í miðju, þegar þeir eru beygðir.
Kælið á vírgrind.
14. Lítil brauð
450 gr hveiti, 1 peli volg mjólk eða
vatn, \2 únsa pressuger eða 2 slétt-
fullar tsk. þurrger, 1 sléttfull tsk.
sykur, * l/2 tsk. salt, 2 únsur smjör.
Notið síðari aðferðina, hnoðið, látið
lyfta sér, hnoðið aftur og fletjið út í
ferhyrnt stykki rúmlega 1 cm á þykkt.
Notið hníf, sem dýft hefur verið í
hveiti og skerið í ferhyrninga 7—10
cm. Setjið á plötu lauslega smurða
og sem hveiti hefur verið stráð á og
stráið svolitlu hveiti yfir brauðin. —
Bakið á miðju í mjög heitum ofni
þar til þau hafa lyft sér vel og eru
ljósbrún, eða u. þ. b. 15 mín. Þegar
þau eru bökuð, á skorpan að vera
svolítið stökk, en þó ekki hörð. Þau
eru bezt köld, skorin í miðju og bor-
in fram smurð með sultu eða marmil-
aði, en líka má setja eitthvað annað
á milli, t. d. skinkusneiðar.
☆
Framhald af bls. 29.
Hún stóð ofurlítið fyrir aftan mig
og starði út í gegnum dyrnar, starði
á ótökin, andlitið meitlað og tján-
ingarlaust. Bak við hana hringaði
Pollý sig á dívaninum, hélt fyrir
r
<J NÝ ELDAVÉL GERÐ 6604. MEÐ 4 HELLUM, STÓRUM STEIKAR-
OG BÖKUNAROFNI. Yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun,
stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill), stór hita-
skúffo, Ijós ! ofni.
RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. Ó
ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðnum.
44 VIKAN 46-tbl-